Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Múlaþing
Málaflokkur
Félagsmál, Múlaþing
Undirritunardagur
13. janúar 2022
Útgáfudagur
24. janúar 2022
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 50/2022
13. janúar 2022
REGLUR
Múlaþings um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk.
Markmið og markhópur.
1. gr.
Reglur
þessar
byggja
á
29.
gr.
laga
nr.
40/1991
um
félagsþjónustu
sveitarfélaga
og
taka
mið
af
leiðbeinandi
reglum
félagsmálaráðuneytisins
fyrir
sveitarfélög
um
akstursþjónustu
fyrir
fatlað
fólk.1
Aksturþjónusta
fatlaðs
fólks
er
ætluð
þeim
sem
uppfylla
það
skilyrði
að
fötlun
þeirra
falli
að
skilgreiningu
2.
gr.
laga
um
þjónustu
við
fatlað
fólk
með
langvarandi
stuðningsþarfir
nr.
38/2018.
_______________
1 https://www.stjornarradid.is/library/03-Verkefni/Felags--og-fjolskyldumal/Fatlad-folk/Lei%c3%b0beiningar%20um%20aksturs%c3%bej%c3%b3nustu%2022.apr%c3%adl%202020.pdf.
2. gr.
Markmið akstursþjónustu Múlaþings er að gera þeim, sem ekki geta nýtt sér almenningsfarartæki kleift að stunda atvinnu, nám, leita sér lækninga og hæfingar og njóta tómstunda. Haft er að leiðarljósi að styðja fatlað fólk til þátttöku í samfélaginu eins og kostur er hverju sinni.
Akstursþjónusta fyrir börn.
Forsjáraðilar
fatlaðra
barna
geta
sótt
um
akstur
samkvæmt
reglum
þessum
fyrir
börn,
t.d.
vegna
tómstunda,
læknisferða,
sjúkraþjálfunar
eða
til
að
rjúfa
félagslega
einangrun.
Barn
yngra
en
sex
ára
skal
ávallt
vera
í
fylgd
með
fullorðnum
einstaklingi
þegar
ferðast
er
með
akstursþjónustu
fatlaðs
fólks.
Þurfi
barn
bílstól
er
það
á
ábyrgð
forsjáraðila
að
útvega
hann.2
_______________
2 Reglur þessar taka ekki til skólaaksturs barna í grunnskóla en um þann akstur gilda reglur um skólaakstur.
3. gr.
Skilyrði fyrir þjónustu samkvæmt reglum þessum eru:
Að
notandi
eigi
lögheimili
eða
hafi
skráð
aðsetur
í
sveitarfélaginu.
Að
notandi
geti
ekki
komist
ferða
sinna
með
sambærilegum
hætti
og
ófatlaðir
íbúar
sveitarfélagsins.
Heimilt er að veita undanþágur frá þessum skilyrðum skv. mati starfsfólks félagsþjónustu vegna sérstakra aðstæðna. Undanþágur eru teknar fyrir á fundum meðferðarteymis félagsþjónustu Múlaþings.
4. gr.
Íbúar í öðrum sveitarfélögum eiga kost á akstursþjónustu ef lögheimilisveitarfélag viðkomandi óskar eftir þjónustunni og skal samþykki lögheimilissveitarfélags liggja fyrir áður en þjónustan er veitt.
Mat og framkvæmd þjónustunnar.
5. gr.
Fjölskylduráð ber ábyrgð á þjónustunni á vegum Múlaþings og hefur félagsmálastjóri yfirumsjón með henni.
Sótt er um rafrænt á mínum síðum hjá Múlaþingi á tilteknum eyðublöðum. Umsókn um akstursþjónustu er afgreidd á meðferðarfundi félagsþjónustu. Lagt er mat á umsókn, umfang þjónustu ákveðið ásamt tímalengd hennar.
Umsókn er svarað skriflega innan tveggja vikna frá því að hún berst. Í umsókn skulu koma fram almennar upplýsingar um umsækjanda s.s. fötlun, óskir um fjölda ferða og í hvaða tilgangi þær eru farnar. Umsókn er metin með hliðsjón af getu og færni umsækjanda og möguleika hans til að nýta sér þjónustu almenningssamgangna og/eða aðra ferðamöguleika.
6. gr.
Félagsþjónusta Múlaþings rekur bíl sem sinnir akstursþjónustu fyrir fatlað fólk frá kl. 8.00 - 17.00 virka daga í þéttbýli Egilsstaða og Fella.
Félagsþjónusta Múlaþings ber ábyrgð á að allur öryggisbúnaður bifreiðar sem sinnir akstursþjónustu fatlaðs fólks sé í lagi skv. leiðbeiningum sem Samgöngustofa gefur út.3
Bílstjóri ber ábyrgð á umsjón bíls sem ætlaður er til akstursþjónustu fyrir fatlað fólk og að fyllsta öryggis sé gætt gagnvart farþegum. Hann starfar samkvæmt starfslýsingu bílstjóra félagsþjónustu Múlaþings, siðareglum starfsmanna Múlaþings og virðir þagnarskyldu sem hann skrifar undir við ráðningu. Bílstjóri skal hafa aukin ökuréttindi og hafa sótt námskeið í skyndihjálp.
Óheimilt að ráða starfsmann til þess að sinna akstursþjónustu við fatlað fólk sem hlotið hefur refsidóm vegna brots á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga sem fjallar um kynferðisbrot. Sama gildir um refsidóm vegna brots á 211. gr. eða 218. gr. almennra hegningarlaga.
Starfsmaður félagsþjónustunnar skipuleggur akstursáætlun í samvinnu við bílstjóra og með þarfir notenda í huga.
Bílstjóri tekur á móti breytingum á áætluðum ferðum s.s. vegna veikinda.
Við
framkvæmd
þjónustunnar
skal
taka
mið
af
því
að
farþegum
sé
sýnd
tilhlýðileg
virðing
og
sveigjanleiki.
_______________
3 https://www.samgongustofa.is/umferd/oryggi/oryggi-fatlads-folks/log-og-reglur-um-oryggi-fatlads-folks/.
7. gr.
Akstursþjónusta skal taka mið af þörfum hvers og eins. Fjöldi ferða er háður takmörkunum en við það skal miðað að þær verði ekki fleiri en 60 á mánuði. Hægt er að sækja um undanþágu frá þessu hámarki. Ferðir til og frá vinnu, skóla, hæfingu og lækninga ganga fyrir öðrum ferðum.
Ferð er skilgreind í reglum þessum sem akstur milli tveggja staða, en ekki akstur fram og til baka.
Umsóknir um ferðir vegna afþreyingar eða tómstunda skulu metnar í samráði við umsækjanda hverju sinni.
Umsóknir um akstursþjónustu þeirra sem ekki geta nýtt sér akstursbíl, t.d. vegna búsetu í öðrum þéttbýliskjörnum eða dreifbýli, tímabundinnar dvalar í öðru sveitarfélagi eða þörf á þjónustu utan dagvinnutíma eru teknar fyrir á meðferðarfundum félagsþjónustu og metnar út frá þörfum hvers einstaklings. Leitast skal við að sýna sveigjanleika og tryggja fjölbreytt þjónustuframboð á sviði akstursþjónustu t.d. með notkun leigubíla eða með samningum við einkaaðila.
8. gr. Gjaldtaka.
Akstursþjónusta fyrir fatlað fólk er gjaldfrjáls á dagvinnutíma og innan þéttbýlis Egilsstaða og Fella. Um gjald fyrir akstursþjónustu utan þess tíma og akstursþjónustu í dreifbýli vísast til gjaldskrár akstursþjónustu fyrir fatlað fólk.
Málskotsréttur umsækjanda.
9. gr.
Ákvörðun um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk er tekin á meðferðarfundum félagsþjónustu.
Umsækjandi um akstursþjónustu getur krafist rökstuddra, skriflegra svara um forsendur ef umsókn er synjað. Ákvörðun um synjun má áfrýja til fjölskylduráðs Múlaþings. Skal það gert skriflega innan fjögurra vikna. Ákvörðunum fjölskylduráðs er unnt að skjóta til úrskurðarnefndar velferðarmála.
Gildistími.
10. gr.
Reglur þessar sem samþykktar voru af sveitarstjórn Múlaþings 12. janúar 2022 öðlast þegar gildi.
Egilsstöðum, 13. janúar 2022.
Björn Ingimarsson sveitarstjóri.
B deild - Útgáfud.: 24. janúar 2022