Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Grýtubakkahreppur
Málaflokkur
Skipulagsmál, Þingeyjarsýslur
Undirritunardagur
26. mars 2026
Útgáfudagur
14. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 364/2026
26. mars 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Grýtubakkahreppi.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Grýtubakkahrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsbreytingu:
Ægissíða 10, Grenivík.
Í breytingunni felst að nýtingarhlutfall lóðarinnar hækkar úr 0,18 í 0,30 og byggingarreitur er stækkaður til samræmis við það. Jafnframt er heimilað að byggja bílskýli, um 2 m út fyrir byggingarreit, að suðaustan og norðaustan. Þá minnkar lóð nr. 10 um 1 m til norðausturs og lóð nr. 8 stækkar til samræmis. Engin breyting er gerð á öðrum skilmálum lóðarinnar.
Samþykkt í sveitarstjórn 26. janúar 2026.
Ofangreind tillaga hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
F.h. Grýtubakkahrepps, 26. mars 2026.
Arnar Ólafsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 14. apríl 2026