Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

C deild

Stofnun

Utanríkisráðuneytið

Málaflokkur

Georgía

Undirritunardagur

17. maí 2024

Útgáfudagur

4. september 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 88/2024

17. maí 2024

AUGLÝSING

um fríverslunarsamning milli EFTA-ríkjanna og Georgíu.

Hinn 22. júní 2017 var norska utanríkisráðuneytinu afhent fullgildingarskjal Íslands vegna fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Georgíu sem gerður var í Bern 27. júní 2016. Alþingi hafði með ályktun nr. 5/146 hinn 6. apríl 2017 heimilað ríkisstjórninni að fullgilda samninginn. Samningurinn öðlaðist gildi gagnvart Íslandi 1. september 2017.

Samningurinn er birtur sem fylgiskjal með auglýsingu þessari. Viðauka við samninginn og nánari upplýsingar um hann má nálgast á vef utanríkisráðuneytisins.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

Utanríkisráðuneytinu, 17. maí 2024.

F. h. r.

Martin Eyjólfsson.

Anna Jóhannsdóttir.

C deild — Útgáfudagur: 4. september 2025

Tengd mál