Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Reykhólahreppur
Málaflokkur
Barðastrandarsýslur, Gæludýr
Undirritunardagur
15. desember 2025
Útgáfudagur
9. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1720/2025
15. desember 2025
GJALDSKRÁ
vegna hunda- og kattahalds í Reykhólahreppi.
1. gr.
Við skráningu hunda og katta skal innheimta gjald sem hér segir:
| Skráningargjald eins hunds í þéttbýli | 16.900 kr. | |
| Skráningargjald eins kattar | 10.600 kr. |
2. gr.
Af skráðum hundum og köttum skal innheimta árlegt eftirlitsgjald sem hér segir:
| Árlegt leyfisgjald vegna eins hunds í þéttbýli | 16.900 kr. | |
| Árlegt leyfisgjald vegna eins kattar | 10.600 kr. |
Árlegt leyfisgjald greiðist ekki það ár sem skráningargjald er greitt.
Hafi gjaldið ekki verið greitt innan tveggja mánaða frá gjalddaga fellur leyfið niður.
3. gr.
Við afhendingu handsamaðs hunds ber að innheimta gjald sem hér segir:
| Föngunargjald | 14.100 kr. |
Óskráða hunda má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu.
4. gr.
Við afskráningu hunds ber að endurgreiða árlegt leyfisgjald í réttu hlutfalli við þá mánuði sem eftir eru af árinu og þegar gengið hefur verið frá afskráningu.
Heimilt er að fella niður eða ákveða lægra gjald fyrir nytjahunda, svo sem hunda sem notaðir eru til löggæslu eða björgunarstarfa og minkahunda. Af leiðsöguhundum sem blindir eða sjóndaprir nota vegna fötlunar sinnar skal ekki greiða gjald.
5. gr.
Gjalddagi árlegs leyfisgjalds er 1. maí og eindagi 31. maí. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga, auk áfallins innheimtukostnaðar. Gjöld skv. gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.
Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt ákvæðum 4. mgr. 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 .
Gjöld samkvæmt gjaldskránni miðast við neysluverðsvísitölu í desember 2025 og breytast í samræmi við hana árlega. Gjaldskráin tekur gildi við birtingu, á sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1816/2024.
Gjaldskrá þessi er samþykkt í sveitarstjórn Reykhólahrepps 15. desember 2025.
Reykhólahreppi, 15. desember 2025.
Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 9. júní 2026