Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Fjarðabyggð

Málaflokkur

Skipulagsmál, Fjarðabyggð

Undirritunardagur

30. apríl 2026

Útgáfudagur

18. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 491/2026

30. apríl 2026

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Fjarðabyggð.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti bæjarstjórn Fjarðabyggðar eftirfarandi deiliskipulagsáætlanir:

Óveruleg breyting á deiliskipulagi miðbæjar Neskaupstaðar - Hafnarbraut 6.

Samþykkt af bæjarstjórn Fjarðabyggðar 9. apríl 2026.

Óveruleg breyting á deiliskipulagi, Nes- og Bakkagil, Norðfirði.

Samþykkt af bæjarstjórn Fjarðabyggðar 26. mars 2026.

Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

Fjarðabyggð, 30. apríl 2026.

Aron Leví Beck skipulagsfulltrúi.

B deild — Útgáfudagur: 18. maí 2026

Tengd mál

Stjórnartíðindi