Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Matvælaráðuneytið

Málaflokkur

Landbúnaður, Skattar - gjöld - tollar, Innflutningur

Undirritunardagur

29. mars 2022

Útgáfudagur

1. apríl 2022

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 384/2022

29. mars 2022

REGLUGERÐ

um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1296/2021 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins.

1. gr.

Við reglugerðina bætist ný 2. mgr. 2. gr. sem hljóðar svo:

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. eru tímabil innflutnings framlengd til 30. júní 2022 vegna áhrifa stríðs í Úkraínu.

2. gr.

Í stað „apríl“ í 8. gr. kemur: júní.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 5. mgr. 12. gr. tollalaga nr. 88/2005 og 65. gr. B, búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 30. júní 2022.

Matvælaráðuneytinu, 29. mars 2022.

Svandís Svavarsdóttir.

Kristín Ösp Jónsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 1. apríl 2022

Tengd mál