Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja

Málaflokkur

Gullbringusýsla, Reykjanesbær, Gæludýr, Grindavík, Suðurnesjabær

Undirritunardagur

21. febrúar 2019

Útgáfudagur

7. mars 2019

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 234/2019

21. febrúar 2019

GJALDSKRÁ

fyrir hundahald á Suðurnesjum.

Árgjald fyrir að halda hund, sbr. staflið b. í 1. mgr. 2. gr. samþykktar nr. 428/1987 um hundahald í Keflavík, Njarðvík, Grindavík, Miðneshreppi, Gerðahreppi, Vatnsleysustrandarhreppi og Hafnahreppi, með síðari breytingum, skal vera kr. 17.976.

Allur kostnaður vegna föngunar hunds sem tekinn er laus, svo sem útkallskostnaður, bifreiðakostnaður og búrleiga, skal greiddur af hluteigandi leyfishafa eða umráðamanni hunds sé um leyfislausan hund að ræða.

Gjaldskrá þessi sem samin er og samþykkt af sveitarstjórnum Reykjanesbæjar, Grindavíkurbæjar, Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga, með heimild í 46. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, ásamt síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá nr. 462/2018 fyrir hundahald á Suðurnesjum.

F.h. sveitarfélaga á Suðurnesjum, 21. febrúar 2019,

Magnús Hinrik Guðjónsson,
framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja.

B deild - Útgáfud.: 7. mars 2019

Tengd mál