Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Borgarbyggð
Málaflokkur
Skipulagsmál, Borgarbyggð
Undirritunardagur
17. febrúar 2026
Útgáfudagur
3. mars 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 209/2026
17. febrúar 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Borgarbyggð.
Flatahverfi á Hvanneyri, óveruleg breyting á deiliskipulagi.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti óverulega breytingu á deiliskipulagi Flatahverfis á Hvanneyri á fundi sínum 12. febrúar 2026. Breytingin varðar lóðir við Hrafnaflöt og húsgerð nr. 2. Eftir breytingu verður heimilt að byggja þriggja íbúða raðhús við Hrafnaflöt 2, 4 og 6 í stað fjögurra. Raðhús við Hrafnaflöt 1, 3 og 5 verða áfram með þremur íbúðum en byggingarreitur hliðrast. Lóðir við Hrafnaflöt verða tvær í stað sjö en í stað einstakra lóða verða skilgreindir sérafnotareitir. Auk þess eru gerðar breytingar á skipulags- og byggingarskilmálum varðandi aðgengi, fjölda íbúða, bílageymslu og sérafnotareiti.
Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 kveða á um og öðlast þegar gildi.
Borgarbyggð, 17. febrúar 2026.
Ásgerður Hafsteinsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.
B deild — Útgáfudagur: 3. mars 2026