Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Forsætisráðuneytið

Málaflokkur

Upplýsingar

Undirritunardagur

1. október 2024

Útgáfudagur

16. október 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1143/2024

1. október 2024

AUGLÝSING

um undanþágu lögaðila frá gildissviði upplýsingalaga.

1. gr.

Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, að fallast á tillögu fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. umsögn Samkeppniseftirlitsins, um að eftirtaldir lögaðilar skuli ekki falla undir gildissvið laganna, og skal undanþágan endurskoðuð eigi síðar en 1. október 2027:

  1. Landsvirkjun Power ehf.
  2. Orkufjarskipti hf.

2. gr.

Auglýsing þessi er birt samkvæmt heimild í 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og öðlast þegar gildi.

Forsætisráðuneytinu, 1. október 2024.

Bjarni Benediktsson.

Benedikt Árnason.

B deild - Útgáfud.: 16. október 2024

Tengd mál