Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

22. september 2021

Útgáfudagur

30. september 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1084/2021

22. september 2021

REGLUR

um verklag og form fyrir samráð eftirlitsstjórnvalda við mat á hæfi aðila til að fara með virka eignarhluti í lánastofnunum.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um samráðsferli eftirlitsstjórnvalda við mat á hæfi aðila til að fara með virka eignarhluti í lánastofnunum, sbr. VI. kafla laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.

2. gr. Samráð milli eftirlitsstjórnvalda við mat á hæfi aðila til að fara með virka eignarhluti.

Um verklag og form fyrir samráð milli eftirlitsstjórnvalda við mat á hæfi aðila til að fara með virka eignarhluti í lánastofnunum fer eftir reglugerð (ESB) 2017/461, sbr. 3. gr.

3. gr. Innleiðing reglugerða.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/461 frá 16. mars 2017 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar sameiginlegar málsmeðferðarreglur, eyðublöð og sniðmát fyrir samráðsferli milli viðkomandi lögbærra yfirvalda vegna fyrirhugaðrar yfirtöku á virkum eignarhlutum í lánastofnunum eins og um getur í 24. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 83/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 77.

Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 57/2015, vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/461 í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union): https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32017R0461, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 72, þann 17. mars 2017, bls. 57-65.

4. gr. Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í e-lið 2. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, öðlast þegar gildi.

Seðlabanka Íslands, 22. september 2021.

Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Rannveig Júníusdóttir
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 30. september 2021

Tengd mál