Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

28. janúar 2019

Útgáfudagur

31. janúar 2019

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 109/2019

28. janúar 2019

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 877/2018 og reglum nr. 492/2001, um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár.

I. Breyting á reglum nr. 877/2018.

1. gr.

Í stað „1. febrúar 2019“ í 5. gr. reglanna kemur: 1. nóvember 2019.

II. Breyting á reglum nr. 492/2001.

2. gr.

Eftirfarandi ákvæði til bráðabirgða bætist við reglurnar, sem verður ný 2. mgr. 7. gr. reglnanna, svohljóðandi:

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 4. gr. er ríkissjóði heimilt að gefa út verðtryggð ríkisverðbréf þótt minna en fimm ár séu til gjalddaga.

III. Gildistaka o.fl.

3. gr.

Reglur þessar sem settar eru samkvæmt heimild í 1. og 2. mgr. 15. gr. laga nr. 38 frá 26. maí 2001, og sem hafa verið samþykktar af fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. 1. mgr. 15. gr. sömu laga; öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi reglur Seðlabanka Íslands um breytingu á reglum nr. 877/2018 og reglum nr. 492/2001, um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár nr. 949 frá 29. október 2018.

Reykjavík, 28. janúar 2019.

Seðlabanki Íslands,

Már Guðmundsson Sigríður Logadóttir
seðlabankastjóri. aðallögfræðingur.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 31. janúar 2019

Tengd mál