Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Velferðarsvið Reykjavíkur

Málaflokkur

Reykjavík, Félagsmál

Undirritunardagur

1. desember 2025

Útgáfudagur

16. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1382/2025

1. desember 2025

GJALDSKRÁ

velferðarsviðs Reykjavíkurborgar fyrir akstursþjónustu fatlaðs fólks.

1. gr. Fjárhæð gjalds.

Stakt fargjald fyrir akstursþjónustu fatlaðs fólks (16 ára og eldri), þ.e. fyrir fasta ferð eða tilfallandi ferð, skal miðast við stakt gjald fyrir öryrkja hjá Strætó bs. samkvæmt gjaldskrá Strætó bs. hverju sinni.

Gjald vegna tímabilskorta (30 daga kort eða árskort) fyrir notendur akstursþjónustu fatlaðs fólks (16 ára og eldri) miðast við tímabilskort fyrir öryrkja samkvæmt gjaldskrá Strætó bs. hverju sinni.

Nemakort fyrir 16 ára og eldri, sem stunda viðurkennt framhalds- eða háskólanám, skal miðast við tímabilskort fyrir öryrkja samkvæmt gjaldskrá Strætó bs. hverju sinni.

2. gr. Gildistaka.

Gjaldskrá þessi er sett á grundvelli 3. mgr. 29. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991.

Gjaldskrá þessi öðlast gildi 1. janúar 2026 og fellur þá jafnframt úr gildi gjaldskrá sama efnis, nr. 1445/2024.

Borgarstjórinn í Reykjavík, 1. desember 2025.

Heiða Björg Hilmisdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 16. desember 2025

Tengd mál