Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál
Undirritunardagur
30. júní 2017
Útgáfudagur
17. júlí 2017
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 651/2017
30. júní 2017
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 438/2012 um sameiginlegar reglur um flæðisstjórnun flugumferðar.
1. gr.
Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, b, sem orðast svo:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1006 frá 22. júní 2016 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 255/2010 að því er varðar ákvæði Alþjóðaflugmálastofnunarinnar sem um getur í 1. mgr. 3. gr., sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 213 frá 28. október 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjónartíðindi Evrópusambandsins nr. 63 17. nóvember 2016, bls. 90-91.
2. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 146. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 30. júní 2017.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Gunnar Örn Indriðason.
B deild - Útgáfud.: 17. júlí 2017