Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Persónuvernd
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Persónuvernd
Undirritunardagur
1. mars 2010
Útgáfudagur
17. mars 2010
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 228/2010
1. mars 2010
AUGLÝSING
um flutning persónuupplýsinga til annarra landa.
1. gr.
Flutningur persónuupplýsinga úr landi. Fullnægjandi vernd.
Lög eftirtalinna ríkja teljast veita persónuupplýsingum fullnægjandi vernd í skilningi 29. gr. laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og er því heimilt að flytja persónuupplýsingar til þeirra, að fullnægðum skilyrðum laganna:
- Aðildarríki EES og EFTA,
- Sviss,
- Kanada,
- Argentína,
- Guernsey,
- Mön,
- Jersey.
2. gr.
Öruggar hafnir.
Heimilt er að flytja persónuupplýsingar til aðila í Bandaríkjunum sem fara að reglum, útgefnum af viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna, um örugga höfn fyrir friðhelgi einkalífsins, sbr. ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar nr. 2000/520/EB frá 26. júlí 2000 (Stjtíð. EB L 215, 25.8.2000, bls. 7. (Ákvörðun nr. 108/00. (EES-viðbætir nr. 8/47, 15.2.2001). Gildistaka: 1.12.2000)).
3. gr.
Staðlaðir samningsskilmálar.
Við veitingu leyfis til flutnings persónuupplýsinga til lands, sem ekki veitir fullnægjandi persónuupplýsingavernd, sbr. 2. mgr. 30. gr. laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, getur Persónuvernd m.a. gert að skilyrði:
- Að ábyrgðaraðili hér á landi geri skriflegan samning við erlendan viðtakanda í samræmi við ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB nr. 2001/497/EB frá 15. júní 2001 um föst samningsákvæði vegna flutnings persónuupplýsinga til þriðju landa samkvæmt tilskipun 95/46/EB frá (Stjtíð. EB L 181, 4.7.2001, bls. 19), eins og hún var leiðrétt með Stjtíð. EB L 253, 21.9.2001, bls. 34, og eins og henni var breytt með ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar nr. 2004/915/EB frá 27. desember 2004 (Stjtíð. EB L 385, 29.12.2004, bls. 74. (Ákvörðun nr. 9/2006. (EES-viðbætir 17/10, 30.3.2006). Gildistaka: 28.1.2006)).
- Að ábyrgðaraðili hér á landi geri skriflegan samning við erlendan viðtakanda í samræmi við ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB nr. 2010/87/EB frá 5. febrúar 2010 um stöðluð samningsákvæði vegna flutnings persónuupplýsinga til vinnsluaðila með staðfestu í þriðju löndum samkvæmt tilskipun 95/46/EB.
4. gr.
Gildistaka o.fl.
Auglýsing þessi er gefin út með stoð í 1. mgr. 6. gr., 4. mgr. 13. gr. og 2. mgr. 29. gr. og 2. mgr. 30. gr. laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, sbr. lög nr. 90/2001. Samhliða birtingu hennar fellur úr gildi fyrri auglýsing um sama efni nr. 638/2005, eins og henni var breytt með auglýsingu nr. 1041/2006 og 425/2009.
Persónuvernd, 1. mars 2010.
Aðalsteinn E. Jónasson.
Sigrún Jóhannesdóttir.
B deild - Útgáfud.: 17. mars 2010