Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Opinber innkaup - framkvæmdir
Undirritunardagur
15. febrúar 2024
Útgáfudagur
5. mars 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 288/2024
15. febrúar 2024
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 950/2017, um sérleyfissamninga um verk eða þjónustu yfir viðmiðunarfjárhæðum Evrópska efnahagssvæðisins.
1. gr.
1. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar um viðmiðunarfjárhæðir orðist svo:
Reglugerðin gildir um sérleyfi þar sem áætlað verðmæti samnings, án virðisaukaskatts, er jafnt eða meira en 808.084.000 kr.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2497 frá 16. nóvember 2023 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/23/ESB að því er varðar viðmiðunarfjárhæð vegna sérleyfa.
Reglugerðin er sett með heimild í 3. mgr. 12. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup og öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 15. febrúar 2024.
F. h. r.
Jón Gunnar Vilhelmsson.
Þorsteinn Júlíus Árnason.
B deild - Útgáfud.: 5. mars 2024