Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Matvælaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Matvæli
Undirritunardagur
25. nóvember 2024
Útgáfudagur
3. desember 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1406/2024
25. nóvember 2024
REGLUGERÐ
um (25.) breytingu á reglugerð nr. 104/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 853/2004 um hollustuhætti sem varða matvæli úr dýraríkinu.
1. gr.
Á eftir 7. gr. d reglugerðarinnar kemur ný grein, 7. gr. e, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 3. tl. I. kafla X. þáttar III. viðauka reglugerðar nr. 853/2004/EB gildir eftirfarandi:
Egg skulu afhent neytendum í síðasta lagi innan 28 daga frá varpi.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a lagaum matvæli, nr. 93/1995.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 25. nóvember 2024.
Bjarni Benediktsson.
Iðunn María Guðjónsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 3. desember 2024