Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Velferðarsvið Reykjavíkur
Málaflokkur
Reykjavík, Félagsmál, Aldraðir
Undirritunardagur
1. desember 2025
Útgáfudagur
16. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1381/2025
1. desember 2025
GJALDSKRÁ
velferðarsviðs Reykjavíkurborgar fyrir akstursþjónustu aldraðra.
1. gr. Fjárhæð gjalds.
Gjald fyrir hverja ferð hjá akstursþjónustu aldraðra er 1.690 kr., óháð fjölda ferða.
2. gr. Gjaldskylda ónýttrar þjónustu.
Greiða skal fyrir pantaðar ferðir þegar forföll hafa ekki verið tilkynnt.
Afpanta skal ferð með sem mestum fyrirvara, að lágmarki með þriggja klst. fyrirvara fyrir fyrirhugaða ferð. Að öðrum kosti telst ferðin með í uppgjöri bæði gagnvart sveitarfélagi og notanda. Mæti notandi ekki á upphafsstað ferðar á tilsettum tíma telst ferðin einnig með í uppgjöri gagnvart sveitarfélagi og notanda.
3. gr. Gildistaka.
Gjaldskrá þessi er sett með stoð í X. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991 og reglum Reykjavíkurborgar um akstursþjónustu aldraðra, nr. 366/2018.
Gjaldskrá þessi öðlast gildi 1. janúar 2026 og fellur þá jafnframt úr gildi gjaldskrá sama efnis, nr. 1389/2024.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 1. desember 2025.
Heiða Björg Hilmisdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 16. desember 2025