Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Heilbrigðisráðuneytið

Málaflokkur

Heilbrigðismál, Sóttvarnir

Undirritunardagur

14. júní 2021

Útgáfudagur

18. júní 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 718/2021

14. júní 2021

REGLUGERÐ

um (7.) breytingu á reglugerð nr. 817/2012, um sóttvarnaráðstafanir.

1. gr.

1. málsl. 6. mgr. 11. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Uppfylli einstaklingur ekki skilyrði faglegra fyrirmæla landlæknis skal hann greiða 7.000 kr. gjald fyrir PCR-próf eða 4.000 kr. gjald fyrir hraðpróf á vegum heilsugæslu vegna greiningar á SARS-CoV-2 veirunni, hvort sem hann er sjúkratryggður eða ósjúkratryggður.

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er á grundvelli 12., 13., 17. og 18. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, og 1. tölul. 1. mgr. og 5. mgr. 29. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, tekur þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 14. júní 2021.

F. h. r.

Ásthildur Knútsdóttir.

Guðlaug Einarsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 18. júní 2021

Tengd mál