Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Skattar - gjöld - tollar
Undirritunardagur
15. janúar 2021
Útgáfudagur
29. janúar 2021
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 74/2021
15. janúar 2021
AUGLÝSING
um álagningu opinberra gjalda á árinu 2021.
1. gr.
Ríkisskattstjóri skal eigi síðar en 31. maí 2021 hafa lokið álagningu opinberra gjalda á menn. Álagningu á lögaðila með sjálfstæða skattaðild skal vera lokið eigi síðar en 29. október 2021. Álagningu á lögaðila sem fengið hafa heimild til að hafa annað reikningsár til skattskila en almanaksárið skal lokið eigi síðar en sex mánuðum eftir að því reikningsári lýkur.
2. gr.
Auglýsing þessi, sem sett er með heimild í 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 15. janúar 2021.
F. h. r.
Helga Jónsdóttir.
Ingibjörg Helga Helgadóttir.
B deild - Útgáfud.: 29. janúar 2021