Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

13. janúar 2020

Útgáfudagur

29. janúar 2020

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 53/2020

13. janúar 2020

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 153/2010 um takmörkun á inntöku nemenda í tilteknar námsgreinar við Háskóla Íslands.

1. gr.

Í stað tölunnar „8“ í lok 1. mgr. 7. gr. reglnanna kemur: 9.

2. gr.

Á eftir 9. gr. í III. kafla reglnanna bætist við ný grein, sem verður 9. gr. a. Jafnframt breytist tölusetning núverandi 9. gr. a. í IV. kafla reglnanna og verður hún 9. gr. b.

Ný 9. gr. a. hljóðar svo ásamt fyrirsögn:

9. gr. a.

Takmörkun á inntöku nemenda í þverfaglegt nám í hagnýtri atferlisgreiningu.

Fjöldi nýrra nemenda í námi til meistaraprófs eða viðbótardiplómu í hagnýtri atferlisgreiningu takmarkast samtals við töluna 20, enda uppfylli allir umsækjendur inntökuskilyrði. Allir nemendur skulu uppfylla inntökuskilyrði sbr. 1.–3. tölulið 2. mgr. að mati stjórnar námsins eða inntökunefndar. Við val á nemendum skal byggja á sjónarmiðum sem fram koma í 1. og 3. tölulið 2. mgr.

Nemendur sem hefja nám í hagnýtri atferlisgreiningu skulu uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  1. Hafa lokið grunnnámi í háskóla sem nýtist í námi í hagnýtri atferlisgreiningu.
  2. Námið felur í sér starfsnám þar sem m.a. er unnið með börnum og öðrum viðkvæmum hópum og er af þeim sökum gerð krafa um að umsækjendur leggi fram sakavottorð, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga nr. 90/2008, um leikskóla, 3. mgr. 11. gr. laga nr. 91/2008, um grunnskóla, 4. mgr. 8. gr. laga nr. 92/2008, um framhaldskóla, 3. mgr. 10. gr. æskulýðslaga, nr. 70/2007 og 36. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002.
  3. Geta gert grein fyrir hæfni sinni til náms. Við mat á hæfni skal byggja á eftirtöldum viðmiðum:

    1. Persónulegri greinargerð um forsendur og áhugasvið.
    2. Starfsreynslu, staðfestri af vinnuveitanda.
    3. Umsögn frá yfirmanni á stofnun á sviði mennta-, félags- eða heilbrigðisþjónustu ef við á.
    4. Einkunnum í öðru háskólanámi.
    5. Reynslu af rannsóknum og ritstörfum.
    6. Annarri menntun.
    7. Persónulegum viðtölum þegar þurfa þykir.

Stjórn námsins eða inntökunefnd sem stjórn námsins skipar fjallar um umsóknir nemenda og annast val þeirra. Telji stjórnin eða inntökunefnd að umsækjandi uppfylli ekki inntökuskilyrðin sbr. 1.–3. tölulið 2. mgr. hafnar hún umsókn. Nánari ákvæði um inntökuskilyrði og inntöku nemenda er að finna í kennsluskrá og á vef námsins.

3. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fenginni tillögu heilbrigðisvísindasviðs og menntavísindasviðs, eru settar samkvæmt heimild í 3. og 4. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast þegar gildi og verður beitt frá og með háskólaárinu 2020–2021.

Háskóla Íslands, 13. janúar 2020.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 29. janúar 2020

Tengd mál