Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

9. september 2019

Útgáfudagur

24. september 2019

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 838/2019

9. september 2019

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 290/2016 um diplómanám á meistarastigi við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands.

1. gr.

1. mgr. 7. gr. reglnanna breytist og orðast svo:

Nemendur sem ljúka diplómanámi geta fengið hluta þess náms metinn inn í nám til meistaraprófs, samkvæmt samþykkt deildar.

2. gr.

1. málsl. 1. mgr. 8. gr. reglnanna breytist og orðast svo: Þegar deildin hefur samþykkt diplómanám á ákveðnu sérsviði skipar deildarráð námsnefnd.

3. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fenginni tillögu heilbrigðisvísindasviðs, eru settar í samræmi við VI. kafla reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009 og með heimild í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar hafa verið samþykktar af deildum heilbrigðisvísindasviðs, stjórn fræðasviðsins og Miðstöð framhaldsnáms, sbr. 66. og 69. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 9. september 2019.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 24. september 2019

Tengd mál