Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
9. október 2017
Útgáfudagur
23. október 2017
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 894/2017
9. október 2017
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 64. gr. reglnanna:
-
a.
liður
1.
mgr.
orðast
svo:
einstök námskeið fyrir háskólamenntað fólk á fagsviði þess, sem myndað geta samstæða heild og eru faglega á ábyrgð háskóladeilda og eftir atvikum metin til eininga. Samstæð heild einingabærra námskeiða gegn gjaldi getur aldrei numið fleiri en 30 einingum í 90 eininga námi á meistarastigi og 40 einingum í 120 eininga námi á meistarastigi. - Í lok b. liðar 1. mgr., á eftir orðinu „prófgráðu“, bætast við orðin: og lýtur sérstökum reglum.
- Á undan orðunum „b. lið 2. mgr.“ í 1. málsl. 2. mgr. bætast við orðin: a. lið 1. mgr. og.
2. gr.
Á eftir 1. málsl. 4. mgr. 75. gr. reglnanna bætist við nýr málsliður, svohljóðandi: Heimilt er að veita styrki til allt að þriggja ára, með fyrirvara um fjárveitingu.
3. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 9. október 2017.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 23. október 2017