Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið (2012-2022)

Málaflokkur

Náttúrurannsóknir - náttúruvernd

Undirritunardagur

10. ágúst 2019

Útgáfudagur

26. ágúst 2019

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 740/2019

10. ágúst 2019

AUGLÝSING

um verndarsvæði á Norðurlandi – vatnasvið Jökulsár á Fjöllum í verndarflokki verndar- og orkunýtingaráætlunar.

1. gr. Um friðlýsinguna.

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið, á grundvelli verndarflokks þingsályktunar nr. 13/141 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, frá 14. janúar 2013, að friðlýsa vatnasvið Jökulsár á Fjöllum: 12 Arnardalsvirkjun og 13 Helmingsvirkjun á Fljótsdalshéraði, í Norðurþingi, Skútustaðahreppi og Þingeyjarsveit gagnvart orkuvinnslu á grundvelli 53. gr. laga nr. 60/2013, um náttúruvernd.

Verndarsvæðið er 3.453 km² að stærð.

2. gr. Markmið friðlýsingarinnar.

Tilgangur og markmið friðlýsingarinnar er að vernda vatnasvið Jökulsár á Fjöllum: 12 Arnardalsvirkjun og 13 Helmingsvirkjun gegn orkuvinnslu, sbr. 1. gr.

3. gr. Mörk verndarsvæðisins.

Mörk verndarsvæðisins eru sýnd á meðfylgjandi korti og afmarkast af þeim hnitum sem gefin eru upp í ISN93 hnitakerfi í viðauka 1.

Friðlýsingin nær til alls vatnasviðs Jökulsár á Fjöllum ofan áður fyrirhugaðra stíflumannvirkja og meginfarvegar árinnar og næsta nágrennis hans að brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum í Öxarfirði.

4. gr. Mannvirkjagerð og orkurannsóknir.

Orkuvinnsla fallvatna með uppsett rafafl 10 MW eða meira innan marka svæðisins er óheimil. Ekki er heimilt að veita leyfi tengd orkurannsóknum eða orkuvinnslu á verndarsvæðinu vegna virkjunar fallvatna með uppsett rafafl 10 MW eða meira. Að fengnu samþykki Umhverfisstofnunar og að undangenginni umsögn Náttúrufræðistofnunar Íslands er heimilt að stunda yfirborðsrannsóknir á verndarsvæðinu.

5. gr. Refsiákvæði.

Brot gegn friðlýsingu þessari varða sektum eða fangelsi allt að tveimur árum, sbr. 90. gr. laga um náttúruvernd, nr. 60/2013.

6. gr. Gildistaka.

Friðlýsingin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 10. ágúst 2019.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

VIÐAUKI (sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 26. ágúst 2019

Tengd mál