Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Reykjanesbær

Málaflokkur

Skipulagsmál, Reykjanesbær

Undirritunardagur

27. janúar 2026

Útgáfudagur

12. febrúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 139/2026

27. janúar 2026

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Reykjanesbæ.

Á fundi 20. janúar 2026 samþykkti bæjarstjórn Reykjanesbæjar eftirfarandi breytingu á deiliskipulagi, skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010:

Selvík 9 og Selvík 5. Breyting á lóðamörkum sem felst í að lóð nr. 9 minnkar, úr 11.216 m² í 7.433 m², en lóð nr. 5 stækkar jafnt á móti, úr 5.937 m² í 9.713 m².

Álfadalur. Deiliskipulagsbreytingin felst í að stígur er breikkaður og verður akfær, bílastæði verða innan lóða. Lóðamörk hliðrast lítilsháttar.

Eftirfarandi breyting á deiliskipulagi hlaut málsferil skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010:

Grófin og Bergið. Deiliskipulagsbreytingin felst í að heildarstærð lóða B og C verður óbreytt, en stærðir breytast innbyrðis. Bílakjallari verður undir lóð B, húshæðum er breytt að hluta og byggingarhlutar eru sameinaðir.

Á fundi 7. janúar 2026 samþykkti bæjarstjórn Reykjanesbæjar eftirfarandi, skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010:

Vitabraut 7. Deiliskipulagsbreytingin er þríþætt; stækkun og fjölgun byggingarreita, vegghæð við þakbrún hækkar og heimill lífmassi er hækkaður í 2.320 tonn.

Deiliskipulagsbreytingarnar taka þegar gildi.

Reykjanesbæ, 27. janúar 2026.

Kjartan M. Kjartansson bæjarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 12. febrúar 2026

Tengd mál