Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Sveitarstjórnarmál, Þingeyjarsýslur

Undirritunardagur

3. júlí 2025

Útgáfudagur

18. júlí 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 822/2025

3. júlí 2025

SAMÞYKKT

um breytingu á samþykkt um stjórn og fundarsköp Þingeyjarsveitar, nr. 320/2025.

1. gr.

V. kafli samþykktarinnar fellur brott og uppfærast eftirfylgjandi kaflaheiti og tölusetningar greina í samræmi við það.

2. gr.

Síðasti málsliður 2. mgr. 1. gr. viðauka 1.4 við samþykktina fellur brott.

3. gr.

Í stað orðanna „byggðarráð“ í 2. gr. viðauka 1.4 og 1. og 2. gr. viðauka 1.5 við samþykktina kemur í viðeigandi breytingarfalli: sveitarstjórn.

4. gr.

Samþykkt þessi sem sveitarstjórn Þingeyjarsveitar hefur sett skv. ákvæðum 9. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 staðfestist hér með og öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 3. júlí 2025.

F. h. r.

Guðni Geir Einarsson.

Ólöf Sunna Jónsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 18. júlí 2025

Tengd mál