Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Atvinnuvegaráðuneytið
Málaflokkur
Sjávarútvegur, Landbúnaður
Undirritunardagur
3. júlí 2025
Útgáfudagur
9. júlí 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 779/2025
3. júlí 2025
REGLUGERÐ
um (14.) breytingu á reglugerð nr. 745/2016 um vigtun og skráningu sjávarafla.
1. gr.
Við 4. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Fiskistofu er þó heimilt að veita fiskmörkuðum leyfi til að endurvigta ísaðan afla strandveiðibáta enda verði til þess notuð flæðivog eða sjálfvirk stykkjavog sem vigtar hvern fisk sérstaklega.
2. gr
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 6., 8. og 30. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, 19. gr. laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og 16. og 18. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 3. júlí 2025.
Hanna Katrín Friðriksson.
Hallveig Ólafsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 9. júlí 2025