Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Heilbrigðisráðuneytið
Málaflokkur
Almannatryggingar
Undirritunardagur
3. mars 2026
Útgáfudagur
10. mars 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 16/2026
3. mars 2026
LÖG
um breytingu á lögum um slysatryggingar almannatrygginga, nr. 45/2015 (sjúkrahjálp).
Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:
1. gr.
Orðið „sjúkrahjálp“ í 9. gr. laganna fellur brott.
2. gr.
10. gr. laganna fellur brott, ásamt fyrirsögn.
3. gr.
Orðið „sjúkrahjálpar“ í 1. málsl. 2. mgr. 15. gr. laganna fellur brott.
4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Þrátt fyrir 1. mgr. skal greiða kostnað vegna sjúkrahjálpar sem fellur til vegna bótaskyldra slysa sem eiga sér stað fram að gildistöku laga þessara, með þeim takmörkunum sem fram komu í 4. mgr. 10. gr. laganna. Kostnaður vegna sjúkrahjálpar greiðist ekki vegna slysa sem eiga sér stað eftir gildistöku laga þessara heldur fer greiðsluþátttaka hins slasaða eftir almennum reglum um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í þeim kostnaði sem sjúkrahjálp tók til.
Gjört í Reykjavík, 3. mars 2026.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Alma D. Möller.
A deild — Útgáfudagur: 10. mars 2026