Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfisráðuneytið (2001-2012)

Málaflokkur

Hafnarfjörður, Náttúrurannsóknir - náttúruvernd

Undirritunardagur

3. apríl 2009

Útgáfudagur

24. apríl 2009

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 397/2009

3. apríl 2009

AUGLÝSING

um stofnun fólkvangs Hvaleyrarlóns og Hvaleyrarhöfða í Hafnarfirði.

1. gr.

Um friðlýsinguna.

Umhverfisráðherra hefur ákveðið að tillögu bæjarstjórnar Hafnarfjarðarkaupstaðar og að fengnu áliti Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar Íslands, að friðlýsa Hvaleyrarlón og fjörur Hvaleyrarhöfða í Hafnarfirði sem fólkvang, skv. 55. gr. laga um náttúruvernd, nr. 44/1999.

Útivistar- og fræðslugildi svæðisins er hátt. Dýralíf í leiru er allauðugt og er fuglalíf sérlega auðugt á svæðinu. Aðgengi fyrir íbúa er gott og einnig eru grunnskóli og leikskóli í nágrenninu og svæðið því tilvalið til útikennslu. Svæðið hefur lengi verið vinsælt til útivistar og er ákjósanlegt til fuglaskoðunar allt árið, en oft má sjá á svæðinu sjaldséða gesti eins og t.d. gráhegra. Svæðið er 39,9 hektarar að stærð.

2. gr.

Markmið friðlýsingarinnar.

Markmið með friðlýsingu Hvaleyrarlóns og fjara Hvaleyrarhöfða sem fólkvangs er að tryggja útivistar- og fræðslusvæði til útiveru og fuglaskoðunar ásamt því að vernda lífríki og leirur svæðisins sem eru m.a. mikilvægt búsvæði fugla.

3. gr.

Mörk fólkvangsins.

Mörk fólkvangsins afmarkast af eftirfarandi ISN-93 hnitapunktum og eru sýnd á meðfylgjandi uppdrætti:

Hnit X Y Hnit X Y
1 353707 399014 11 353532 399474
2 353804 398915 12 353731 399500
3 353785 398757 13 354044 399243
4 353709 398530 14 354478 399120
5 353513 398236 15 354709 399025
6 353440 398287 16 354702 398826
7 353636 398699 17 354513 398731
8 353637 398925 18 354415 398705
9 353571 398926 19 354316 398755
10 353472 399211 20 354293 398734 *

* Frá punkti nr. 20 yfir í punkt nr. 1 er fylgt sjóvarnargörðum (sjávarmegin) og göngustíg.

4. gr.

Umsjón með fólkvanginum.

Umsjón og rekstur fólkvangsins skal vera í höndum umhverfisnefndar Hafnarfjarðarkaupstaðar, samkvæmt samningi Umhverfisstofnunar og Hafnarfjarðarkaupstaðar sem umhverfisráðherra staðfestir. Umhverfisstofnun skal sjá um gerð verndaráætlunar fyrir fólkvanginn í samráði við Hafnarfjarðarkaupstað, sbr. d-lið 6. gr. laga um náttúruvernd, nr. 44/1999.

5. gr.

Umferð um fólkvanginn.

Almenningi er heimil för um fólkvanginn, enda sé gætt góðrar umgengni. Í samræmi við samþykkt um hundahald er óheimilt að hafa hunda í fólkvanginum án fylgdar og tryggrar stjórnar.

Umferð vélknúinna farartækja, þ.m.t. sjóþotur (jet-ski), er óheimil í friðlandinu. Þó er eigendum bátaskýla við Hvaleyrarlón heimilt að sigla að skýlunum, en þeim ber að tryggja að ekki hljótist af mengun vegna spilliefna.

6. gr.

Verndun gróðurs, dýralífs og jarðmyndana.

Óheimilt er að spilla gróðri og trufla dýralíf á svæðinu. Óheimilt er að hrófla við eða skemma á annan hátt jarðmyndanir í fólkvanginum. Veiðar á dýrum sem valda tjóni eru heimilar í fólkvanginum en þó aðeins í samræmi við lög nr. 64/1994.

7. gr.

Landnotkun og mannvirkjagerð.

Allar framkvæmdir innan fólkvangsins eru háðar leyfi Hafnarfjarðarkaupstaðar og Umhverfisstofnunar, sbr. 38. gr. laga um náttúruvernd, nr. 44/1999. Framkvæmdir skulu vera í samræmi við samþykkt skipulag og verndaráætlun. Gert er ráð fyrir viðhaldi sjóvarnargarða og göngustígs við mörk fólkvangsins frá hnitapunkti 20 að punkti 1, sbr. kort og hnitatöflu hér að framan. Gert er ráð fyrir merktum og stikuðum gönguleiðum og stígum um þurrlendi svæðisins ásamt aðstöðu til náttúruskoðunar og umhverfisfræðslu, t.d. fuglaskoðunarskýli.

8. gr.

Undanþágur.

Umhverfisráðherra getur, að fenginni umsögn Umhverfisstofnunar og umhverfisnefndar Hafnarfjarðarkaupstaðar, veitt heimild til þess að vikið verði frá reglum þessum í einstökum tilfellum gangi það ekki gegn markmiðum friðlýsingarinnar.

9. gr.

Refsiákvæði.

Brot gegn friðlýsingu þessari varðar sektum eða fangelsi allt að tveimur árum, sbr. 75. og 76. gr. laga um náttúruvernd, nr. 44/1999.

10. gr.

Gildistaka.

Friðlýsingin öðlast þegar gildi.

Umhverfisráðuneytinu, 3. apríl, 2009.

Kolbrún Halldórsdóttir.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 24. apríl 2009

Tengd mál