Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Vesturbyggð
Málaflokkur
Skipulagsmál, Barðastrandarsýslur
Undirritunardagur
20. ágúst 2025
Útgáfudagur
3. september 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 947/2025
20. ágúst 2025
AUGLÝSING
um deiliskipulag í Vesturbyggð.
Óveruleg breyting á deiliskipulagi Tálknafjarðarhafnar.
Heimastjórn Tálknafjarðar samþykkti á fundi sínum 12. ágúst 2025 breytingu deiliskipulagi Tálknafjarðarhafnar. Breytingin gengur út á að skilgreind er ný lóð. Stærð lóðar er 553 m². Innan lóðar er fyrirhugað að koma fyrir þvottaplani fyrir bíla og báta. Tillagan var grenndarkynnt með athugasemdafresti til 4. júlí 2025.
Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Patreksfirði, 20. ágúst 2025.
Óskar Örn Gunnarsson skipulagsfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 3. september 2025