Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur

Málaflokkur

Heilbrigðiseftirlit, Reykjavík

Undirritunardagur

1. desember 2025

Útgáfudagur

16. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1377/2025

1. desember 2025

GJALDSKRÁ

fyrir meindýravarnir Reykjavíkurborgar.

1. gr.

Fyrir þjónustu, búnað og efni til meindýravarna á vegum Dýraþjónustu Reykjavíkur skal Dýraþjónusta Reykjavíkur innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.

2. gr.

Tímagjald skal innheimt fyrir eyðingu meindýra en þó skal ekkert gjald tekið fyrir eyðingu á rottum og minkum. Tímagjald vegna þjónustuverkefna, úttekta og gjald fyrir akstur skal vera sem hér segir:

Tímagjald  6.750 kr./klst.
Akstur  2.150 kr./ferð.

3. gr.

Fyrir efni og annan búnað tengdum meindýraeyðingunni skal greiða gjald miðað við innkaupaverð og notað magn efnis ásamt 50% umsýsluþóknun.

4. gr.

Gjaldskrá þessi sem samin er og samþykkt af borgarráði Reykjavíkur, með heimild í 5. mgr. 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, og öðlast gildi 1. janúar 2026. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá fyrir meindýravarnir Reykjavíkurborgar, nr. 184/2025.

Borgarstjórinn í Reykjavík, 1. desember 2025.

Heiða Björg Hilmisdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 16. desember 2025

Tengd mál