Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Mosfellsbær

Málaflokkur

Skipulagsmál, Mosfellsbær

Undirritunardagur

16. júní 2021

Útgáfudagur

18. júní 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 721/2021

16. júní 2021

AUGLÝSING

um samþykkt skipulagsmál í Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt skipulagsáætlanir sem hér segir:

Heytjarnarheiði, L252202, L125204 – 540/541-F.
Tillaga að nýju deiliskipulagi sýnir tvær nýjar frístundalóðir við Heytjarnarheiði. Lóðirnar eru 10.871 m2 og 17.264 m2. Í samræmi við aðalskipulag Mosfellsbæjar má byggja eitt frístundahús og gestahús á lóð mest 200 m2 á hvorri lóð. Aðkoma er um Lynghólsveg.

Heytjörn, L125365 – 525-F.
Deiliskipulagsbreytingin felur í sér að við Lynghólsveg 23 er byggingarreitur aðlagaður að þegar byggðu sumarhúsi og gerður er nýr byggingarreitur fyrir nýtt frístundahús. Við Lynghólsveg 19 er gert ráð fyrir nýjum byggingarreit fyrir aðstöðuhús. Annað í skipulaginu er óbreytt.

Bugðufljót 2 – 201-A.
Deiliskipulagsbreytingin felur í sér að nýrri innkeyrslu lóðar er bætt við vegna landhalla. Ný viðbótar aðkoma er vestan við lóð frá Bugðufljóti. Annað í skipulaginu er óbreytt.

Ofangreind skipulagsmál hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

F. h. Mosfellsbæjar, 16. júní 2021,

Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 18. júní 2021

Tengd mál