Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Sveitarstjórnarmál, Vestmannaeyjar
Undirritunardagur
16. febrúar 2026
Útgáfudagur
3. mars 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 208/2026
16. febrúar 2026
SAMÞYKKT
um breytingu á samþykkt um stjórn og fundarsköp Vestmannaeyjabæjar, nr. 991/2020.
1. gr.
8. mgr. 44. gr. samþykktarinnar breytist og verður svohljóðandi:
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs gegnir störfum bæjarstjóra í forföllum hans nema bæjarstjórn ákveði annað.
2. gr.
45. gr. samþykktarinnar breytist og verður svohljóðandi:
Bæjarstjórn ræður starfsfólk í æðstu stjórnunarstöður hjá bæjarfélaginu, þ.e. sviðsstjóra fagsviða og veitir þeim lausn frá störfum, nema á annan veg sé mælt í lögum og reglugerðum.
3. gr.
46. gr. samþykktarinnar breytist og verður svohljóðandi:
Um ráðningu annars starfsfólks annast sviðsstjórar fagsviða og forstöðufólk stofnana eftir atvikum nema á annan veg sé mælt í lögum og reglugerðum eða eftir reglum sem bæjarstjórn setur.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á viðaukum við samþykktina:
- Fyrirsögn viðauka III breytist og verður svohljóðandi: Embættisafgreiðslur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs.
- Í stað orðanna „framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs“ í viðauka III við samþykktina kemur, í viðeigandi beygingarfalli: sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs.
- Í stað orðanna „framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs“ í viðauka V við samþykktina kemur, í viðeigandi beygingarfalli: sviðsstjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs.
- Í stað orðsins „framkvæmdastjóri“ í viðauka V við samþykktina kemur, í viðeigandi beygingarfalli: sviðsstjóri.
5. gr.
Samþykkt þessi sem bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar hefur sett samkvæmt ákvæðum 9. gr. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 16. febrúar 2026.
F. h. r.
Aðalsteinn Þorsteinsson.
Ólöf Sunna Jónsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 3. mars 2026