Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Öryggismál, Fjarskipti

Undirritunardagur

20. nóvember 2025

Útgáfudagur

19. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1414/2025

20. nóvember 2025

AUGLÝSING

um skrá yfir rekstraraðila nauðsynlegrar þjónustu.

1. gr.

Innviðaráðherra heldur opinbera skrá yfir rekstraraðila nauðsynlegrar þjónustu hér á landi að fengnum tillögum sem Fjarskiptastofa hefur undirbúið í samráði við eftirlitsstjórnvöld, hvert á sínu sviði. Skráin er birt í viðauka með auglýsingu þessari og uppfærð eftir því sem tilefni er til og á a.m.k. tveggja ára fresti.

2. gr.

Auglýsing þessi er birt samkvæmt heimild í 4. mgr.  3. gr. laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða, nr. 78/2019, sbr. reglugerð um öryggi net- og upplýsingakerfa rekstraraðila nauðsynlegrar þjónustu, nr. 866/2020 og öðlast þegar gildi.

Frá sama tíma fellur úr gildi auglýsing um skrá yfir rekstraraðila nauðsynlegrar þjónustu, nr. 1331/2023.

Innviðaráðuneytinu, 20. nóvember 2025.

Eyjólfur Ármannson.

Ingilín Kristmannsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 19. desember 2025

Tengd mál