Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Múlaþing
Málaflokkur
Hafnamál, Múlaþing
Undirritunardagur
19. júní 2025
Útgáfudagur
30. júní 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 727/2025
19. júní 2025
GJALDSKRÁ
fyrir hafnir Múlaþings (Borgarfjarðarhöfn, Djúpavogshöfn og Seyðisfjarðarhöfn).
Almenn ákvæði.
1. gr.
Gjaldskrá þessi fyrir hafnir Múlaþings er sett skv. heimild í 17. gr. hafnalaga, nr. 61/2003.
Um gjaldtöku tengda stærð skipa.
2. gr.
Við ákvörðun gjalda, sem taka mið af stærð skipa, skal miðað við brúttótonnatölu skipa samkvæmt alþjóðlegu mælingarbréfi, sem gefið er út í samræmi við alþjóðasamþykktina um mælingu skipa frá 1969.
3. gr.
Af öllum skipum skal greiða tilheyrandi gjöld til hafna Múlaþings ef þau koma inn fyrir takmörk hafnanna og njóta þjónustu þeirra.
Skipagjöld.
4. gr.
Lestargjöld: Af öllum skipum skal greiða lestargjald, 20,13 kr.
Bryggjugjöld: Af öllum skipum sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða samkvæmt eftirfarandi: 10,71 kr. á mælieiningu fyrir hverja byrjaða 24 tíma, sem skip liggur bundið.
Farþegaskip, sem liggja við ankeri, en nota flotbryggju, skulu greiða 5,15 kr. á mælieiningu.
Heimilt er að taka lestar- og bryggjugjald af fiskiskipum og minni bátum yfir 20 BT, sem mánaðargjald, 126,41 kr. á mælieiningu, en þó aldrei lægra en 28.714 kr. á mánuði.
Bátar 10–20 BT greiði 17.133 kr.
Bátar minni en 10 BT greiði þó aldrei lægra en 9.276 kr. á mánuði.
Bátar óskráðir og styttri en 6 metrar greiði 6.553 kr. á mánuði. Þá báta skal taka upp yfir tímabilið október til maí.
Skútur og skemmtibátar, daggjald 20 evrur.
Önnur gjöld: Landstöðugjald fyrir báta við bátahöfn er 3.709 kr. á mánuði.
Heimilt er að leggja á allt að fimmföld bryggjugjöld á skip og báta sem liggja um lengri tíma við bryggju og hafa verið án haffærisskírteinis í a.m.k. 6 mánuði.
Heimilt er að leggja þreföld bryggjugjöld á skip og báta sem óska eftir langtíma viðlegu vegna annarrar starfsemi en útgerðar.
Vörugjöld.
5. gr.
Vörugjald skal greiða af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl á land eða úr landi á skipsfjöl, eða úr einu skipi í annað, innan takmarka hafnanna, þó með þeim undantekningum er síðar getur. Farmflytjandi skal skila farmskrá og öðrum nauðsynlegum gögnum til hafnanna, vegna álagningar vörugjalda.
6. gr.
Fyrir vörur sem samkvæmt farmskrá skips eru ákveðnar til annarrar hafnar, innlendrar eða erlendrar, en eru látnar á land um stundarsakir, skal aðeins greitt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land. Undanþegnar þessu gjaldi eru vörur sem látnar eru á land um stundarsakir vegna skemmda á skipi.
7. gr.
Af vörum, sem fluttar eru á skip og fara eiga til annarra hafna innanlands greiðist hálft vörugjald. Af vörum sem koma frá útlöndum og fara eiga áfram til útlanda er heimilt að innheimta fullt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land.
8. gr.
Þessar vörur eru undanþegnar vörugjaldi:
- Umbúðir sem endursendar eru.
- Olía, vistir og aðrar nauðsynjar skipa til eigin notkunar.
- Almennar póstsendingar og farangur ferðamanna.
- Úrgangur sem fluttur er til eyðingar.
9. gr.
Vörugjald reiknast eftir þyngd eða verðmæti, með umbúðum og af hverri sendingu sérstaklega. Fara skal eftir farmskrá skipa við útreikning vörugjalds. Skipstjóri eða afgreiðslumaður skips skal láta höfninni í té afrit af farmskrá. Sé engri farmskrá til að dreifa skal skipstjóri gefa drengskaparvottorð um vörumagn sem fermt hefur verið eða affermt úr skipi hans. Þyki hafnarstjóra ástæða til getur hann hvenær sem er látið ákveða vörumagnið á þann hátt sem hann telur hentugast. Reynist vörumagnið vera meira en upp er gefið greiðir farmeigandi kostnaðinn. Séu fleiri en ein vörutegund í sendingu ósundurliðað skal reikna vörugjaldið eftir þeirri tegund sem hæst gjald skal greiða af.
10. gr.
Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og þar segir:
Vörugjaldskrá:
| 1. fl.: | Gjald 435 kr. fyrir hvert tonn fljótandi efnis mælist í rúmmetrum: Kol, laust korn, salt, vikur, kísilgúr, bensín, brennsluolíur, þörungamjöl, sement, áburður og úrgangur sem fluttur er til endurvinnslu. |
| 2. fl.: | Gjald 608 kr. fyrir hvert tonn: Lýsi, fiskimjöl og melta. |
| 3. fl.: | Gjald 792 kr. fyrir hvert tonn: Þungavarningur, svo sem sekkjavörur, óunnið járn og stál, veiðarfæri, smurningsolíur, sjávarafurðir, landbúnaðarafurðir, hráefni til iðnaðar og byggingaframkvæmda. Pökkuð og niðursoðin matvæli, óáfengar drykkjarvörur og ávextir. |
| Gjald 1.711 kr. fyrir hvert tonn. Aðrar vörur sem ekki eru tilgreindar í 1.-3. fl. |
Aflagjald og eldisgjald.
11. gr.
Aflagjald er 1,50% af heildaraflaverðmæti. Sjávarafli lagður á land eða í skip á hafnarsvæðinu til vinnslu eða brottflutnings. Gjaldið reiknast af heildarverðmæti aflans.
Eldisgjald er 1,50% af heildaraflaverðmæti af eldisfiski, þ.m.t. eldisseiðum, sem alinn hefur verið í sjókvíum eða ætlaður er til slíks eldis, sem umskipað er, lestaður er eða losaður í höfnum. Gjaldið reiknast af heildarverðmæti aflans.
Gjald af frystum afla frystitogara reiknast af helmingi heildarverðmætis.
Gjald af saltfiski reiknast miðað við tvöfalda þyngd og gjald af gámafiski reiknast af áætluðu heildarverði.
Seljanda aflans ber að afhenda hafnarstjóra skýrslu um seldan afla um leið og sala hefur átt sér stað, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu. Aflagjaldið og eldisgjaldið falla í gjalddaga um leið og afla er landað.
Seljanda ber að standa skil á greiðslu aflagjalds og eldisgjalds.
Við sölu afla til skyldra aðila skv. 3. mgr. 9. gr. laga um Verðlagsstofu skiptaverðs, nr. 13/1998, og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna skal að lágmarki miðað við skiptaverð Verðlagsstofu skiptaverðs.
Leiga á gámasvæði/geymsla veiðarfæra/varnings/búnaðar/leiga á búnaði.
12. gr.
Leiga fyrir geymslusvæði skal vera eftirfarandi:
Geymsla á malarsvæði 220 kr. pr. m² á mánuði.
Geymsla á malbikuðu svæði 349 kr. pr. m² á mánuði.
Geymsla á veiðarfærum á hafnarköntum 5.869 kr. pr. sólarhring.
Geymslugjald fyrir 20 feta gám 3.074 kr. fyrir hvern byrjaðan mánuð.
Geymslugjald fyrir 40 feta gám 6.148 kr. fyrir hvern byrjaðan mánuð.
Geymslugjald fyrir 20 feta frystigám 2.842 kr. á mánuði + rafmagn.
Geymslugjald fyrir 40 feta frystigám 4.546 kr. á mánuði + rafmagn.
Geymslugjald fyrir nætur og troll á geymslusvæði er það sama og fyrir 40 feta gám á mánuði.
Krókgámar lokaðir, 1.134 kr. á rúmmetra á mánuði.
Krókgámar opnir, 562 kr. á rúmmetra á viku.
Krókgámar opnir, 1.981 kr. á rúmmetra á mánuði.
Landgangaleiga, 6.287 kr. fyrir hvert skipti.
Tollverndarsvæði:
Öll svæði 166 kr./m² á mánuði.
Móttaka úrgangs.
13. gr.
Skipstjóri eða eigandi skips sem óskar eftir að láta á land sorp, farmleifar, olíuleifar eða mengandi efni skal óska eftir aðstoð viðurkennds þjónustuaðila, sem hafnirnar hafa samþykkt að annist móttöku og förgun á ofangreindum úrgangi frá skipum á hafnarsvæðum hafnanna. Skipstjóri, eigandi skips eða þjónustuaðili skal undantekningarlaust skila útfylltu eyðublaði til hafnanna um magn og tegund þess úrgangs sem skilað er á land.
Skip sem falla ekki undir 11. gr. c í lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda nr. 33/2004 skulu greiða þjónustuaðila kostnað vegna móttöku og förgunar á úrgangi. Annist hafnir Múlaþings móttöku og förgun á almennum úrgangi skal gjald greitt fyrir þjónustuna samkvæmt grein þessari fyrir hvern rúmmetra úrgangs. Annist hafnir Múlaþings móttöku á spilliefnum eða sérstökum úrgangi sem hefur í för með sér kostnað umfram förgun á almennu sorpi greiðir viðkomandi aðili þann kostnað sem til fellur.
Vegna skipa sem falla undir 11. gr. c í lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda nr. 33/2004 skal greiða eftirfarandi:
- Úrgangsgjald: Við komu skips til hafnar skal greiða 1 kr. á BT. Gjald þetta er til þess að standa undir eftirliti og umsýslu hafnar vegna móttöku á sorpi.
Lágmarksgjald samkvæmt þessum lið er 13.371 kr. og hámarksgjald 60.542 kr. - Úrgangsgjald: Gjald skv. a-lið má lækka ef umhverfisstjórnun, hönnun, búnaður og starfræksla skips er með þeim hætti að skipstjóri geti sýnt fram á að minni úrgangur verði til um borð.
Lágmarksgjald samkvæmt þessum lið er 6.953 kr. og hámarksgjald 31.270 kr. - Úrgangsgjald:
Skip og bátar sem koma oftar en fjórum sinnum til hafnar á almanaksárinu greiða samkvæmt b-lið fyrir fimmtu komu og komur eftir það. - Úrgangsgjald:
Fyrir skip og báta sem hafa varanlega viðveru í höfnum Múlaþings skal greiða fast mánaðargjald vegna eftirlits og umsýslu hafnar vegna móttöku á sorpi.
Gjaldið skal vera 6.953 kr. á mánuði. - Förgunargjald:
Við komu til hafnar skal greiða förgunargjald fyrir öll skip sem falla undir 11. gr. laga nr. 33/2004 óháð því hvort þau skili úrgangi í land. Förgunargjaldið skal standa undir förgun á úrgangi sem skilað er á land.
Fyrir farþegaskip yfir 60 metrar á lengd skal greiða 1,95 kr. á BT. Gjaldið miðast við eftirfarandi sorpmagn:
Fyrir farþegaskip undir 30.000 BT, 5 m³.
Fyrir farþegaskip frá 30.000 BT til 100.000 BT, 10 m³.
Fyrir farþegaskip yfir 100.000 BT, 15 m³.
Fyrir önnur skip skal greiða 2,72 kr. á BT. Gjaldið miðast við 5 m³ af sorpi.
Greiða skal samkvæmt h-lið fyrir sorp sem fer umfram ofangreinda viðmiðun. Skip og bátar sem eru undir 60 metrar á lengd og hafa varanlega viðlegu í höfnum Múlaþings skulu háðir sérstöku samkomulagi sem m.a. taki á lögum og reglum um skil á sorpi. Lágmarksgjald samkvæmt þessum lið er 46.889 kr. - Förgunargjald:
Leiti skip til viðurkennds aðila um móttöku á úrgangi getur það fengið álagt förgunargjald skv. e-lið endurgreitt enda skili það áður kvittun móttökuaðilans ásamt réttum upplýsingum um losað magn. Skilyrði endurgreiðslu kostnaðar er að kvittun móttökuaðila hafi borist höfnum Múlaþings innan tveggja sólarhringa frá brottför skips. - Samkvæmt 11. gr. reglugerðar nr. 1200/2014 getur Umhverfisstofnun veitt skipum í áætlunarsiglingum, sem hafa reglulega viðkomu í höfnum og sýna fram á trygga afhendingu úrgangs og greiðslu gjalda í hverri höfn á siglingaleiðinni undanþágu frá afhendingu úrgangs. Skipstjóri eða eigandi skips, sem fengið hefur undanþágu frá Umhverfisstofnun um afhendingu úrgangs eða skilum á tilkynningum, skal framvísa gildri staðfestingu þess efnis.
- Fyrir skip sem undanþegin eru gjaldskyldu skv. 1. tl. 2. mgr. 17. gr. og 11. gr. c. hafnalaga nr. 33/2004 skal greiða fyrir móttöku hafnar og förgun á almennu sorpi. Lágmarksgjald hafnar fyrir móttöku á úrgangi er 13.971 kr. á hvern rúmmetra og lágmarksgjald er fyrir einn rúmmetra. Annist höfnin móttöku á spilliefnum eða sérstökum úrgangi sem hefur í för með sér kostnað umfram förgun á almennu sorpi greiðir viðkomandi aðili þann kostnað sem til fellur.
- Mengun: Mengunarvaldur skal greiða allan kostnað við hreinsun vegna mengunaróhappa samkvæmt lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda. M.a. getur þar verið um að ræða kostnað vegna vinnu Brunavarna á Austurlandi, vegna vinnu starfsmanna hafna Múlaþings, og kostnað vegna notkunar á búnaði og nauðsynlegum efnum til hreinsunar.
Hafnsögugjöld.
14. gr.
Ekki er hafnsöguskylda í höfnum Múlaþings en ef óskað er eftir slíkri þjónustu er greitt samkvæmt gjaldskrá.
Fast gjald 6.646 kr pr. ferð.
Stærðargjald 9,86 kr. á mælieiningu.
Flutningur á hafnsögumanni 52.544 kr. pr. ferð.
Ef óskað er eftir bát (vinnubát) til aðstoðar við komu eða brottför út af hafnarsvæði, skal greiða að lágmarki 80.363 kr. fyrir hverja byrjaða klst.
Fyrir leiðsögn um höfn skal greiða 26.272 kr.
Festargjöld.
15. gr.
Festargjöld fyrir hverja afgreiðslu 21.581 kr. og í yfirvinnu 37.071 kr.
Starfi fleiri en einn maður við afgreiðslu er gjald fyrir hvern aukamann 21.581 kr. og í yfirvinnu 37.071 kr.
Vatnssala.
16. gr.
Vatn afgreitt frá bryggju, lágmarksgjald, 6.639 kr.
Vatn til skipa, 395 kr./m³.
Afgreiðsla utan dagvinnutíma, 8.876 kr. á. klst. til viðbótar gjaldskrá.
Vigtargjald.
17. gr.
Almenn vigtun 219 kr. á tonn.
Lægsta gjald fyrir einstaka vigtun/löndun 1.317 kr.
Vigtun flutningabíls 2.325 kr. pr. vigtun.
Útseld vinna við vigtun í dagvinnu 6.784 kr. á klst.
Útseld vinna við vigtun í yfirvinnu 10.388 kr. á klst.
Útseld vinna við úrtaksvigtun 8.689 kr. á klst.
Kranagjald, löndun með hafnarkrana 393 kr. pr. tonn.
Skráningargjald afla 130,57 kr. pr. tonn
Komi bátar utan eðlilegs vinnutíma skal greiða að lágmarki tveggja tíma gjald vegna yfirvinnu. Vegna útkalls utan opnunartíma og um helgar skal greiða að lágmarki fyrir fjóra tíma.
Almennur vinnutími hafna er frá kl. 08.00-17.00 virka daga. Lokað er milli kl. 12.00-13.00.
Rafmagnssala.
18. gr.
Gámar, 24,23 kr./kWst.
Til skipa, 24,23 kr./kWst.
Tengigjald í dagvinnu, 3.407 kr.
Tengigjald í næturvinnu, 9.287 kr.
Mælaleiga, 6.623 kr. á ári
Fari tenging fram utan dagvinnutíma greiðist tengigjald 9.064 kr.
Móttaka skipa sem falla undir ISPS-kóða/verndargjald.
19. gr.
Fyrir hverja komu skips sem fellur undir ákvæði laga um siglingavernd, nr. 50/2004, ber að greiða eftirtalin gjöld til hafnarinnar:
Fast gjald 23.219 kr. auk þess 2,19 kr. fyrir hverja brúttólest skips.
Útseld vinna í dagvinnu vegna öryggisvörslu, 7.955 kr. á mann pr. klst.
Útseld vinna í næturvinnu vegna öryggisvörslu, 11.943 kr. á mann pr. klst.
Verndar- og farþegagjald „Security fee“, 216 kr. pr. farþega.
20. gr.
Hafnir Múlaþings taka við bókunum skemmtiferðaskipa fram í tímann. Við afbókun á komu skemmtiferðaskipa gildir eftirfarandi:
Við afbókun innan við 18 mánuðum fyrir áætlaðan komutíma leggst á afbókunargjald sem er 5% af bryggjugjöldum.
Við afbókun innan við 12 mánuðum fyrir áætlaðan komutíma leggst á afbókunargjald sem er 15% af bryggjugjöldum.
Við afbókun innan við 6 mánuðum fyrir áætlaðan komutíma leggst á afbókunargjald sem er 30% af bryggjugjöldum.
Við afbókun innan við 48 klst. fyrir áætlaðan komutíma leggst á afbókunargjald sem er 100% af bryggjugjöldum.
Undanþegin er afbókun innan við 48 klst. fyrir áætlaðan komutíma vegna slæmra veðurskilyrða. Afbókunargjald leggst ekki á breytingar á dagsetningum og/eða skipum svo framarlega sem unnt er að verða við slíkri beiðni.
21. gr.
Leiga á móttökusal í Ferjuleiru 1 á Seyðisfirði fyrir 1-4 klst., 10.631 kr. Fyrir heilan dag, 18.156 kr.
22. gr.
Útseld önnur vinna hafnarvarða en sú sem tilgreind er í gjaldskrá þessari, í dagvinnu, 6.784 kr.
Útseld önnur vinna hafnarvarða en sú sem tilgreind er í gjaldskrá þessari, í yfirvinnu, 10.388 kr.
Um innheimtu og greiðslu gjalda.
23. gr.
Séu gjöldin ekki greidd á réttum gjalddögum er áskilið að reikna dráttarvexti af gjaldfallinni fjárhæð skv. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001.
24. gr.
Skipstjóri og eigandi skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til hafna Múlaþings vegna skipsins. Er skipstjóra skylt við komu til hafnar að gefa hafnarstjóra upplýsingar um skipið í samræmi við ákvæði 5. mgr. 33. gr. reglugerðar um hafnamál, nr. 326/2004, og afhenda hafnarstjóra þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef hafnarstjóri krefst þess vegna ófullnægjandi upplýsinga frá skipstjóra og hefur hafnarsjóður haldsrétt yfir skírteinum uns gjöld eru greidd. Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á ábyrgð og kostnað greiðanda áfallinna gjalda. Áfallin gjöld skal greiða áður en skip fer burt úr höfninni og enginn skipstjóri getur vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema að hann sanni með vottorði frá hafnarstjóra að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.
25. gr.
Vörugjald greiðist af öllum vörum sem eru affermdar, afhentar eða fluttar, eða kom á annan hátt sjóleiðis eða landleiðina, inn fyrir mörk hafnanna. Vörugjaldið reiknast skipi til skuldar áður en skip hefur siglingu, nema sérstaklega sé samið um annað. Vörugjald er á ábyrgð farmflytjanda og er afhending vöru án greiðslu vörugjalds á hans ábyrgð. Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá vörugjaldið sem affermir. Vörugjald af vörum sem koma til hafnanna falla í gjalddaga þegar skipið sem vörurnar flytur er komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfnunum fellur í gjalddaga þegar vörurnar eru komnar í skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en gjaldið er greitt.
26. gr.
Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má ávallt tryggja með aðför að undangengnum dómi. Skipagjöld eru tryggð með lögveði í viðkomandi skipi eða vátryggingarfé. Gengur það veð í tvö ár fyrir samningsveðkröfum, sbr. ákvæði 2. mgr. 21. gr. hafnalaga, nr. 61/2003. Höfnum Múlaþings er heimilt að krefjast frekari trygginga fyrir greiðslu áfallinna gjalda ef ástæða þykir til.
27. gr.
Öll gjöld í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts. Höfnum Múlaþings er skylt að innheimta virðisaukaskatt af öllum gjöldum í gjaldskrá þessari, sbr. 3. tl. 3. gr. laga um virðisaukaskatt, nr. 50/1988.
Gildistaka.
28. gr.
Gjaldskrá þessi fyrir hafnir Múlaþings er samþykkt af umhverfis- og framkvæmdaráði Múlaþings 2. júní 2025, skv. hafnalögum, nr. 61/2003, og 37. gr. reglugerðar um hafnamál, nr. 326/2004, og staðfest af sveitarstjórn Múlaþings 11. júní 2025.
Gjaldskráin öðlast gildi nú þegar og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Jafnframt falla úr gildi gjaldskrá fyrir Borgarfjarðarhöfn, nr. 1381/2020, gjaldskrá fyrir Djúpavogshöfn, nr. 1382/2020, gjaldskrá fyrir Seyðisfjarðarhöfn, nr. 1383/2020, og gjaldskrá fyrir hafnir Múlaþings sem staðfest var af sveitarstjórn Múlaþings 13. nóvember 2024.
Múlaþingi, 19. júní 2025.
Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri.
B deild - Útgáfud.: 30. júní 2025