Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Ökutæki
Undirritunardagur
30. maí 2023
Útgáfudagur
31. maí 2023
Leiðréttingar
11. júlí 2023
HTML-texti og PDF-skjal: Í undirritun í stað „30. maí 2023. F. h. r. Valgerður B. Eggertsdóttir.“ komi: 31. maí 2023. F. h. r. Ólafur Kr. Hjörleifsson.
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 526/2023
30. maí 2023
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 605/2010 um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit.
1. gr.
Við 2. mgr. 56. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, u-liður, sem verður svohljóðandi:
| u. | Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1228 frá 16. júlí 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/799 að því er varðar kröfur um smíði, prófun, uppsetningu, virkni og viðgerðir snjallökurita og íhluta þeirra, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 339/2022, 9. desember 2022, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 37 frá 11. maí 2023, bls. 403-542. |
2. gr. Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 54. og 69. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, með síðari breytingum, öðlast gildi 21. ágúst 2023.
Innviðaráðuneytinu, 30. maí 2023.
F. h. r.
Valgerður B. Eggertsdóttir.
Gauti Daðasson.
B deild - Útgáfud.: 31. maí 2023