Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar
Málaflokkur
Reykjavík, Gæludýr
Undirritunardagur
1. desember 2025
Útgáfudagur
16. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1373/2025
1. desember 2025
GJALDSKRÁ
fyrir hundahald í Reykjavíkurborg.
1. gr.
Dýraþjónusta Reykjavíkur skal innheimta gjöld af eigendum hunda í Reykjavíkurborg samkvæmt gjaldskrá þessari. Gjöldunum er ætlað að standa undir kostnaði við framkvæmd samþykktar um hundahald í Reykjavíkurborg nr. 355/2022.
2. gr.
Innheimta skal þjónustu- og eftirlitsgjald, hundagjald, vegna hunda í Reykjavíkurborg samkvæmt samþykkt um hundahald í Reykjavíkurborg. Gjaldið er innheimt eftir á og hefst gjaldtaka árið eftir að hundur er skráður í fyrsta sinn og síðan árlega eftir það. Gjaldið er tvískipt til helminga og er innheimt í mars og september ár hvert. Ef hundur deyr eða skiptir um eiganda er það á ábyrgð skráðs umráðamanns að tilkynna það og skrá á www.island.is eða með tölvupósti á dyr@reykjavik.is og fellur þá næsti greiðsluseðill niður eða færist yfir á nýjan eiganda.
Árlegt hundagjald fyrir allt árið eða hluta úr ári er 18.450 kr., 9.225 kr. sem greiða skal 1. mars og 9.225 kr. sem greiða skal 1. september. Reikningar eru ekki felldir niður hafi eigandi ekki tilkynnt um dauða hunds, eigendaskipti eða flutning áður en krafa var stofnuð.
Skrá skal alla hunda í Reykjavíkurborg, einnig þá sem undanþegnir eru árlegu hundagjaldi samkvæmt samþykkt um hundahald í Reykjavíkurborg.
3. gr.
Heimilt er að veita allt að 30% afslátt af árlegu gjaldi hafi viðkomandi hundaeigandi sótt námskeið um hundahald sem viðurkennt er af Dýraþjónustu Reykjavíkur.
4. gr.
Við afhendingu handsamaðs óskráðs hunds ber að innheimta 40.000 kr. handsömunargjald. Að auki skal eigandi greiða þann kostnað sem fellur til vegna dvalar eða geymslu viðkomandi hunds. Við afhendingu handsamaðs hunds, sem skráður er í Reykjavíkurborg eða hjá öðru sveitarfélagi, skal einungis innheimtur sá kostnaður sem fallið hefur til vegna dvalar og geymslu viðkomandi hunds. Hafi skráður hundur verið handsamaður þrisvar sinnum eða oftar skal eigandi þó greiða handsömunargjald sem og kostnað vegna dvalar og geymslu viðkomandi hunds.
5. gr.
Gjalddagi samkvæmt 2. og 3. gr. er 1. mars og eindagi 1. apríl ár hvert annars vegar en 1. september og eindagi 1. október hins vegar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga. Um innheimtu gjalda fer samkvæmt 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.
6. gr.
Gjaldskrá þessi sem samin er og samþykkt af borgarstjórn Reykjavíkur, með heimild í 5. mgr. 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, og 24. gr. laga um velferð dýra, nr. 55/2013, staðfestist hér með og öðlast gildi við birtingu. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá fyrir hundahald í Reykjavíkurborg, nr. 1390/2024.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 1. desember 2025.
Heiða Björg Hilmisdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 16. desember 2025