Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Heilbrigðisráðuneytið
Málaflokkur
Heilbrigðismál, Sóttvarnir, Almannavarnir
Undirritunardagur
26. nóvember 2021
Útgáfudagur
26. nóvember 2021
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1328/2021
26. nóvember 2021
REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar, nr. 1266/2021.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:
- 1. tölul. 4. mgr. orðast svo: Allir gestir fæddir 2015 og fyrr framvísi neikvæðri niðurstöðu úr COVID-prófi (PCR eða antigen) sem má ekki vera eldra en 48 klst. Undanþegnir þessu eru þeir sem framvísa jákvæðri niðurstöðu úr PCR-prófi sem er eldra en 14 daga gamalt en yngra en 180 daga.
- Fjöldatakmarkanir 1. og 2. mgr. gilda ekki um almenningssamgöngur, hópbifreiðar, innanlandsflug, farþegaferjur og störf viðbragðsaðila, svo sem lögreglu, slökkviliðs, hjálparliðs almannavarna og heilbrigðisstarfsfólks. Enn fremur gildir ákvæðið ekki um störf ríkisstjórnar, ríkisráðs, þjóðaröryggisráðs, Alþingis og þegar dómstólar fara með dómsvald sitt.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, tekur þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 26. nóvember 2021.
Svandís Svavarsdóttir.
Ásta Valdimarsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 26. nóvember 2021