Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Ísafjarðarbær

Málaflokkur

Umhverfismál, Ísafjörður

Undirritunardagur

2. janúar 2007

Útgáfudagur

30. mars 2007

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 278/2007

2. janúar 2007

GJALDSKRÁ

fyrir sorphirðu í Ísafjarðarbæ.

1. gr.

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar er heimilt að leggja á sérstakt gjald vegna sorphirðu (sorphreinsunar og sorpeyðingar) í Ísafjarðarbæ.

2. gr.

Gjaldið er árlega sem hér greinir:

A) Íbúðir, íbúðarhúsnæði Sorphreinsigjald kr. 10.600 á íbúð
Sorpeyðingargjald kr. 18.400 á íbúð
Sorphirðugjöld alls kr. 29.000 á íbúð
Sumarbústaðir og íbúðarhúsnæði með ákvæði
um takmörkun á íveru vegna snjóflóðahættu: Sorpeyðingargjald kr. 7.470 á fasteign
Gjaldið skal innheimta með fasteignagjöldum.
B) Fyrirtæki, stofnanir, félög og aðrir lögaðilar:
Flokkur Sorpeyðingargjald kr.
0 0
1 13.500
2 27.000
3 54.000
4 108.000
5 162.000
6 270.000
7 378.000
8 621.000
9 945.000
10 1.242.000
11 22 kr./kíló

Aðilar skulu sjálfir sjá um að koma úrgangi á móttökustað.

Gjaldið innheimtist með fasteignagjöldum hjá þeim aðilum sem eiga fasteignir. Fyrir aðra greiðendur verður gefinn út sérstakur reikningur í byrjun árs, með sömu gjalddögum og fasteignagjöld.

Dráttarvextir reiknast 30 dögum eftir gjalddaga.

3. gr.

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar setur sérstaka gjaldskrá fyrir þjónustu FUNA sem veitt er aðilum utan marka kaupstaðarins. Ef aðili er með rekstur bæði innan og utan marka bæjarfélagsins skal greiða sérstaklega fyrir förgun sorps frá þeim hluta starfseminnar sem staðsett er utan Ísafjarðarbæjar. Fyrir förgun brotajárns skal greiða sérstaklega 11 kr. fyrir hvert kíló. Fyrir förgun óbrennanlegs sorps skal greiða sérstaklega 13 kr. fyrir hvert kíló. Fyrir förgun olíumengaðs jarðvegs skal greiða sérstaklega 3.327 kr. fyrir hvert tonn. Aðilar skulu sjálfir sjá um að koma brotajárni á móttökustað í FUNA.

Heimilt er að innheimta fyrir urðun á rækjuskel og öðrum stoðgrindum hryggleysingja sem svarar áætluðum urðunarkostnaði sem bæjarstjórn hefur samþykkt.

4. gr.

Að lokinni álagningu gjalda, samkvæmt B. lið 2. gr., gefst greiðendum 30 daga frestur til að gera athugasemdir við gjaldtöku bæjarstjórnar. Ósk um breytingu gjalda skal vera skrifleg og vel rökstudd og er bæjarstjórn heimilt að breyta gjaldtöku með tilliti til réttmæti framsettra athugasemda.

5. gr.

Gjaldskrá þessi, sem er samin og samþykkt af bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, er sett samkvæmt samþykkt fyrir sorphirðu hjá Ísafjarðarbæ, nr. 135/2000 og 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, til þess að öðlast gildi þegar í stað. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá fyrir sorphirðu í Ísafjarðarbæ nr. 1208/2005.

Ísafjarðarbæ, 2. janúar 2007.

Halldór Halldórsson bæjarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 30. mars 2007

Tengd mál