Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Mosfellsbær
Málaflokkur
Skipulagsmál, Mosfellsbær
Undirritunardagur
24. febrúar 2011
Útgáfudagur
10. mars 2011
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 229/2011
24. febrúar 2011
AUGLÝSING
um deiliskipulag frístundalóðarinnar Lynghóls, landnúmer 125346, Mosfellsbæ.
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 15. desember 2010 samþykkt deiliskipulag ofangreindrar frístundalóðar.
Lóð Lynghóls er tæpir 6 ha að stærð og tilheyrði upphaflega Miðdalslandi. Á henni stendur nú gamalt, forskalað hús í mjög slæmu ástandi. Samkvæmt deiliskipulaginu verður heimilt að reisa nýtt frístundahús á lóðinni í stað eldra húss, allt að 70 m² að stærð, auk 20 m² geymsluhúss, samtals 90 m².
Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæltu fyrir um og öðlast það þegar gildi.
F.h. Mosfellsbæjar, 24. febrúar 2011,
Finnur Birgisson
skipulagsfulltrúi.