Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Fjallabyggð

Málaflokkur

Sorphreinsun, Fjallabyggð

Undirritunardagur

1. janúar 2026

Útgáfudagur

6. febrúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 115/2026

1. janúar 2026

GJALDSKRÁ

fyrir sorphirðu í Fjallabyggð.

1. gr.

Sorphirðugjöld greiðast árlega sem hér greinir:

Íbúðarhúsnæði  85.000 kr. í sorphirðugjald
Frístundahús (á skipulögðum frístundasvæðum) 47.500 kr. í sorphirðugjald

Innifalið í sorphirðugjaldi er eitt ílát fyrir blandaðan úrgang, eitt ílát fyrir pappa og pappír, eitt ílát fyrir lífrænan úrgang og eitt ílát fyrir plast.

Sorpgjaldinu er ætlað að standa undir kostnaði við sorphirðu, sorpeyðingu og urðun sorps, ásamt kostnaði við rekstur endurvinnslu- og grenndarstöðva.

Gjald þetta er innheimt árlega samhliða fasteignagjöldum.

2. gr.

Gjald fyrir eyðingu á dýrahræjum er innheimt af búfjáreigendum, sem eru með skráðan bústofn samkvæmt búfjárskýrslum Búnaðarstofu. Móttaka dýrahræja er á gámasvæði/móttökustöð sveitarfélagsins.

Gjald fyrir söfnun og förgun dýraleifa í Fjallabyggð verður sem hér segir á árinu 2026:

Sauðfé/geitfé 156 kr./grip
Nautgripir 940 kr./grip
Geldneyti/nautkálfar  520 kr./grip
Hross 625 kr./grip
Grísir 438 kr./grip
Hænsn 5 kr./grip

Gjald fyrir söfnun og eyðingu á dýrahræjum miðast við meðaltalsafföll í hefðbundnum búrekstri. Ekki er ætlast til að býli með umfangsmikla sláturstarfsemi nýti þjónustuna fyrir sláturúrgang. Þeim aðilum ber að semja beint við þjónustuaðila um förgun á sláturúrgangi.

Fjöldi gjalddaga verða tíu. Gjöld sem ekki ná 1.000 kr. falla niður. Ef gjaldið nær ekki 15.000 kr. á gjaldanda, verður öll upphæðin innheimt á fyrsta gjalddaga.

3. gr.

Fyrirkomulag móttöku á endurvinnslustöð í Fjallabyggð er sem hér segir:

Í upphafi árs er úthlutað gjaldfrjálst einu rafrænu korti á íbúð (16 klipp, 4 m³) og sumarhús (8 klipp, 2 m³) sem afhent eru rafrænt eða í þjónustuveri Ráðhúss Fjallabyggðar á Siglufirði. Eingöngu er úthlutað gjaldfrjálsu korti til greiðenda fasteignagjalda af skráðu íbúðarhúsnæði og frístundahúsnæði í sveitarfélaginu. Leigjendur verða að nálgast kortin hjá leigusala eða kaupa sér kort.

Tekið verður af kortinu fyrir gjaldskyldan úrgang á meðan tekið verður á móti ógjaldskyldum úrgangi án greiðslu. Skylt er að hafa kortið meðferðis þegar farið er á endurvinnslustöðina hvort sem um gjaldskyldan eða ógjaldskyldan varning er að ræða.

Hvert klipp er fyrir 0,25 m³ sem samsvarar 240 l heimilistunnu. Ef kort klárast er hægt að kaupa aukakort á kr. 15.260.

Rekstraraðilar geta keypt klippikort í þjónustuveri Ráðhússins á Siglufirði á kr. 37.110 sem inniheldur 16 klipp fyrir 0,25 m³ eða samtals 4 m³.

Ekki er tekið gjald fyrir móttöku á flokkuðum úrgangi sem ber úrvinnslugjald frá íbúðum og sumarhúsum, þar má nefna: pappaumbúðir, plastumbúðir, hjólbarða, ýmis spilliefni og úrelt ökutæki.

4. gr.

Til tryggingar á greiðslu skv. gjaldskrá um sorphirðu og urðun í Fjallabyggð er lögveðsréttur í viðkomandi fasteign í tvö ár eftir gjalddaga. Öll verð í gjaldskránni eru án virðisaukaskatts.

5. gr.

Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt 12. gr. samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Fjallabyggð. Gjaldskráin var samþykkt á fundi bæjarstjórnar Fjallabyggðar 27. nóvember 2025 og öðlast þegar gildi og fellur þá gjaldskrá sama efnis nr. 1602/2024 úr gildi.

Fjallabyggð, 1. janúar 2026.

Þórir Hákonarson bæjarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 6. febrúar 2026

Tengd mál