Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Atvinnuvegaráðuneytið

Málaflokkur

Ríkisstofnanir, Rannsóknir

Undirritunardagur

12. maí 2026

Útgáfudagur

20. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 47/2026

12. maí 2026

LÖG

um breytingu á lögum um Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, nr. 112/2015 (hlutverk, ráðgjafarnefnd, forstjóri o.fl.).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.

1. gr. laganna orðast svo:

Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, er sjálfstæð stofnun sem heyrir undir ráðherra.

2. gr.

3. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:

Forstjóri o.fl.

Ráðherra skipar forstjóra Hafrannsóknastofnunar, rannsókna- og ráðgjafarstofnunar hafs og vatna, til fimm ára í senn. Forstjóri skal hafa háskólamenntun sem nýtist í starfi. Forstjóri ber ábyrgð á starfsemi stofnunarinnar og annast rekstur hennar.

Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, skal setja sér langtímastefnu, m.a. um rannsóknir, sem ráðherra staðfestir.

3. gr.

4. gr. laganna orðast svo:

Forstjóri hefur sér til ráðuneytis ráðgjafarnefnd. Ráðherra skipar ráðgjafarnefnd til fjögurra ára í senn. Ráðherra skipar nefndarmenn án tilnefningar, skipar formann og setur honum erindisbréf. Við skipan nefndarinnar skal leitast við að tryggja aðkomu helstu hagsmunaaðila og faglega þekkingu á fagsviði stofnunarinnar.

Ráðgjafarnefndin skal að jafnaði funda fjórum sinnum á ári. Formaður ráðgjafarnefndar boðar fundi nefndarinnar.

Verkefni nefndarinnar er að vera forstjóra til ráðuneytis um mótun langtímastefnu, m.a. um rannsóknir skv. 2. mgr. 3. gr., og eftirfylgni hennar og vera tengiliður við hagsmunaaðila um fagleg málefni.

4. gr.

5. gr. laganna orðast svo:

Hlutverk Hafrannsóknastofnunar skal vera að:

  1. Rannsaka lífríki og vistkerfi sjávar og ferskvatns ásamt umhverfisþáttum þeirra.
  2. Veita stjórnvöldum ráðgjöf varðandi sjálfbæra nýtingu á auðlindum og verndun umhverfis í sjó og ferskvatni í samræmi við nýtingarstefnu stjórnvalda.
  3. Veita einstaklingum, lögaðilum og hagsmunaaðilum þjónustu og ráðgjöf á fagsviðum stofnunarinnar eftir atvikum gegn gjaldi.
  4. Miðla til stjórnvalda, hagsmunaaðila og almennings upplýsingum, rannsóknaniðurstöðum og gögnum um sjálfbærar nytjar og umhverfi hafs og ferskvatns.
  5. Styðja við nýsköpun og tækniþróun á sviði sjávar- og ferskvatnstengdrar starfsemi sem eykur sjálfbærni, fjölbreytni og hagkvæmni í nýtingu auðlinda.
  6. Annast milliríkjasamstarf og erlend samskipti á fagsviði stofnunarinnar.

5. gr.

6. gr. laganna orðast svo:

Hafrannsóknastofnun skal í samstarfi við háskóla og rannsóknastofnanir á fagsviði sínu taka þátt í uppbyggingu þekkingar og menntunar, m.a. með þátttöku í kennslu og vísindasamfélagi, með sameiginlegum rannsóknarverkefnum og með þátttöku nemenda í framhaldsnámi í rannsóknarverkefnum stofnunarinnar.

6. gr.

7. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:

Fjármögnun og gjaldtaka.

Kostnaður við starfrækslu Hafrannsóknastofnunar greiðist af fjárveitingum úr ríkissjóði samkvæmt fjárlögum.

Hafrannsóknastofnun er heimilt að afla sér tekna með sölu á þjónustu á verksviði stofnunarinnar, af rannsóknastarfsemi sem samrýmist hlutverki stofnunarinnar, svo og af leigu tækja og búnaðar og úrvinnslu og afgreiðslu gagna.

Gjaldtaka skv. 2. mgr. skal ákveðin í gjaldskrá sem ráðherra staðfestir og skal hún birt í B-deild Stjórnartíðinda.

Stofnuninni er heimilt að afla tekna með sölu afla sem fellur til vegna rannsókna og sölu hlutdeildar í félögum, sbr. 8. gr.

Stofnuninni er heimilt að veita viðtöku fjárframlögum og afla rannsókna- og þróunarstyrkja, jafnt innan lands sem utan, sem samrýmast hlutverki stofnunarinnar.

Þann hluta starfsemi Hafrannsóknastofnunar sem rekinn er á viðskiptagrundvelli á samkeppnismarkaði skal skilja fjárhagslega frá öðrum þáttum rekstrarins og skal endurgjald taka mið af markaðsverði. Sala á þjónustu samkvæmt þessari málsgrein skal byggjast á samningum.

7. gr.

Við 9. gr. laganna bætist: t.d. með því að fela stofnuninni rannsóknir og önnur tengd verkefni.

8. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi.

Gjört í Reykjavík, 12. maí 2026.

Halla Tómasdóttir.

(L. S.)

Hanna Katrín Friðriksson.

A deild — Útgáfudagur: 20. maí 2026

Tengd mál