Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Forsætisráðuneytið
Málaflokkur
Ríkisstofnanir, Alþingi, Fjárlög - ríkisreikningur
Undirritunardagur
7. júní 2016
Útgáfudagur
10. júní 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 46/2016
7. júní 2016
LÖG
um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga.
FORSETI
ÍSLANDS
gjörir
kunnugt:
Alþingi
hefur
fallist
á
lög
þessi
og
ég
staðfest
þau
með
samþykki
mínu:
I. KAFLI Kosning ríkisendurskoðanda og hlutverk.
1. gr. Ríkisendurskoðandi og Ríkisendurskoðun.
Ríkisendurskoðandi
starfar
á
vegum
Alþingis.
Hann
er
trúnaðarmaður
þess
og
ábyrgur
gagnvart
því
við
endurskoðun
og
eftirlit
með
rekstri
og
fjármálum
ríkisins.
Skrifstofa
ríkisendurskoðanda
nefnist
Ríkisendurskoðun
og
fer
hann
með
stjórn
hennar.
Ríkisendurskoðandi
er
sjálfstæður
og
engum
háður
í
störfum
sínum
og
ákveður
sjálfur
hvernig
hann
sinnir
hlutverki
sínu
samkvæmt
lögum
þessum.
2. gr. Kosning ríkisendurskoðanda.
Alþingi
kýs
ríkisendurskoðanda
til
sex
ára
í
senn.
Hann
skal
hafa
þekkingu
á
reikningsskilum
og
ríkisrekstri
auk
stjórnunarreynslu
og
má
ekki
vera
alþingismaður.
Forsætisnefnd
Alþingis
tilnefnir
fulltrúa
við
kosninguna.
Aðrar
tilnefningar
þingmanna
skulu
berast
forseta
Alþingis
svo
tímanlega
að
unnt
sé
að
kanna
kjörgengisskilyrði
áður
en
kosning
fer
fram.
Heimilt
er
að
endurkjósa
ríkisendurskoðanda
einu
sinni.
Ef
ríkisendurskoðandi
andast
eða
verður
af
öðrum
sökum
ófær
um
að
gegna
starfinu
á
starfstíma
sínum
kýs
Alþingi
ríkisendurskoðanda
að
nýju.
Sama
hátt
skal
hafa
á
ef
ríkisendurskoðandi
fær
að
eigin
ósk
lausn
frá
embætti
sínu
eða
tveir
þriðju
hlutar
þingmanna
samþykkja
að
víkja
honum
úr
embætti.
Við
tímabundin
forföll
ríkisendurskoðanda
gegnir
staðgengill
embætti
hans
meðan
forföll
vara,
sbr.
2.
mgr.
19.
gr.
3. gr. Hlutverk.
Hlutverk
ríkisendurskoðanda
er
að
hafa
í
umboði
Alþingis
eftirlit
með
fjárreiðum
ríkisins,
stofnana
þess
og
ríkisfyrirtækja
á
þann
hátt
sem
nánar
greinir
í
lögum
þessum.
Hann
skal
í
störfum
sínum
hafa
eftirlit
með
tekjum
ríkisins
og
að
fjárheimildir
og
hvers
konar
verðmæti
séu
nýtt
og
þeim
ráðstafað
á
hagkvæman
og
réttmætan
hátt
og
í
samræmi
við
forsendur
og
ákvarðanir
Alþingis.
Ríkisendurskoðandi
skal
upplýsa
Alþingi
og
stjórnvöld
um
málefni
sem
varða
rekstur
og
fjárreiður
ríkisins,
leiða
í
ljós
frávik
frá
lögum
og
reglum
á
því
sviði
og
gera
tillögur
að
úrbótum,
bættri
stjórnsýslu,
skýrari
ábyrgð
og
betri
nýtingu
ríkisfjár.
II. KAFLI Endurskoðun og eftirlit.
4. gr. Starfssvið ríkisendurskoðanda.
Starfssvið ríkisendurskoðanda tekur til:
- endurskoðunar ríkisreiknings og ársreikninga ríkisaðila í A-hluta ríkisreiknings, sbr. lög um fjárreiður ríkisins, þar sem kostnaður er greiddur af ríkissjóði samkvæmt fjárlögum,
- endurskoðunar ársreikninga sjóða og ríkisfyrirtækja sem eru rekin á ábyrgð ríkissjóðs,
- endurskoðunar ársreikninga hlutafélaga og sameignarfélaga þar sem ríkið á helmingshlut eða meira,
- eftirlits með framkvæmd samninga sem eru gerðir við sveitarfélög eða einkaaðila,
- endurskoðunar og eftirlits með verkefnum og starfsemi sem Ríkisendurskoðun hefur á hendi samkvæmt öðrum lögum,
- endurskoðunar ársreikninga alþjóðastofnana sem Ísland er aðili að þegar það á við,
- eftirlits með starfsemi og árangri ríkisaðila,
- aðstoðar við störf þingnefnda er varða fjárhagsmálefni ríkisins, þ.m.t. eftirlit með framkvæmd fjárlaga.
Ríkisendurskoðandi
getur
jafnframt
ákveðið
að
kanna
árshlutareikninga
aðila
skv.
1.
mgr.
eftir
því
sem
við
á.
Ríkisendurskoðandi
tilnefnir
óháðan
löggiltan
endurskoðanda
eða
endurskoðunarfyrirtæki
sem
endurskoðar
reikninga
Alþingis.
5. gr. Fjárhagsendurskoðun.
Fjárhagsendurskoðun ríkisendurskoðanda tekur mið af eftirfarandi:
- að reikningsskil gefi glögga mynd af rekstri, fjárhagslegri stöðu og breytingu á henni á árinu í samræmi við settar reikningsskilareglur fyrir opinbera aðila,
- að kanna innra eftirlit og hvort það tryggir viðunandi árangur,
- að rekstur og umsvif séu í samræmi við heimildir fjárlaga, fjáraukalaga og annarra laga, lögmæt fyrirmæli, samninga og starfsvenjur þar sem það á við.
6. gr. Stjórnsýsluendurskoðun.
Stjórnsýsluendurskoðun felur í sér mat á frammistöðu þeirra aðila sem ríkisendurskoðandi hefur eftirlit með. Markmið stjórnsýsluendurskoðunar er að stuðla að úrbótum þar sem einkum er horft til eftirfarandi atriða:
- meðferðar og nýtingar ríkisfjár,
- hvort hagkvæmni og skilvirkni sé gætt í rekstri stofnana og fyrirtækja í eigu ríkisins,
- hvort framlög ríkisins skili þeim árangri sem að er stefnt.
Við
mat
á
frammistöðu
skal
meðal
annars
líta
til
þess
hvort
starfsemi
sé
í
samræmi
við
fjárheimildir,
þá
löggjöf
sem
gildir
um
hana
og
góða
og
viðurkennda
starfshætti.
Stjórnsýsluendurskoðun
getur
einnig
falið
í
sér
mat
á
því
hvernig
stjórnvöld
framfylgja
áætlunum,
lagafyrirmælum
og
skuldbindingum
á
sviði
umhverfismála.
7. gr. Útvistun verkefna.
Ríkisendurskoðanda
er
heimilt
að
fela
endurskoðendum,
endurskoðunarfyrirtækjum
og
öðrum
sérfræðingum
að
vinna
í
umboði
sínu
að
einstökum
verkefnum
sem
stofnuninni
eru
falin
með
lögum.
Ríkisendurskoðanda
er
heimilt
fyrir
hvern
aðalfund
eða
ársfund
félags
í
meirihlutaeigu
ríkisins
að
tilnefna
endurskoðanda
eða
endurskoðunarfyrirtæki
til
þess
að
annast
endurskoðun
ársreikninga
félaga
skv.
c-lið
1.
mgr.
4.
gr.
Val
á
endurskoðunarfélagi
eða
endurskoðanda
skal
ákveðið
í
samráði
við
endurskoðunarnefndir
þar
sem
það
á
við.
Aðili
sem
falin
er
endurskoðun
félags
skv.
2.
mgr.
skal
láta
Ríkisendurskoðun
í
té
upplýsingar
og
gögn
um
framkvæmd
endurskoðunarinnar
samkvæmt
nánari
ákvörðun
ríkisendurskoðanda.
8. gr. Gjaldtaka.
Ríkisendurskoðanda
er
heimilt
að
taka
gjald
fyrir
fjárhagsendurskoðun
á
ársreikningum
aðila
sem
falla
undir
eftirlit
hans
að
undanskildum
stofnunum
í
A-hluta
ríkisreiknings,
sbr.
lög
um
fjárreiður
ríkisins,
er
nemi
þeim
kostnaði
sem
af
endurskoðuninni
hlýst.
Þegar
sérstaklega
stendur
á
og
nauðsynlegt
er
að
ríkisendurskoðandi
skoði
eða
geri
úttekt
á
meðferð
ríkisfjár
í
tilteknu
máli
eða
á
tilteknu
sviði
er
honum
heimilt
að
taka
gjald
fyrir.
9. gr. Staðlar og verklagsreglur.
Endurskoðun skal unnin í samræmi við viðurkennda endurskoðunarstaðla og verklagsreglur sem gilda um endurskoðun hjá opinberum aðilum eftir því sem við á. Ríkisendurskoðandi birtir á vefsíðu sinni staðla og verklagsreglur eða tilvísun til þeirra.
III. KAFLI Aðgangur að reikningsskilum, gögnum og upplýsingum.
10. gr. Skoðunarheimildir.
Ríkisendurskoðandi
getur
krafist
reikningsskila,
upplýsinga
og
gagna
af
aðilum
sem
falla
undir
eftirlit
hans
og
þeim
sem
fá
fé
eða
ábyrgðir
frá
ríkinu,
þ.m.t.
um
það
hvernig
fjármunum
var
ráðstafað.
Til
þess
að
sannreyna
efni
innsendra
reikninga
og
greiðsluskyldu
ríkissjóðs
hefur
ríkisendurskoðandi
aðgang
að
frumgögnum
eða
skýrslum
sem
færðar
eru
samhliða
reikningsgerð
á
hendur
ríkinu
eða
ríkisstofnunum
fyrir
vinnu
eða
þjónustu
á
grundvelli
laga,
verksamninga
eða
gjaldskrársamninga
við
einstaklinga,
félög
eða
stofnanir.
Ríkisendurskoðandi
getur
skoðað
reikningsskil
sveitarfélaga
að
því
leyti
sem
þau
varða
sameiginlega
starfsemi
ríkis
og
sveitarfélaga.
Enn
fremur
getur
hann
skoðað
reikningsskil
þeirra
stofnana
og
félaga
sem
ríkissjóður
á
hlut
í.
Nú
verður
ágreiningur
um
skoðunarheimild
ríkisendurskoðanda
og
getur
hann
þá
leitað
úrskurðar
dómstóla
um
hann.
11. gr. Aðgangur að gögnum og upplýsingum.
Í
störfum
sínum
hefur
ríkisendurskoðandi
aðgang
að
öllum
gögnum
sem
máli
skipta,
þar
á
meðal
bókhaldi,
fylgiskjölum,
skýrslum
og
bréfum.
Þá
getur
hann
krafist
upplýsinga
og
gagna
sem
geta
haft
þýðingu
við
störf
hans.
Ríkisendurskoðandi
ákveður
hvar
og
hvenær
endurskoðað
er.
Þegar
ákveðið
er
að
endurskoðun
fari
fram
á
skrifstofu
aðila
sem
heyrir
undir
eftirlit
ríkisendurskoðanda
er
skylt
að
veita
alla
nauðsynlega
aðstöðu
til
þess
að
endurskoðun
geti
farið
þar
fram.
Ríkisendurskoðandi
getur
veitt
hæfilegan
frest
til
skila
á
gögnum
og
upplýsingum
vegna
endurskoðunar
eða
annars
eftirlits
af
hans
hálfu
eða
til
þess
að
svara
athugasemdum
sem
gerðar
hafa
verið
við
bókhald,
fjárvörslu
og
rekstur.
Ríkisendurskoðandi
getur
leitað
aðstoðar
lögreglu
þegar
sérstaklega
stendur
á
og
er
lögreglu
þá
skylt
að
veita
aðstoð
ef
hann
óskar
þess.
IV. KAFLI Málsmeðferðarreglur.
12. gr. Þagnarskylda.
Ríkisendurskoðanda
ber
að
gæta
þagnarskyldu
um
atvik
sem
honum
verða
kunn
í
starfinu
og
leynt
eiga
að
fara
vegna
lögmætra
almanna-
eða
einkahagsmuna.
Sama
gildir
um
starfsfólk
hans
og
aðra
sem
starfa
í
þágu
ríkisendurskoðanda.
Þagnarskylda
helst
þótt
látið
sé
af
starfi
eða
verki
lokið.
Þeim
sem
í
hlut
á
er
óheimilt
að
nýta
upplýsingar
skv.
1.
mgr.
í
eigin
starfsemi
eða
í
þjónustu
annarra.
Heimilt
er
að
afhenda
þingnefndum
og
sérfræðilegum
ráðgjöfum
upplýsingar
og
gögn
sem
trúnaður
ríkir
um
að
svo
miklu
leyti
sem
slíkt
er
nauðsynlegt.
Sé
það
gert
hvílir
þagnarskylda
á
þeim
sem
fær
gögnin
afhent.
Ákvæði
þessarar
greinar
standa
því
ekki
í
vegi
að
ríkisendurskoðandi
geti
birt
upplýsingar
sem
annars
væru
háðar
þagnarskyldu
ef
hann
telur
slíkt
nauðsynlegt
til
að
rökstyðja
niðurstöður
sínar.
Þó
skal
því
aðeins
birta
upplýsingar
um
persónuleg
málefni
einstaklinga,
þ.m.t.
fjármál
þeirra,
að
almannahagsmunir
vegi
þyngra
en
hagsmunir
þess
einstaklings
sem
í
hlut
á.
Þrátt
fyrir
ákvæði
1.
mgr.
er
ríkisendurskoðanda
heimilt
að
veita
lögreglu
upplýsingar
og
afhenda
henni
gögn
í
þágu
rannsóknar
sakamáls.
Hann
tilkynnir
lögreglu
um
refsiverða
háttsemi
sem
hann
verður
var
við
í
starfi
sínu.
Þá
getur
hann
einnig
átt
samstarf
við
rannsóknarnefndir,
samkvæmt
lögum
um
rannsóknarnefndir,
og
aðra
eftirlitsaðila.
Ekki
er
heimilt
að
nota
upplýsingar
sem
einstaklingur
hefur
veitt
ríkisendurskoðanda
sem
sönnunargagn
í
sakamáli
sem
er
höfðað
gegn
honum.
13. gr. Hæfi.
Ríkisendurskoðandi og þeir sem starfa hjá eða á vegum Ríkisendurskoðunar mega ekki annast endurskoðunar- og eftirlitsstörf samkvæmt lögum þessum:
- hjá aðilum sem þeir tengjast með þeim hætti sem greinir í 1.–3. tölul. 1. mgr. 3. gr. stjórnsýslulaga,
- ef að öðru leyti eru fyrir hendi slíkar aðstæður að með réttu má draga í efa óhlutdrægni þeirra.
Ákvæði
5.
tölul.
1.
mgr.
3.
gr.
stjórnsýslulaga
um
áhrif
vanhæfis
undirmanns
fyrir
næstu
yfirmenn
eiga
við
um
starfsmenn
Ríkisendurskoðunar.
Ríkisendurskoðandi
sker
úr
um
sérstakt
hæfi
sitt
og
annarra
sem
starfa
í
þágu
Ríkisendurskoðunar.
Verði
ágreiningur
um
sérstakt
hæfi
ríkisendurskoðanda
sker
forseti
Alþingis
úr.
Þegar
ríkisendurskoðandi
telur
sig
vanhæfan
til
að
fjalla
um
og
afgreiða
tiltekið
mál
víkur
hann
sæti
við
athugun
þess
og
setur
forseti
Alþingis
þá
sérstakan
ríkisendurskoðanda
til
þess
að
fara
með
málið.
Skal
hann
uppfylla
sömu
kröfur
og
gerðar
eru
til
hæfis
ríkisendurskoðanda,
sbr.
1.
mgr.
2.
gr.
14. gr. Umsagnarréttur.
Senda skal þeim sem sætir athugun eða eftirliti ríkisendurskoðanda drög að skýrslum og greinargerðum til umsagnar. Við lok fjárhagsendurskoðunar skal senda hlutaðeigandi aðila drög að endurskoðunarbréfi til umsagnar ef í því felast athugasemdir. Ríkisendurskoðandi veitir hæfilegan frest til umsagnar.
15. gr. Aðgangur að gögnum hjá Ríkisendurskoðun.
Ósk
um
aðgang
að
gögnum
sem
stjórnvald
eða
annar
eftirlitsskyldur
aðili
hefur
afhent
ríkisendurskoðanda
skal
beint
til
viðkomandi
stjórnvalds
eða
aðila.
Ef
óskað
er
aðgangs
að
gögnum
sem
hafa
orðið
til
í
samskiptum
ríkisendurskoðanda
og
eftirlitsskylds
aðila
fer
um
aðgang
að
þeim
hjá
Ríkisendurskoðun
eftir
ákvæðum
upplýsingalaga
eða
ákvæðum
laga
um
upplýsingarétt
um
umhverfismál
eftir
atvikum.
Skýrslur,
greinargerðir
og
önnur
gögn
sem
ríkisendurskoðandi
hefur
útbúið
og
eru
hluti
af
máli
sem
hann
hyggst
kynna
Alþingi
geta
fyrst
orðið
aðgengileg
þegar
þingið
hefur
fengið
þau
afhent.
Undanþegin
aðgangi
eru
drög
að
slíkum
gögnum
sem
send
hafa
verið
aðilum
til
kynningar
eða
umsagnar.
Ríkisendurskoðandi
getur
enn
fremur
ákveðið
að
gögn
sem
hafa
verið
send
stjórnvöldum
við
undirbúning
einstakra
athugana
og
meðan
á
þeim
stendur
verði
ekki
aðgengileg.
Ákvarðanir
ríkisendurskoðanda
um
aðgang
að
gögnum
sæta
ekki
kæru
til
úrskurðarnefndar
um
upplýsingamál.
V. KAFLI Skýrslugerð og upplýsingagjöf.
16. gr. Upplýsingagjöf.
Ríkisendurskoðandi skal með skýrslum, greinargerðum og endurskoðunarbréfum til þeirra aðila sem undir starfssvið hans falla:
- gera grein fyrir niðurstöðum sínum við endurskoðun og eftirlit,
- vekja athygli á því sem hann telur að úrskeiðis hafi farið í starfsemi, fjárstjórn og rekstri,
- benda á atriði sem hann telur að athuga þurfi og gera tillögur til úrbóta.
Ef
ríkisendurskoðandi
verður
í
störfum
sínum
áskynja
um
stórvægileg
mistök
eða
afbrot
stjórnvalds
eða
aðila
sem
fellur
undir
starfssvið
hans
getur
hann
þó
ætíð
gefið
Alþingi
sérstaka
skýrslu
um
málið
og
eftir
atvikum
hlutaðeigandi
ráðherra.
Ríkisendurskoðandi
sendir
Alþingi
skýrslur
sínar,
greinargerðir
og
endurskoðunarbréf
og
birtir
opinberlega
nema
um
sé
að
ræða
málefni
sem
leynt
skal
fara
samkvæmt
lögum
eða
opinberir
hagsmunir
eða
einkahagsmunir
standi
því
í
vegi,
sbr.
þó
4.
mgr.
12.
gr.
Ríkisendurskoðandi
getur
vísað
máli
til
rannsóknar
hjá
lögreglu
ef
tilefni
er
til
þess,
sbr.
5.
mgr.
12.
gr.
17. gr. Skýrslubeiðni Alþingis.
Stjórnskipunar-
og
eftirlitsnefnd
Alþingis
getur
ýmist
að
eigin
frumkvæði
eða
samkvæmt
tillögu
sem
henni
berst
farið
fram
á
að
ríkisendurskoðandi
taki
saman
skýrslu
um
einstök
mál
eða
málaflokka
sem
falla
undir
starfssvið
hans.
Sama
gildir
ef
níu
þingmenn
óska
þess
með
skýrslubeiðni
í
þingsal
og
skal
þá
taka
beiðnina
fyrir.
Taki
ríkisendurskoðandi
beiðni
til
athugunar
greinir
hann
stjórnskipunar-
og
eftirlitsnefnd
frá
umfangi
hennar
og
áætluðum
skilum.
Komi
í
ljós
að
umfang
athugunar
er
umtalsvert
meira
en
áætlað
var
eða
ekki
er
unnt
að
ljúka
skýrslu
á
áætluðum
tíma
greinir
ríkisendurskoðandi
stjórnskipunar-
og
eftirlitsnefnd
frá
því
og
tillögum
sínum
þar
að
lútandi.
18. gr. Ársskýrsla.
Endurskoðandi
tilnefndur
af
forsætisnefnd
Alþingis
endurskoðar
ársreikning
Ríkisendurskoðunar.
Endurskoðaður
ársreikningur
og
skýrsla
um
störf
ríkisendurskoðanda
eru
birt
á
vefsíðu
Ríkisendurskoðunar.
Skýrsla
um
störf
ríkisendurskoðanda
á
liðnu
starfsári
er
lögð
fyrir
Alþingi.
VI. KAFLI Ýmis ákvæði.
19. gr. Starfskjör ríkisendurskoðanda o.fl.
Kjararáð
ákveður
laun
ríkisendurskoðanda.
Ríkisendurskoðandi
hefur
rétt
til
biðlauna
þegar
hann
lætur
af
starfi
skv.
VI.
kafla
laga
um
réttindi
og
skyldur
starfsmanna
ríkisins.
Ríkisendurskoðandi
ræður
starfsmenn
Ríkisendurskoðunar.
Hann
velur
einn
þeirra
sem
staðgengil
í
forföllum
sínum.
Ráðning
staðgengils
skal
þó
staðfest
af
forsætisnefnd.
Lög
um
réttindi
og
skyldur
starfsmanna
ríkisins
gilda
um
starfsfólk
Ríkisendurskoðunar.
Forseti
Alþingis
gerir
kjarasamninga
við
starfsmenn
Ríkisendurskoðunar,
sbr.
3.
gr.
laga
um
kjarasamninga
opinberra
starfsmanna.
20. gr. Aðild að alþjóðasamtökum.
Ríkisendurskoðandi kveður á um aðild Ríkisendurskoðunar að alþjóðasamtökum ríkisendurskoðana og öðrum samtökum sem eru nauðsynleg í alþjóðlegu samstarfi hennar. Er honum jafnframt heimilt að innleiða endurskoðunarstaðla sem samtökin hafa samþykkt. Við innleiðinguna skal gæta þess að einstakir staðlar falli að íslenskum aðstæðum eftir því sem við á.
21. gr. Gildissvið gagnvart lögum um endurskoðendur.
Lög um endurskoðendur, nr. 79/2008, taka ekki til ríkisendurskoðanda eða Ríkisendurskoðunar. Ákvæði laganna taka til þeirra starfsmanna Ríkisendurskoðunar sem annast endurskoðun ársreikninga, sjóða og ríkisfyrirtækja þar sem ríkið á helmingshlut eða meira og lög áskilja að endurskoðunin sé framkvæmd af endurskoðanda sem fellur undir lög um endurskoðendur. Í stað starfsábyrgðartryggingar skv. 6. gr. laga nr. 79/2008 skal ríkisendurskoðandi upplýsa endurskoðendaráð um þá starfsmenn Ríkisendurskoðunar sem falla undir grein þessa og að stofnunin beri ábyrgð á störfum þeirra.
22. gr. Gildistaka o.fl.
Lög
þessi
taka
gildi
1.
janúar
2017.
Frá
sama
tíma
falla
úr
gildi
lög
um
Ríkisendurskoðun,
nr.
86/1997,
með
síðari
breytingum.
Ákvæði
1.
mgr.
2.
gr.
koma
fyrst
til
framkvæmda
að
loknu
ráðningartímabili
núverandi
ríkisendurskoðanda.
23. gr. Breyting á öðrum lögum.
Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á öðrum lögum:
- 2. málsl. 2. mgr. 9. gr. laga um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, nr. 1/1997, orðast svo: Ársreikningur sjóðsins skal endurskoðaður af ríkisendurskoðanda.
- 2. málsl. 6. gr. laga um Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga, nr. 2/1997, orðast svo: Ársreikningur sjóðsins skal endurskoðaður af ríkisendurskoðanda.
Gjört á Bessastöðum, 7. júní 2016.
Ólafur
Ragnar
Grímsson.
(L.
S.)
Sigurður Ingi Jóhannsson.
A deild - Útgáfud.: 10. júní 2016