Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Sveitarstjórnarmál, Garðabær
Undirritunardagur
13. október 2022
Útgáfudagur
28. október 2022
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1182/2022
13. október 2022
SAMÞYKKT
um stjórn Garðabæjar.
I. KAFLI Um skipan bæjarstjórnar, sjálfstjórn hennar og verkefni.
1. gr. Skipan bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn Garðabæjar er skipuð ellefu fulltrúum, sem kjörnir eru lýðræðislegri kosningu af íbúum bæjarins samkvæmt kosningalögum.
2. gr. Sjálfstætt stjórnvald.
Garðabær er sjálfstætt stjórnvald sem er stjórnað af lýðræðislega kjörinni bæjarstjórn í umboði íbúa bæjarins.
3. gr. Verkefni bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn annast þau lögmæltu verkefni sem bænum eru falin í lögum, samanber og leiðbeinandi auglýsingu frá því ráðuneyti sem fer með málefni sveitarfélaga.
Bæjarstjórn vinnur að sameiginlegum velferðarmálum íbúanna eftir því sem fært þykir á hverjum tíma.
Bæjarstjórn er heimilt að taka að sér hvert það verkefni sem varðar íbúa bæjarins, enda sé það ekki falið öðrum að lögum.
II. KAFLI Um bæjarstjórn.
4. gr. Hlutverk bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn fer með stjórn Garðabæjar samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, með síðari breytingum, annarra laga og samþykkt þessari.
Bæjarstjórn hefur ákvörðunarvald um nýtingu tekjustofna, lántökur og ráðstöfun eigna og um framkvæmd verkefna bæjarins.
5. gr. Verkefni bæjarstjórnar.
Meðal verkefna bæjarstjórnar er:
- Að sjá um að lögbundnar skyldur séu ræktar og hafa eftirlit með því að fylgt sé viðeigandi reglum í störfum Garðabæjar.
- Að kjósa forseta og varaforseta bæjarstjórnar, sbr. 13. gr. sveitarstjórnarlaga, bæjarráð og aðrar nefndir, ráð og stjórnir skv. V. kafla sveitarstjórnarlaga, að ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endurskoðun hjá bænum, sbr. VII. kafla sveitarstjórnarlaga.
- Að setja bæjarstjórn siðareglur, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.
- Að ákveða stjórnskipan bæjarins, ráða bæjarstjóra og aðra starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður bæjarins, sbr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga.
- Að móta stefnu fyrir starfsemi bæjarins, deilda og stofnana, setja starfsemi bæjarins reglur, setja samþykktir og gjaldskrár, eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
- Að fara með fjárstjórnarvald bæjarins, sbr. 58. gr. sveitarstjórnarlaga, og gera fjárhagsáætlanir, sbr. 62. gr. sömu laga.
- Að bera ábyrgð á fjármálum bæjarins, stofnana hans og fyrirtækja, sbr. 77. gr. sveitarstjórnarlaga og VIII. kafla samþykktar þessarar, og taka ákvarðanir um verulegar skuldbindingar bæjarins til lengri tíma.
- Að hafa eftirlit með framkvæmd samstarfsverkefna og þjónustusamninga, sbr. IX. kafla sveitarstjórnarlaga.
- Að veita íbúum Garðabæjar og þeim sem njóta þjónustu bæjarins upplýsingar um málefni sem snerta hagi þeirra og um samstarf sem bærinn hefur við önnur sveitarfélög, sbr. 103. gr. sveitarstjórnarlaga.
- Setja sveitarfélaginu málstefnu skv. 130. gr. sveitarstjórnarlaga.
6. gr. Ný bæjarstjórn tekur til starfa.
Nýkjörin bæjarstjórn tekur við störfum 15 dögum eftir kjördag. Jafnlengi heldur fráfarandi bæjarstjórn umboði sínu með þeim takmörkunum sem leiðir af kosningalögum nr. 112/2021. Nýkjörin bæjarstjórn hefur einungis umboð til töku ákvarðana um málefni bæjarstjórnarinnar eða bæjarins eftir að hún tekur við störfum.
Sá fulltrúi í nýkjörinni bæjarstjórn sem á að baki lengsta setu í sveitarstjórn boðar til fyrsta fundar ekki síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum eftir kosningar. Hann stýrir fundi þar til forseti bæjarstjórnar hefur verið kjörinn. Hafi tveir eða fleiri fulltrúar setið jafnlengi í sveitarstjórn fer aldursforseti þeirra með verkefni samkvæmt þessari málsgrein.
Fyrsta fund skal boða með a.m.k. fjögurra daga fyrirvara.
7. gr. Kjör forseta og varaforseta bæjarstjórnar.
Á fyrsta fundi kýs bæjarstjórn forseta bæjarstjórnar og tvo varaforseta. Skulu þeir kjörnir til eins árs í senn.
Njóti forseti eða varaforsetar ekki lengur stuðnings bæjarstjórnar skal kjósa í þau embætti að nýju. Hið sama á við ef forseti eða varaforsetar forfallast varanlega eða fá lausn frá starfi. Tilkynna skal kosningu forseta og varaforseta til ráðuneytis sveitarstjórnarmála þegar að því loknu.
Sá telst rétt kjörinn forseti bæjarstjórnar sem fær atkvæði meirihluta þeirra sem sæti eiga í bæjarstjórn. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju. Við aðra umferð telst sá rétt kjörinn sem fær meiri hluta atkvæða þeirra fulltrúa sem sitja fundinn eða ef viðkomandi er sá eini sem fær atkvæði. Fáist ekki niðurstaða við aðra umferð skal kosið þriðja sinni en þá á milli þeirra tveggja sem flest atkvæði fengu við aðra umferð. Ef nauðsynlegt reynist skal varpa hlutkesti um það milli hverra tveggja verður kosið. Verður þá sá rétt kjörinn sem fleiri atkvæði fær. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti.
Þegar að lokinni kosningu forseta bæjarstjórnar skal kjósa fyrsta og annan varaforseta til að gegna í þeirri röð störfum forseta í forföllum hans. Kosning varaforseta fer fram með sama hætti og kosning forseta bæjarstjórnar.
Sé enginn forseti viðstaddur á fundi gegnir starfsaldursforseti forsetastörfum nema bæjarstjórn ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra á þeim fundi.
III. KAFLI Fundir bæjarstjórnar og fundarsköp.
8. gr. Fundir bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn heldur reglulega fundi fyrsta og þriðja fimmtudag hvers mánaðar sem ekki ber upp á helgidag eða almennan frídag, kl. 17.00 í fundarsal bæjarstjórnar Sveinatungu í Ráðhúsinu við Garðatorg, nema bæjarstjórn ákveði annað.
Aukafundi skal halda þegar forseti bæjarstjórnar eða bæjarstjóri telur það nauðsynlegt eða ef þriðjungur bæjarfulltrúa óskar þess.
Bæjarstjórn er heimilt að fella niður reglulegan fund sinn, enda sé tillaga um slíkt samþykkt mótatkvæðalaust á næsta fundi bæjarstjórnar á undan. Bæjarstjóri getur í samráði við forseta bæjarstjórnar ákveðið að fella niður fundi eða halda aðeins einn fund í janúar og desember.
Bæjarstjórn er heimilt að fella niður reglulega fundi bæjarstjórnar vegna sumarleyfis.
9. gr. Boðun bæjarstjórnarfunda.
Bæjarstjóri boðar fundi bæjarstjórnar. Fundarboð og fundargögn skulu berast bæjarfulltrúum með rafrænum hætti ekki síðar en tveimur sólarhringum fyrir fund.
Aukafund skal boða ekki síðar en tveimur virkum dögum eftir að ósk þar um barst bæjarstjóra. Fundarboð vegna aukafundar skal berast bæjarfulltrúum með rafrænum hætti svo fljótt sem auðið er og ekki síðar en sólarhring fyrir fund.
Fundarboði skal fylgja dagskrá fundar og þau gögn sem eru nauðsynleg til að bæjarfulltrúar geti tekið upplýsta afstöðu til mála sem þar eru tilgreind.
10. gr. Dagskrá bæjarstjórnarfundar.
Bæjarstjóri semur dagskrá bæjarstjórnarfundar og skal dagskráin fylgja fundarboði.
Á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal taka:
- Lögákveðnar kosningar, s.s. kosningar forseta bæjarstjórnar, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarstjórnar, svo og ráðningu bæjarstjóra, æðstu stjórnenda bæjarins og endurskoðenda hans.
- Fundargerðir bæjarráðs, nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarstjórnar.
- Ályktanir og tillögur sem fram koma í fundargerðum bæjarráðs, nefnda, ráða og stjórna, sbr. 2. tölul., og þarfnast staðfestingar bæjarstjórnar, skal tilgreina þær sérstaklega í dagskrá.
- Önnur mál sem falla undir verksvið bæjarstjórnar og bæjarstjóri eða forseti ákveður að taka á dagskrá eða einhver bæjarfulltrúi óskar að tekin verði á dagskrá.
Bæjarfulltrúi sem óskar að fá mál tekið á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal tilkynna það bæjarstjóra skriflega eða með rafrænum hætti með tillögu a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund til þess að unnt sé að taka það á dagskrá.
11. gr. Tilkynning til íbúa um fundi bæjarstjórnar.
Íbúum bæjarins skal kynnt með auglýsingu á vefsíðu Garðabæjar um fyrirhugaða fundi bæjarstjórnar ásamt dagskrá, innan sama tímafrests og við á um bæjarfulltrúa, enda standi reglur um þagnarskyldu því ekki í vegi.
Heimilt er að fella niður auglýsingu samkvæmt þessari grein ef aukafundur er boðaður með svo naumum fyrirvara að slíku verði ekki við komið eða hafa skemmri fyrirvara en segir í 1. mgr.
12. gr. Opnir fundir bæjarstjórnar.
Fundir bæjarstjórnar eru opnir en heimilt er að ákveða að einstök mál skuli rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis máls. Forseti bæjarstjórnar eða bæjarstjórn getur jafnframt ákveðið að ræða fyrir luktum dyrum tillögu um lokun fundar.
Þrátt fyrir að fundi sé lokað er heimilt að ákveða að tilteknir starfsmenn bæjarins séu viðstaddir.
Óheimilt er að skýra frá því sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í bæjarstjórn.
Bæjarfulltrúum/nefndarmönnum í bæjarstjórn, nefndum og ráðum á vegum bæjarins er heimilt að taka þátt í fundi með rafrænum hætti, séu þeir staddir í sveitarfélaginu eða í erindagjörðum innanlands á vegum þess, en að öðrum kosti skal kalla inn varamann.
Ef nefndarmaður, einn eða fleiri, taka þátt í fundi með fjarfundarbúnaði skal tryggja jafna möguleika allra fundarmanna til þátttöku á fundi og í atkvæðagreiðslu, óskerta möguleika þeirra til að fylgjast með því sem þar fer fram og öryggi samskipta milli fundarmanna. Að öðru leyti fer framkvæmd slíkra funda skv. leiðbeiningum ráðuneytis sveitarstjórnarmála, sbr. 2. mgr. 19. gr. sveitarstjórnarlaga.
13. gr. Ályktunarhæfi og atkvæðagreiðsla.
Bæjarstjórn getur enga ályktun gert nema meira en helmingur bæjarfulltrúa sé viðstaddur á fundi.
Á bæjarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu. Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og á móti fellur það en við kosningar ræður hlutkesti.
14. gr. Tvær umræður í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn afgreiðir mál að jafnaði við eina umræðu. Þó skal hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili um eftirtalin málefni:
- Samþykktir og aðrar reglur sem samkvæmt lögum eiga að hljóta staðfestingu ráðherra.
- Staðfestingu ársreiknings.
- Stefnumarkandi áætlanir sem gilda eiga til lengri tíma og taka til bæjarins í heild eða meiri hluta hans.
- Tillögu um sameiningu við annað sveitarfélag skv. 2. mgr. 120. gr. sveitarstjórnarlaga.
Þá skal bæjarstjórn hafa tvær umræður, með a.m.k. tveggja vikna millibili, um fjárhagsáætlanir bæjarins skv. 62. gr. sveitarstjórnarlaga. Ákvæði þetta gildir þó ekki um samþykkt viðauka við fjárhagsáætlanir.
15. gr. Fundarsköp – fundarstjórn.
Forseti bæjarstjórnar stýrir fundum hennar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Jafnframt sér hann um að fundargerðir séu skipulega færðar í gerðabók bæjarstjórnar og að allar ályktanir og afgreiðslur séu rétt og nákvæmlega bókaðar, svo og hverja afgreiðslu þær hljóta.
Forseti úrskurðar um skilning á fundarsköpum samkvæmt samþykkt þessari, en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarstjórnar. Forseti sér um að allt fari skipulega og löglega fram á bæjarstjórnarfundum.
16. gr. Fundarsköp – vald forseta.
Bæjarfulltrúum er skylt að lúta valdi forseta bæjarstjórnar í hvívetna að því er varðar fundarsköp og góða reglu.
Beri bæjarfulltrúi aðra menn brigslum eða víki hann verulega frá umræðuefninu skal forseti víta hann. Forseti getur lagt til við bæjarstjórn að bæjarfulltrúi sem víttur hefur verið tvisvar á sama fundi verði sviptur málfrelsi á þeim fundi. Skal slík tillaga afgreidd umræðulaust.
Hlýðnist bæjarfulltrúi ekki úrskurði forseta eða bæjarstjórnar eða ef óregla kemur upp á fundi skal forseti gera fundarhlé, fresta fundi eða slíta fundi ef nauðsyn krefur.
Raski áheyrandi fundarfriði getur forseti vísað honum úr fundarsal.
Leyfi forseta þarf til að taka myndir og hljóðrita umræður á bæjarstjórnarfundum.
17. gr. Fundarsköp – afgreiðsla mála.
Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í bæjarstjórn í þeirri röð sem þau eru á dagskrá nema forseti eða bæjarstjórn ákveði annað. Forseti getur ákveðið að tiltekið mál í fundargerð sem er á dagskrá verði gert að sérstökum dagskrárlið á fundinum.
Heimilt er að taka til meðferðar á bæjarstjórnarfundi mál sem ekki hefur verið á dagskrá enda samþykki 2/3 viðstaddra bæjarfulltrúa slíkt afbrigði.
18. gr. Fundarsköp – málfrelsi.
Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjarstjórnar. Bæjarfulltrúi sem taka vill til máls skal óska heimildar forseta. Að jafnaði skulu bæjarfulltrúar taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Víkja má frá þeirri reglu ef um er að ræða bæjarstjóra, framsögumann í máli eða bæjarfulltrúa sem óskar að gera stutta athugasemd, bera af sér ámæli eða koma leiðréttingu á framfæri. Hafi tveir eða fleiri bæjarfulltrúar kvatt sér hljóðs samtímis ákveður forseti í hvaða röð þeir skuli tala. Bæjarfulltrúi skal flytja mál sitt úr ræðustól nema forseti leyfi annað.
Bæjarstjóri skal sitja fundi bæjarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt en hann hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn getur heimilað einstaklingi utan bæjarstjórnar að taka til máls á bæjarstjórnarfundi.
19. gr. Fundarsköp – umræður á fundi og bókanir.
Bæjarfulltrúi skal beina máli sínu til forseta. Bæjarfulltrúi skal ávarpa einstaka bæjarfulltrúa með fullu nafni. Þegar til umræðu er fundargerð skal bæjarfulltrúi taka fram hvaða lið/liði fundargerðarinnar hann óskar að ræða.
Bæjarfulltrúi má tala þrisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó bæjarfulltrúa að taka oftar til máls til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd um fundarstjórn forseta. Bæjarstjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögumaður (talsmaður flutningsmanna) mega þó tala a.m.k. þrisvar við hverja umræðu máls. Bæjarstjóri hefur óbundið málfrelsi.
Bæjarfulltrúi á rétt á að fá bókaða í fundargerð stutta athugasemd um afstöðu sína til þeirra mála sem til umræðu eru í bæjarstjórn og skal hún lögð fram skriflega.
Ekki má bæjarfulltrúi lesa upp prentað mál við umræður í bæjarstjórn nema með leyfi forseta.
20. gr. Fundarsköp – ræðutími.
Telji forseti umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt til að ræðutími hvers bæjarfulltrúa verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver bæjarfulltrúi getur og borið fram slíkar tillögur. Bæjarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna án umræðna. Ekki má þó takmarka umræðu um mál svo að hún standi skemur en tvær klukkustundir ef einhver bæjarfulltrúi kveður sér hljóðs. Umræður um fjárhagsáætlun eru ekki háðar ákvæðum greinar þessarar.
21. gr. Fundarsköp – tillögur og afgreiðsla.
Bæjarfulltrúi getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar ef forseti óskar. Forseti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu í samræmi við almennar reglur um fundarsköp.
Mál er afgreitt í bæjarstjórn með því að samþykkja það eða fella það, vísa því frá bæjarstjórn eða vísa því til afgreiðslu bæjarráðs, annarrar nefndar, ráðs eða stjórnar eða bæjarstjóra. Máli sem bæjarstjórn ber að lögum að afgreiða verður þó eigi vísað til afgreiðslu annarra. Bæjarstjórn er heimilt að fresta afgreiðslu máls nema um sé að ræða mál sem að lögum ber að afgreiða fyrir tiltekinn tíma.
Forseti sker úr því hvernig atkvæðagreiðslum um tillögur skuli hagað.
22. gr. Fundarsköp – atkvæðagreiðsla.
Atkvæðagreiðsla á bæjarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Forseti biður þá bæjarfulltrúa sem samþykkja mál að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar forseti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir forseti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar.
Ef mál er svo vaxið að forseti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð.
Forseti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber forseta að láta fara fram nafnakall ef a.m.k. þriðjungur bæjarfulltrúa óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá bæjarfulltrúa í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða bæjarfulltrúi greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal forseti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar bæjarfulltrúi, þegar forseti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með máli eða móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði, en slík afstaða telst þó þátttaka í atkvæðagreiðslu.
Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri og leynilegri atkvæðagreiðslu ef bæjarfulltrúi óskar og bæjarstjórn samþykkir.
23. gr. Fundarsköp – kosningar.
Kosningar sem fara fram í bæjarstjórn, skv. 43. gr. sveitarstjórnarlaga, skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar sé þess óskað. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við kjör forseta bæjarstjórnar. Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar.
Bæjarstjórn ber að hafa í huga ákvæði 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga varðandi kynjahlutfall.
24. gr. Ritun og birting fundargerða.
Fundargerðir bæjarstjórnar eru skráðar með rafrænum hætti. Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn og nöfn viðstaddra bæjarfulltrúa, varamanna og fyrir hverja þeir sitja og eftir atvikum þeirra annarra sem fundinn sátu. Geta skal þess hvort fundarmaður hafi tekið þátt í fundi með rafrænum hætti. Skrá skal þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Þegar lagðar eru fram fundargerðir nefnda nægir að skrá í fundargerð bæjarstjórnar um hvaða nefndir er að ræða, dagsetningu fundargerða og fjölda töluliða.
Um ritun fundargerða bæjarstjórnar skal að öðru leyti farið eftir leiðbeiningum ráðuneytis sveitarstjórnarmála um ritun fundargerða sveitarstjórna skv. 2. mgr. 19. gr. sveitarstjórnarlaga.
Fundargerðir bæjarstjórnar skulu birtar á vef Garðabæjar að fundi loknum enda standi reglur um þagnarskyldu því ekki í vegi.
25. gr. Hæfi til þátttöku í meðferð og afgreiðslu einstakra mála.
Um hæfi bæjarfulltrúa, nefndarfulltrúa og starfsmanna bæjarins til þátttöku í meðferð eða afgreiðslu mála þar sem á, eða til greina kemur, að taka stjórnvaldsákvörðun skv. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, gilda ákvæði stjórnsýslulaga sé ekki öðruvísi ákveðið í sveitarstjórnarlögum. Viðkomandi telst þó aðeins vanhæfur sé hann eða hafi verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða öðrum lið til hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ættleiðingar. Þá verður starfsmaður bæjarins ekki vanhæfur vegna vanhæfis yfirmanns ef eðli máls eða uppbygging stjórnkerfis bæjarins þykir ekki gefa tilefni til slíks.
Í öðrum tilvikum en skv. 1. mgr. ber bæjarfulltrúa, nefndarfulltrúa eða starfsmanni bæjarins að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af. Þessi regla tekur einnig til gerðar samninga fyrir hönd bæjarins.
Að öðru leyti vísast til 20. gr. sveitarstjórnarlaga.
26. gr. Varamenn í bæjarstjórn.
Varamenn taka sæti í bæjarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast.
Ef tveir eða fleiri flokkar eða framboðslistar til bæjarstjórnar leggja í sameiningu fram tillögu að lista í bæjarstjórn geta þeir komið sér saman um að varamenn á listanum, sem eru þar fulltrúar sama flokks eða framboðslista og sá aðalmaður í nefnd sem um ræðir, taki sæti hans í bæjarstjórn í forföllum aðalmanns, í þeirri röð sem þeir voru kosnir án tillits til þess hvar þeir annars eru í röð varamanna. Sé enginn úr hópi varamanna viðkomandi lista í sama flokki eða tilheyri sama framboðslista og aðalmaður tilheyrði þegar kosning í nefnd fór fram taka varamenn af listanum sæti eftir venjulegum reglum.
Yfirlýsingu um samkomulag skv. 2. mgr. skal leggja fram á fyrsta bæjarstjórnarfundi eftir að nefndarkosning fór fram og gildir hún til loka kjörtímabils eða þar til kjörið er í nefnd að nýju.
IV. KAFLI Réttindi og skyldur bæjarfulltrúa.
27. gr. Skyldur bæjarfulltrúa.
Bæjarfulltrúa ber skylda til að taka þátt í öllum bæjarstjórnarfundum og fundum í nefndum og ráðum sem hann hefur verið kjörinn til nema lögmæt forföll hamli.
Aðal- og varamönnum í bæjarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum bæjarins, sem og til annarra trúnaðarstarfa á vegum bæjarins. Sá sem verið hefur forseti heilt kjörtímabil eða lengur eða gegnt ákveðnu starfi innan bæjarstjórnar jafnlangan tíma eða lengur getur skorast undan kosningu til þess starfs jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið með höndum. Ósk um undanþágu skal sett fram áður en kjör í viðkomandi nefnd eða trúnaðarstarf fer fram.
Hverjum bæjarfulltrúa er skylt að inna af hendi störf sem bæjarstjórn felur honum og varða verkefni bæjarstjórnarinnar.
Bæjarfulltrúar skulu gæta trúnaðar um það sem þeir verða áskynja í starfi sínu og leynt á að fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.
28. gr. Réttur bæjarfulltrúa.
Bæjarfulltrúar eru sjálfstæðir í störfum sínum. Þeir eru einungis bundnir af lögum og eigin sannfæringu um afstöðu til einstakra mála.
Bæjarfulltrúi á rétt á að tekið verði á dagskrá bæjarstjórnarfundar hvert það málefni sem sérstaklega varðar hagsmuni bæjarins eða verkefni hans.
Mál sem ekki er tilgreint á boðaðri dagskrá bæjarstjórnarfundar verður þó ekki tekið til afgreiðslu á viðkomandi fundi án samþykkis 2/3 hluta fundarmanna.
Bæjarfulltrúar hafa málfrelsi á fundum bæjarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í fundarsköpum bæjarstjórnar. Þeir hafa tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjarstjórnar.
Vilji bæjarfulltrúi ekki una úrskurði forseta um stjórn fundar og fundarsköp getur hann skotið úrskurðinum til bæjarstjórnar sem sker úr án umræðna.
29. gr. Aðgangur að gögnum.
Vegna starfa sinna í bæjarstjórn á sérhver bæjarfulltrúi rétt á að kynna sér gögn og upplýsingar sem fyrir liggja í stjórnsýslu bæjarins og varða málefni sem komið geta til umfjöllunar í bæjarstjórn.
Bæjarfulltrúi skal eiga eðlilegan aðgang að skrifstofu og stofnunum bæjarins í þeim tilgangi að kynna sér starfsemi bæjarins og rekstur. Umbeðin gögn skulu afhent eins fljótt og kostur er.
Bæjarfulltrúi skal beina beiðni um gögn til bæjarstjóra eða bæjarritara sem veita honum afrit af gögnum og upplýsingum.
Séu gögn viðamikil eða undanþegin upplýsingarétti almennings er heimilt að ákveða að afhending gagna fari fram á bæjarskrifstofu í tiltekinn tíma, en að gögn verði ekki afhent utan bæjarskrifstofunnar.
Varði málefni viðkvæma persónulega hagi einstaklings sem ekki er til umfjöllunar í bæjarstjórn er heimilt að hafna því að afhenda gögn og upplýsingar.
30. gr. Siðareglur og góðir starfshættir.
Bæjarfulltrúi skal í störfum sínum fara eftir þeim siðareglum sem bæjarstjórn setur sér, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.
31. gr. Lausn frá störfum.
Telji bæjarfulltrúi sig ekki geta gegnt skyldum í bæjarstjórn án óhæfilegs álags getur hann óskað eftir því við bæjarstjórn að hún létti af honum störfum eða veiti honum lausn úr bæjarstjórn um tiltekinn fyrirfram ákveðinn tíma eða til loka kjörtímabils.
Þegar bæjarfulltrúi flytur úr bænum um stundarsakir má bæjarstjórn ákveða, að ósk hans, að hann skuli víkja úr bæjarstjórn þar til hann tekur aftur búsetu í bænum. Slík ákvörðun skal tekin áður en bæjarfulltrúi flytur um stundarsakir. Sé ekki tekin ákvörðun samkvæmt þessari málsgrein missir bæjarfulltrúi kjörgengi við skráningu lögheimilis í öðru sveitarfélagi og getur ekki tekið aftur sæti í sveitarstjórn á kjörtímabilinu taki hann aftur búsetu í sveitarfélaginu.
Missi bæjarfulltrúi kjörgengi skal hann víkja úr bæjarstjórn. Ef bæjarfulltrúi missir fjárforræði skal bæjarstjórn veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.
32. gr. Boðun varamanna.
Þegar aðalmaður er vanhæfur til meðferðar máls í bæjarstjórn skal hann boða varamann sinn til meðferðar þess og afgreiðslu. Að afgreiðslu máls lokinni tekur aðalmaður sæti sitt á viðkomandi fundi á ný. Verði innköllun varamanns ekki við komið getur vanhæfur bæjarfulltrúi krafist þess að umræðu og afgreiðslu máls verði frestað til næsta fundar. Frestun nær þó ekki fram að ganga ef 2/3 hlutar viðstaddra bæjarfulltrúa greiða atkvæði gegn frestun eða ef frestun hefur í för með sér að gengið sé gegn lögbundnum afgreiðslutíma máls.
Þegar aðalmaður getur ekki mætt til fundar eða þarf að víkja af fundi af heilsufarsástæðum eða af öðrum óviðráðanlegum ástæðum tekur varamaður hans sæti í bæjarstjórn á þeim fundi. Aðalmaður skal boða varamann í sinn stað. Forföll samkvæmt þessari málsgrein taka ávallt til viðkomandi fundar í heild eða til loka fundar sé um það að ræða.
Þegar fyrirséð er að aðalmaður í bæjarstjórn mun taka hlé frá störfum vegna atvika sem greinir í 2. mgr. í a.m.k. einn mánuð skal varamaður hans taka sæti í bæjarstjórninni frá og með næsta fundi, enda séu þá ástæður forfalla enn til staðar. Þegar forföllum lýkur tekur aðalmaður sæti sitt að nýju frá og með næsta fundi.
Þegar aðalmaður fellur frá, missir kjörgengi eða fær lausn frá starfi í bæjarstjórn skal varamaður hans taka sæti í bæjarstjórn frá og með næsta fundi.
33. gr. Þóknun o.fl.
Bæjarfulltrúi skal fá hæfilega þóknun frá bænum fyrir störf sín í bæjarstjórn. Takist bæjarfulltrúi á hendur ferð á vegum bæjarins samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.
Bæjarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr.
Bæjarfulltrúi má ekki afsala sér greiðslum sem honum eru ákveðnar á grundvelli þessarar greinar.
34. gr. Réttindi og skyldur varamanna.
Ákvæði þessa kafla um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa eiga einnig við um varamenn þegar þeir taka sæti í bæjarstjórn.
V. KAFLI Bæjarráð.
35. gr. Kosning bæjarráðs.
Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum bæjarstjórnarkosningum kjósa fimm bæjarfulltrúa og jafnmarga varamenn í bæjarráð til eins árs. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn og varamenn í bæjarráð, sbr. 36. gr. sveitarstjórnarlaga. Aðal- og varamenn af sama framboðslista og hinn kjörni bæjarráðsmaður skulu vera varamenn hans í þeirri röð sem þeir skipuðu listann þegar kosið var til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn kýs formann og varaformann bæjarráðs úr hópi kjörinna bæjarráðsmanna.
Bæjarráð getur ráðið sér fundarritara utan bæjarráðs.
Kosning í bæjarráð skal vera leynileg og bundin hlutfallskosning sé þess óskað.
Í sumarleyfi bæjarstjórnar má kalla aðra frambjóðendur af sama framboðslista sem varamenn í þeirri röð sem þeir skipuðu listann.
Bæjarstjóri situr fundi bæjarráðs með málfrelsi og tillögurétt en atkvæðisrétt hefur hann því aðeins að hann sé bæjarfulltrúi og kjörinn í bæjarráð.
36. gr. Fundartími bæjarráðs.
Bæjarráð skal að jafnaði halda fund einu sinni í viku á þriðjudögum kl. 8.00. Aukafundi skal halda ef bæjarstjóri, formaður bæjarráðs eða a.m.k. tveir bæjarráðsmenn óska þess.
37. gr. Boðun funda bæjarráðs.
Bæjarstjóri undirbýr bæjarráðsfundi. Bæjarstjóri sér um að bæjarráð sé boðað til fundar með skriflegu eða rafrænu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. tveimur sólarhringum fyrir fund.
Geti bæjarráðsmaður ekki sótt fund skal hann boða varamann í sinn stað. Um varamenn og boðun þeirra á fundi bæjarráðs gilda ákvæði 32. gr. samþykktar þessarar eftir því sem við á.
38. gr. Fundir bæjarráðs.
Formaður bæjarráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarráðsins.
Heimilt er að taka mál til meðferðar í bæjarráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls til næsta fundar ef einhver bæjarráðsmanna óskar þess.
Starfsmaður bæjarráðs annast fundarritun. Um ritun fundargerða bæjarráðs gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar.
Bæjarráðsfundir skulu haldnir fyrir luktum dyrum og er óheimilt að greina frá ummælum einstakra fundarmanna á fundum.
Skylt er starfsmönnum bæjarins að sitja fundi bæjarráðs ef þess er óskað. Heimilt er að boða aðra á fundi bæjarráðs til viðræðna um tiltekin mál.
39. gr. Áheyrnarfulltrúar í bæjarráði.
Framboðslisti sem á fulltrúa í bæjarstjórn en ekki í bæjarráði má tilnefna bæjarfulltrúa til setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt. Framboðum sem eiga áheyrnarfulltrúa í bæjarráði er heimilt að tilnefna varamann í forföllum aðalmanns. Ákvæði um þóknun, sbr. 33. gr., eiga einnig við um áheyrnarfulltrúa.
Áheyrnarfulltrúi í bæjarráði skal vera aðalmaður í bæjarstjórn. Aðal- og varamenn af sama framboðslista og áheyrnarfulltrúinn skulu vera varaáheyrnarfulltrúar hans í þeirri röð sem þeir skipuðu listann þegar kosið var til bæjarstjórnar.
Um áheyrnarfulltrúa á fundum bæjarráðs gilda sömu þagnarskylduákvæði laga og eiga við um aðra bæjarráðsfulltrúa.
40. gr. Verkefni bæjarráðs.
Bæjarráð fer ásamt bæjarstjóra með framkvæmdastjórn og fjármálastjórn bæjarins að því leyti sem slík stjórn er ekki öðrum falin.
Bæjarráð hefur eftirlit með stjórnsýslu bæjarins og fjármálastjórn hans, semur drög að fjárhagsáætlun og viðaukum við hana og leggur þau fyrir bæjarstjórn í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga.
Bæjarráð ákveður skiptingu og ráðstöfun fjár sem ætlað er til einstakra mála samkvæmt fjárhagsáætlun.
Bæjarráð sér um að ársreikningar bæjarins séu samdir reglum samkvæmt og lagðir fyrir bæjarstjórn til meðferðar og afgreiðslu.
Meðan bæjarstjórn er í sumarleyfi fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella enda sé eigi ágreiningur innan ráðsins eða við bæjarstjóra um ákvörðunina.
41. gr. Heimild bæjarráðs til fullnaðarákvörðunar.
Bæjarráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um afgreiðslu einstakra mála sem það fær til meðferðar. Bæjarráði er þó heimil fullnaðarafgreiðsla mála sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs eða stofnana hans, enda sé ekki ágreiningur milli bæjarráðsmanna eða við bæjarstjóra um slíka afgreiðslu og ákvörðun rúmast innan fjárhagsáætlunar til eins árs og áætlunar til fjögurra ára, eigi hún við. Bæjarráð ákveður skiptingu og ráðstöfun fjár sem ætlað er til einstakra málaflokka samkvæmt fjárhagsáætlun, svo sem til gatnagerðar, nýbygginga og óvissra útgjalda.
Þá getur bæjarstjórn falið bæjarráði fullnaðarafgreiðslu mála nema lög mæli á annan veg.
Verði ágreiningur um ákvörðun í bæjarráði telst málið ekki til lykta leitt fyrr en það hefur hlotið staðfestingu á næsta reglulega fundi sveitarstjórnar.
Bæjarráð úrskurðar um heimild til endurupptöku mála sem hljóta afgreiðslu samkvæmt þessari grein með hliðsjón af 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
VI. KAFLI Fastanefndir, ráð og stjórnir aðrar en bæjarráð.
42. gr. Kosning í fastanefndir og kjörtímabil.
Bæjarstjórn kýs aðal- og varamenn í nefndir eftir því sem fyrir er mælt í lögum og samþykkt þessari. Slíkar nefndir teljast fastanefndir bæjarstjórnar.
Kjörtímabil fastanefnda er hið sama og bæjarstjórnar nema annað leiði af lögum eða samþykkt þessari.
Að loknum bæjarstjórnarkosningum halda fastanefndir þó umboði sínu þar til nýkjörin bæjarstjórn hefur kjörið nýja nefnd í þeirra stað en með sömu takmörkunum valdheimilda og fyrri bæjarstjórn sætti að afloknum kosningum, sbr. 12. gr. og 2. mgr. 37. gr. sveitarstjórnarlaga.
43. gr. Kosning og kjörgengi.
Kosningar í fastanefndir bæjarstjórnar, nefndir fyrir hluta bæjarins, nefndir til að fara með einstök verkefni eða málaflokka og aðrar nefndir og stjórnir sem bærinn á aðild að, skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef þess er óskað. Framkvæmd kosninga skal þá vera í samræmi við ákvæði 44. og 45. gr. sveitarstjórnarlaga.
Ef ekki er kosið hlutfallskosningu til nefndar, sbr. 1. mgr. 43. gr. sveitarstjórnarlaga, skal bæjarstjórn gæta þess að fullnægja kröfum um kynjahlutfall skv. 2. tölul. 44. gr. laganna við skipun í viðkomandi nefnd.
Þeir einir eru kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir sem hafa kosningarrétt í bænum nema annað leiði af lögum, sbr. m.a. 2. mgr. 39. gr. sveitarstjórnarlaga.
Starfsmenn fyrirtækja og stofnana bæjarins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana sem þeir starfa hjá. Bæjarstjórn getur þó ákveðið að víkja frá þessu ef málefni vinnuveitanda eru óverulegur þáttur í starfi viðkomandi nefndar og starfið er ekki þess eðlis að hætta sé á hagsmunaárekstrum vegna nefndarsetu.
44. gr. Fullnaðarafgreiðsla mála.
Í því skyni að stuðla að hagræðingu, skilvirkni og hraðari málsmeðferð getur bæjarstjórn ákveðið með viðauka við samþykkt þessa að fela nefnd, ráði eða stjórn á vegum Garðabæjar fullnaðarafgreiðslu mála sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs nema lög eða eðli máls mæli sérstaklega gegn því. Slík mál mega ekki varða fjárhag bæjarins umfram það sem kveðið er á um í fjárhagsáætlun.
Á sama hátt og með sömu skilyrðum og getur í 1. mgr. er bæjarstjórn heimilt að fela öðrum aðilum innan stjórnsýslu Garðabæjar fullnaðarafgreiðslu mála. Bæjarstjórn, bæjarráð eða hlutaðeigandi nefnd skal hafa eftirlit með afgreiðslu mála samkvæmt þessari málsgrein og kalla eftir reglulegum skýrslum um ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli hennar.
Sá aðili sem fengið hefur framselt vald til fullnaðarafgreiðslu skv. 2. mgr., eða þriðjungur fulltrúa, ef um nefnd, ráð eða stjórn er að ræða, sbr. 1. mgr., getur ávallt óskað eftir því að bæjarstjórn, bæjarráð eða viðkomandi nefnd, skv. samþykktum um stjórn Garðabæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, taki ákvörðun í máli.
Við birtingu ákvarðana skal kynnt að um fullnaðarafgreiðslu sé að ræða á grundvelli heimildar í 42. gr. sveitarstjórnarlaga og samþykktar þessarar. Að öðru leyti skal gæta að ákvæðum 20. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Þegar bæjarstjórn neytir heimildar skv. 1. mgr. skal jafnframt kveðið á um það hvernig fara skuli með endurupptöku mála sem hljóta afgreiðslu samkvæmt þessum ákvæðum.
45. gr. Endurupptaka.
Að uppgefnum skilyrðum 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, um endurupptöku, á aðili máls rétt á því að mál hans verði tekið fyrir á ný. Beiðni um endurupptöku skal beint til bæjarráðs.
46. gr. Afgreiðsla á fundargerðum.
Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna bæjarins skulu lagðar fyrir bæjarstjórn til kynningar.
Þær ályktanir eða tillögur í fundargerðum sem þarfnast staðfestingar bæjarráðs eða bæjarstjórnar eru lagðar fyrir sem sérstök mál og eru afgreidd með formlegum hætti.
Ályktun nefndar sem hefur fjárútlát í för með sér skal ætíð send bæjarráði í sérstöku erindi.
47. gr. Fundir nefnda og ályktunarhæfi.
Fundir nefnda skulu almennt haldnir fyrir luktum dyrum og er óheimilt að greina opinberlega frá ummælum á nefndarfundum sem fram koma hjá einstökum nefndarmönnum eða öðrum sem fundinn sitja. Nefnd getur kvatt á sinn fund einstaka starfsmenn Garðabæjar. Enn fremur getur nefnd boðið aðila að koma á sinn fund til viðræðna um tiltekin mál.
Nefndum er skylt að verða við ósk nefndarmanns um opinn fund, að öllu leyti eða hluta, ef tillaga um slíkt er samþykkt mótatkvæðalaust á næsta nefndarfundi á undan, svo fremi sem lög eða eðli máls hamla því ekki.
Ósk um opinn fund skal beina til bæjarstjóra og formanns nefndar. Viðkomandi nefnd sker úr um hvort mál á dagskrá fundar heimila opinn fund.
Um fundi nefnda, ályktunarhæfi og atkvæðagreiðslur gilda ákvæði III. kafla samþykktar þessarar og sveitarstjórnarlaga eftir því sem við getur átt.
48. gr. Fundarstjórn og fundargerðir.
Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum bæjarins eftir því sem við á.
Nefndir, ráð og stjórnir bæjarins skulu halda gerðabækur. Nefnd getur ráðið sér sérstakan fundarritara utan nefndar. Um ritun fundargerða, nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar, sbr. 24. gr. samþykktar þessarar.
49. gr. Varamenn.
Varamenn taka sæti í nefndum í þeirri röð sem þeir eru kosnir.
Þegar kosið er til nefndar hlutbundinni listakosningu eða listi hefur verið sjálfkjörinn og aðalmaður í nefnd er forfallaður taka varamenn þess lista sem aðalmaður er kjörinn af sæti í nefnd í þeirri röð sem þeir skipa listann eftir að endurröðun á hann hefur farið fram skv. 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga.
Ef tveir eða fleiri flokkar eða framboðslistar til bæjarstjórnar leggja í sameiningu fram tillögu að lista við hlutbundna kosningu í nefnd bæjarstjórnar geta þeir komið sér saman um að varamenn á listanum vegna nefndarkosningarinnar, sem eru þar fulltrúar sama flokks eða framboðslista og sá aðalmaður í nefnd sem um ræðir, taki sæti hans í nefndinni í þeirri röð sem þeir voru kosnir án tillits til þess hvar þeir annars eru í röð varamanna. Sé enginn úr hópi varamanna viðkomandi lista í sama flokki eða tilheyri sama framboðslista og aðalmaður tilheyrði þegar kosning í nefnd fór fram taka varamenn af listanum sæti eftir venjulegum reglum.
Yfirlýsingu um samkomulag skv. 3. mgr. skal leggja fram á fyrsta bæjarstjórnarfundi eftir að nefndarkosning fór fram og gildir hún til loka kjörtímabils eða þar til kjörið er í nefnd að nýju.
50. gr. Boðun varamanna.
Um boðun varamanna á nefndarfundi gilda ákvæði 32. gr. samþykktar þessarar eftir því sem við á.
Þegar aðalmaður í nefnd fellur frá, missir kjörgengi, fær lausn frá nefndarstarfi eða forfallast varanlega frá því að sitja í nefnd tekur varamaður hans sæti í nefndinni nema bæjarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju, ella skipar bæjarstjórn nýjan varamann til setu í nefndinni.
Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar um varamenn taka einnig til varaáheyrnarfulltrúa eftir því sem við getur átt.
51. gr. Lausn frá nefndarsetu og endurskipun.
Fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum bæjarins, sem ekki eru aðal- eða varamenn í bæjarstjórn, er heimilt að segja af sér nefndastörfum hvenær sem er á kjörtímabili. Aðrir fulltrúar geta óskað eftir því við bæjarstjórn að þeim verði veitt lausn tímabundið eða út kjörtímabilið og metur hún þá hvort skilyrði til þess séu fyrir hendi.
Bæjarstjórn getur hvenær sem er á kjörtímabili ákveðið að skipta um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sem hún kýs eða skipar ef ekki er um það ágreiningur innan bæjarstjórnar eða málefnalegar ástæður mæla með slíkri breytingu, svo sem ef nefndarmaður án lögmætra forfalla mætir ekki á fundi nefndar eða brýtur gegn þagnarskyldu. Enn fremur getur bæjarfulltrúi krafist þess að nefnd verði endurskipuð telji hann ástæðu til. Bæjarstjórn er þó heimilt að hafna slíkri beiðni ef hún er bersýnilega tilefnislaus að því tilskildu að 2/3 fundarmanna greiði atkvæði með tillögu um höfnun. Við framangreindar breytingar á skipan fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum bæjarins skal kjósa alla fulltrúa að nýju og fer þá um kjör þeirra skv. 1. mgr. 43. gr. sveitarstjórnarlaga nema enginn ágreiningur sé innan bæjarstjórnar um breytingarnar.
Breytingar á nefndaskipan samkvæmt þessari grein skulu fullnægja skilyrðum 2. tölul. 44. gr. og 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga um kynjahlutföll.
52. gr. Áheyrnarfulltrúar í nefndum.
Framboðslisti sem fulltrúa á í bæjarstjórn en ekki í fjölskylduráði, skipulagsnefnd og skólanefnd grunnskóla má tilnefna áheyrnarfulltrúa til setu í þessum nefndum með málfrelsi og tillögurétt. Um áheyrnarfulltrúa á fundum nefnda gilda sömu þagnarskylduákvæði laga og eiga við um aðra nefndarmenn. Áheyrnarfulltrúi og varaáheyrnarfulltrúi skulu fullnægja kjörgengisskilyrðum í viðkomandi nefnd.
53. gr. Þóknun.
Bæjarstjórn er skylt að ákveða kjörnum fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum bæjarins hæfilega þóknun fyrir þau störf samkvæmt mati bæjarstjórnar í samræmi við reglur sem hún setur. Bæjarstjórn er með sama hætti heimilt að ákveða að greiða áheyrnarfulltrúum þóknun fyrir störf þeirra í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum bæjarins.
54. gr. Önnur réttindi og skyldur.
Nefndarmönnum er skylt að sækja fundi nefndar.
Ákvæði III. og IV. kafla samþykktar þessarar gilda að öðru leyti um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum bæjarins eftir því sem við á. Réttindi takmarkast þó eftir eðli máls við það sem fulltrúum er þörf á vegna starfa í viðkomandi nefnd.
55. gr. Aðrar nefndir, ráð og stjórnir sem bærinn á aðild að.
Bæjarstjórn kýs fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir sem bærinn á aðild að samkvæmt viðkomandi lögum eða samþykktum. Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar eiga við um slíka fulltrúa eftir því sem við getur átt.
Að því leyti sem nefnd, ráð eða stjórn lögaðila, sem bæjarstjórn kýs fulltrúa til skv. 1. mgr., fer með framkvæmd eða ábyrgð á verkefni sem sveitarfélaginu væri ekki sjálfu heimilt að sinna, þá er fulltrúi bæjarins í viðkomandi nefnd, ráði eða stjórn ekki bundinn af fyrirmælum bæjarstjórnarinnar um þau störf. Hið sama á við að því leyti sem það leiðir af lögum sem gilda um rekstur og starfsemi viðkomandi lögaðila.
56. gr. Fastanefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem bærinn á aðild að.
Bæjarstjórn kýs í eftirtaldar nefndir, ráð og stjórnir til að fara með tiltekin málefni eftir því sem lög eða reglur mæla fyrir um:
-
Til eins árs. Á fundi í júní ár hvert:
- Bæjarráð. Fimm bæjarfulltrúar sem aðalmenn og jafnmargir til vara samkvæmt 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
-
Til tveggja ára. Á fyrsta fundi í júní að afloknum bæjarstjórnarkosningum og tveimur árum síðar kýs bæjarstjórn fulltrúa bæjarins í:
- Stjórn Sorpu bs. Einn aðalmaður og annar til vara samkvæmt samþykktum byggðasamlagsins.
- Stjórn Strætó bs. Einn aðalmaður og annar til vara samkvæmt samþykktum byggðasamlagsins.
-
Til fjögurra ára. Á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum bæjarstjórnarkosningum skulu eftirtaldar fastanefndir kosnar:
- Fjölskylduráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara samkvæmt 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Fjölskylduráð skal annast störf þau sem barnaverndarnefnd og jafnréttisnefnd eru falin samkvæmt lögum nr. 80/2002 um barnavernd og lögum nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
- Íþrótta- og tómstundaráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara samkvæmt reglugerð samþykktri í bæjarstjórn 26. nóvember 1987.
- Yfirkjörstjórn Garðabæjar. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara samkvæmt 17. gr. kosningalaga nr. 112/2021.
- Leikskólanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara samkvæmt 4. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008.
- Menningar- og safnanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar frá 13. júní 2002 og 8. gr. bókasafnalaga nr. 150/2012.
- Skipulagsnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara samkvæmt 6. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
- Skólanefnd grunnskóla. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara samkvæmt 6. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008.
- Skólanefnd tónlistarskóla. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara samkvæmt 3. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985.
- Umhverfisnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar frá 28. janúar 1988.
- Stjórn Hönnunarsafns Íslands. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara samkvæmt stofnskrá fyrir Hönnunarsafn Íslands sem samþykkt var í bæjarstjórn Garðabæjar 7. nóvember 2013 og staðfest af mennta- og menningarmálaráðherra 5. febrúar 2014.
-
Til fjögurra ára. Á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum bæjarstjórnarkosningum kýs bæjarstjórn fulltrúa bæjarins í eftirtaldar samstarfsnefndir:
- Almannavarnanefnd. Einn aðalmaður og annar til vara samkvæmt 9. gr. laga um almannavarnir nr. 82/2008.
- Bláfjallanefnd. Einn aðalmaður og annar til vara samkvæmt samningi aðildarsveitarfélaga.
- Fulltrúaráð Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Fjórir fulltrúar samkvæmt 6. gr. samþykkta samtakanna frá 2. desember 2016.
- Heilbrigðisnefnd. Einn aðalmaður og annar til vara. Bæjarstjórnirnar á svæðinu kjósa sameiginlega fimm aðalmenn og jafnmarga til vara í nefndina samkvæmt 45. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.
- Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara samkvæmt 5. gr. samþykkta um Samband íslenskra sveitarfélaga frá 21. maí 2021.
- Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins. Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara samkvæmt starfsreglum nefndarinnar frá 6. september 2013.
- Stjórn Styrktarsjóðs Garðasóknar. Einn aðalmaður og annar til vara.
- Stjórn Reykjanesfólkvangs. Einn aðalmaður og annar til vara samkvæmt samningi aðildarsveitarfélaga.
- Stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Einn aðalmaður sem er bæjarstjóri og annar til vara úr hópi kjörinna aðalmanna í bæjarstjórn samkvæmt samþykktum samtakanna frá 2. desember 2016.
- Stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Einn aðalmaður sem er bæjarstjóri og annar til vara úr hópi kjörinna aðalmanna í bæjarstjórn samkvæmt samþykktum byggðasamlagsins.
- Öldungaráð. Sjö aðalmenn samkvæmt 2. mgr. 38. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, sbr. 8. gr. laga nr. 37/2018. Sjá einnig 8. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999, sbr. 19. gr. laga nr. 37/2018. Þrír fulltrúar skulu kosnir af sveitarstjórn og þrír fulltrúar tilnefndir af félagi eldri borgara auk eins fulltrúa frá heilsugæslunni.
- Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks. Sex aðalmenn samkvæmt 2. mgr. 42. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, sbr. 10. gr. laga nr. 37/2018. Þrír fulltrúar skulu kosnir af sveitarstjórn og þrír tilnefndir af hagsmunasamtökum fatlaðs fólks.
- Ungmennaráð. Ellefu fulltrúar á aldrinum 14-20 ára í ungmennaráð Garðabæjar að fengnum tilnefningum og skulu þeir eiga lögheimili í Garðabæ, sbr. erindisbréf samþykkt á fundi bæjarstjórnar 7. maí 2015.
-
Til fjögurra ára. Á fundi ári eftir reglulegar bæjarstjórnarkosningar:
- Fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands. Einn aðalmaður og annar til vara samkvæmt 9. gr. laga um Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands nr. 68/1994.
VII. KAFLI Bæjarstjóri og aðrir starfsmenn bæjarins.
57. gr. Ráðning bæjarstjóra.
Bæjarstjórn ræður bæjarstjóra til þess að annast framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar og verkefni bæjarins. Bæjarstjórn skal gera skriflegan ráðningarsamning við bæjarstjóra þar sem starfskjör hans eru ákveðin. Ráðningartími bæjarstjóra skal að jafnaði vera sá sami og kjörtímabil bæjarstjórnar.
58. gr. Hlutverk bæjarstjóra.
Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður annars starfsliðs bæjarins. Hann skal sjá um að stjórnsýsla bæjarins samræmist lögum, samþykktum og viðeigandi fyrirmælum yfirmanna.
Bæjarstjóri skal sitja fundi bæjarstjórnar. Þar hefur hann óbundið málfrelsi, tillögurétt og rétt til bókana en ekki atkvæðisrétt nema hann sé jafnframt kjörinn bæjarfulltrúi. Hann hefur jafnframt rétt til setu á fundum bæjarráðs, nefnda og ráða sem bæjarstjórn skipar.
Bæjarstjóri skal sjá um að fundir bæjarstjórnar, bæjarráðs og annarra nefnda bæjarstjórnar séu vel undirbúnir, m.a. í þeim tilgangi að mál sem þar eru afgreidd séu vel upplýst. Hann sér einnig um að ákvarðanir þær sem teknar eru af hálfu bæjarstjórnar og annarra nefnda komist til framkvæmda hafi bæjarstjórn ekki falið það öðrum.
Bæjarstjóri er prókúruhafi bæjarins. Honum er heimilt að veita öðrum starfsmanni bæjarins prókúru að fengnu samþykki bæjarstjórnar. Prókúruhafar skulu vera fjár síns ráðandi.
Bæjarstjóri undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna bæjarins, lántökur og ábyrgðir, svo og önnur skjöl sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki bæjarstjórnar þarf til.
Bæjarritari gegnir störfum bæjarstjóra í forföllum hans nema bæjarstjórn feli það öðrum.
59. gr. Ráðning í æðstu stjórnunarstöður.
Bæjarstjórn ræður starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður hjá bænum, þ.e. forstöðumenn sviða, og veitir þeim lausn frá starfi. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við starfsmenn í stjórnunarstöðum þar sem meðal annars skal kveðið á um kaup og kjör.
60. gr. Um ráðningu annarra starfsmanna.
Bæjarstjóri ræður aðra starfsmenn bæjarins en þá sem greinir í 59. gr. og veitir þeim lausn frá störfum. Yfirmenn stofnana ráða þó starfsmenn viðkomandi stofnana en ákvarðanir um lausn þeirra starfsmanna frá störfum tekur bæjarstjóri að höfðu samráði við yfirmann viðkomandi stofnunar. Gera skal skriflega ráðningarsamninga við starfsmenn þar sem meðal annars skal kveðið á um kaup og kjör.
61. gr. Framsal bæjarstjórnar til starfsmanna til fullnaðarafgreiðslu mála.
Í því skyni að stuðla að hagræðingu, skilvirkni og hraðari málsmeðferð getur bæjarstjórn ákveðið með viðauka við samþykkt þessa að fela starfsmönnum Garðabæjar fullnaðarafgreiðslu tiltekinna mála sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs nema lög eða eðli máls mæli sérstaklega gegn því, sbr. viðauka II sem birtur er með samþykkt þessari. Slík mál mega ekki varða fjárhag bæjarins umfram það sem kveðið er á um í fjárhagsáætlun. Bæjarstjórn, bæjarráð eða hlutaðeigandi nefnd skal hafa eftirlit með afgreiðslu mála samkvæmt þessari málsgrein og kalla eftir reglulegum skýrslum um ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli hennar.
Sá starfsmaður sem fengið hefur framselt vald til fullnaðarafgreiðslu skv. 1. mgr. getur ávallt farið fram á að bæjarstjórn, bæjarráð eða viðkomandi nefnd samkvæmt samþykkt þessari taki ákvörðun í máli.
Við birtingu ákvarðana skal kynna að um fullnaðarafgreiðslu sé að ræða á grundvelli heimildar í 42. gr. sveitarstjórnarlaga og samþykktar þessarar. Að öðru leyti skal gæta að ákvæðum 20. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Þegar bæjarstjórn neytir heimildar skv. 1. mgr. skal jafnframt kveðið á um það hvernig fara skuli með endurupptöku mála sem hljóta afgreiðslu samkvæmt þessum ákvæðum.
62. gr. Endurupptaka.
Að uppgefnum skilyrðum 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, um endurupptöku, á aðili máls rétt á því að mál hans verði tekið fyrir á ný. Beiðni um endurupptöku skal beint til bæjarráðs.
63. gr. Þagnarskylda starfsmanna.
Starfsmenn bæjarins og aðrir sem bærinn ræður til vinnu við ákveðin verkefni eru bundnir þagnarskyldu um atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt eiga að fara samkvæmt lögum, fyrirmælum yfirboðara eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.
64. gr. Um starfskjör og réttindi starfsmanna.
Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna bæjarins fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og ákvæðum ráðningarsamninga.
VIII. KAFLI Fjármál bæjarins.
65. gr. Fjárstjórnarvald bæjarstjórnar.
Einvörðungu bæjarstjórn getur tekið ákvarðanir um málefni sem varða verulega fjármál bæjarins. Til slíkra málefna teljast m.a. ákvarðanir um eftirtalin atriði séu ekki gerðar beinar undantekningar þar á með lögum:
- staðfestingu ársreiknings,
- fjárhagsáætlun næstkomandi árs,
- fjárhagsáætlun til fjögurra ára,
- viðauka við fjárhagsáætlanir skv. 2. og 3. tölul.,
- lán, ábyrgðir eða aðrar fjárhagslegar skuldbindingar bæjarins,
- sölu eigna bæjarins og annarra réttinda hans,
- álagningu skatta og gjalda,
- ráðningu eða uppsögn endurskoðanda.
66. gr. Afgreiðsla og form fjárhagsáætlunar.
Bæjarstjórn skal á hverju ári afgreiða fjárhagsáætlun fyrir komandi ár og næstu þrjú ár þar á eftir. Bæjarráð leggur samkvæmt 1. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga tillögu um fjárhagsáætlun fyrir bæjarstjórn eigi síðar en 1. nóvember ár hvert. Bæjarstjórn skal fjalla um hana á tveimur fundum sem fram skulu fara með minnst tveggja vikna millibili. Að lokinni umræðu bæjarstjórnar skal afgreiða tillöguna, þó ekki síðar en 15. desember ár hvert.
Fjárhagsáætlanir skulu gefa glögga mynd af rekstri bæjarins, efnahag og breytingum á handbæru fé. Einnig skal þar koma fram greinargott yfirlit um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjárheimildir bæjarins. Við gerð fjárhagsáætlana skal hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu bæjarsjóðs og stofnana bæjarins við upphaf áætlunartímabilsins.
Bæjarstjórn skal senda ráðuneyti sveitarstjórnarmála fjárhagsáætlun innan fimmtán daga frá afgreiðslu hennar, sbr. 1. mgr. 76. gr. sveitarstjórnarlaga. Sama á við um viðauka við fjárhagsáætlun.
67. gr. Bindandi áhrif ákvörðunar um fjárhagsáætlun ársins.
Ákvörðun sem bæjarstjórn tekur skv. 66. gr. samþykktar þessarar og 62. gr. sveitarstjórnarlaga um fjárhagsáætlun næstkomandi árs er bindandi regla um allar fjárhagslegar ráðstafanir af hálfu bæjarins. Aðrir geta þó ekki byggt sjálfstæðan rétt til fjárframlaga eða annarrar fyrirgreiðslu bæjarins á fjárhagsáætlunum.
Óheimilt er að víkja frá fjárhagsáætlun skv. 1. mgr. nema bæjarstjórn hafi áður samþykkt viðauka við áætlunina. Á þetta við um hvers kyns ákvarðanir, samninga eða aðrar fjárhagslegar ráðstafanir sem hafa í för með sér breytingar á tekjum, útgjöldum, skuldbindingum eða tilfærslur milli liða í fjárhagsáætlun í þegar samþykktri áætlun. Viðauki er ekki gildur nema hann feli einnig í sér útfærða ákvörðun um það hvernig þeim útgjöldum eða tekjulækkun sem gert er ráð fyrir verði mætt. Á það einnig við þótt heildarútgjöld eða heildartekjur breytist ekki vegna samþykktar hans.
Þrátt fyrir 2. mgr. má í undantekningartilvikum gera þær ráðstafanir sem skylt er samkvæmt lögum eða öðrum bindandi réttarreglum án þess að bæjarstjórn hafi áður samþykkt viðauka, enda þoli þær ekki bið. Viðhlítandi heimildar bæjarstjórnar skal þá afla svo fljótt sem auðið er. Skal erindi um slíka heimild lagt fyrir þegar á næsta fundi bæjarstjórnarinnar.
68. gr. Fjármálareglur og viðmið um afkomu sveitarfélagsins.
Bæjarstjórn ber að sjá til þess að rekstri, fjárfestingum og ráðstöfun eigna og sjóða sé þannig hagað á hverjum tíma að bærinn muni til framtíðar geta sinnt skyldubundnum verkefnum sínum, sbr. 64. gr. sveitarstjórnarlaga og reglugerð sem sett er samkvæmt því ákvæði.
69. gr. Ábyrg meðferð fjármuna og heimildir til fjárskuldbindinga.
Bæjarstjórn skal gæta ábyrgðar við meðferð fjármuna bæjarins og varðveita fjármuni með ábyrgum hætti, svo sem á innlánsreikningum fjármálastofnana eða með því að kaupa ríkistryggð verðbréf. Um heimildir til fjárfestinga í hagnaðarskyni fer skv. ákvæðum 65. gr. sveitarstjórnarlaga.
Áður en bæjarstjórn tekur ákvörðun um fjárfestingu, framkvæmd eða aðra skuldbindingu sem nemur hærri fjárhæð en 20% af skatttekjum bæjarins yfirstandandi reikningsár er skylt að gera sérstakt mat á áhrifum hennar á fjárhag bæjarins, sbr. ákvæði 66. gr. sveitarstjórnarlaga.
Um heimildir bæjarins til veðsetninga og að gangast í ábyrgðir fer skv. 68. og 69. gr. sveitarstjórnarlaga.
70. gr. Ársreikningur.
Gera skal ársreikning fyrir bæjarsjóð, stofnanir bæjarins og fyrirtæki hans. Jafnframt skal gera samstæðureikning fyrir bæinn, þ.e. bæjarsjóð, stofnanir hans og fyrirtæki með sjálfstætt reikningshald, sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga. Ársreikningur skal gerður samkvæmt lögum um ársreikninga, reglum settum samkvæmt þeim lögum og sveitarstjórnarlögum, sem og góðri reikningsskilavenju.
Ársreikningur bæjarins skal fullgerður og samþykktur af bæjarráði og tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu í bæjarstjórn fyrir 15. apríl ár hvert.
Bæjarstjórn skal hafa lokið staðfestingu ársreiknings bæjarins, stofnana og fyrirtækja hans eigi síðar en 15. maí ár hvert.
Ársreikning bæjarins ásamt skýrslu endurskoðanda skal senda ráðuneyti sveitarstjórnarmála og Hagstofu Íslands ekki síðar en 20. maí ár hvert.
71. gr. Endurskoðun ársreikninga.
Bæjarstjórn ræður löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endurskoðun ársreikninga hjá bænum. Endurskoðun fer eftir lögum um endurskoðendur, lögum um ársreikninga og alþjóðlegum endurskoðunarstöðlum, sem og fyrirmælum 72. og 73. gr. sveitarstjórnarlaga.
IX. KAFLI
Samvinna við önnur sveitarfélög og samningar um starfrækslu verkefna.
72. gr. Samvinna sveitarfélaga.
Sveitarstjórn er heimilt að eiga samstarf um starfrækslu verkefna við annað eða önnur sveitarfélög og framselja vald til töku ákvarðana um rétt og skyldu manna. Fer um slíkt samstarf skv. IX. kafla sveitarstjórnarlaga og þau sérlög sem við eiga.
73. gr. Samningar við einkaaðila.
Sveitarstjórn er heimilt að gera samninga við einkaaðila um framkvæmd á þjónustu og öðrum verkefnum fyrir sveitarfélagið, enda sé áætlað fyrir viðkomandi verkefni í fjárhagsáætlunum sveitarfélagsins, sbr. 100. gr. sveitarstjórnarlaga. Skulu ákvæði stjórnsýslulaga og upplýsingalaga, sem og almennar meginreglur stjórnsýsluréttar, gilda um þá stjórnsýslu sem verktaki tekur að sér að annast.
X. KAFLI Samráð við íbúa – Þátttökulýðræði.
74. gr. Borgarafundir, íbúaþing, íbúakosningar o.fl.
Um samráð við íbúa, þ.m.t. borgarafundi, íbúaþing og íbúakosningar, gilda ákvæði X. kafla sveitarstjórnarlaga, ef frá er talið lágmark þeirra sem kosningarrétt eiga í sveitarfélaginu og óska almennrar atkvæðagreiðslu, sbr. 72. gr.
75. gr. Almenn atkvæðagreiðsla að frumkvæði íbúa.
Ef 20% þeirra sem kosningarrétt eiga í bænum óska almennrar atkvæðagreiðslu skv. 108. gr. sveitarstjórnarlaga skal bæjarstjórn verða við því eigi síðar en innan árs frá því að slík ósk berst.
Um framkvæmd undirskriftasöfnunar, hlutverk bæjarstjórnar og framkvæmd almennrar atkvæðagreiðslu fer skv. 107. gr. og 108. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
76. gr. Gildistaka.
Samþykkt þessi sem bæjarstjórn Garðabæjar hefur sett, samkvæmt ákvæðum 9. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um stjórn Garðabæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 773/2013 með síðari breytingum.
Innviðaráðuneytinu, 13. október 2022.
F. h. r.
Aðalsteinn Þorsteinsson.
Hafdís Gísladóttir.
VIÐAUKAR
(sjá
PDF-skjal)
B deild - Útgáfud.: 28. október 2022