Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Sýslumaðurinn á Sauðárkróki

Málaflokkur

Sjóðir og stofnanir, Skipulagsskrár

Undirritunardagur

23. nóvember 2010

Útgáfudagur

10. desember 2010

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 958/2010

23. nóvember 2010

AUGLÝSING

um staðfestingu á breytingu á skipulagsskrá fyrir Verðlaunasjóð Guðmundar P. Bjarnasonar, Akranesi, sem staðfest var 11. apríl 1997, nr. 250.

Stjórn sjóðsins hefur samþykkt eftirfarandi breytingar á skipulagsskrá sjóðsins:

4. gr. orðist svo:

Stjórn sjóðsins skipa 3 menn, tilnefndir til 5 ára í senn. Tveir skulu tilnefndir af rektor Háskóla Íslands og einn varamaður.

Bankastjóri Arion banka hf. tilnefnir einn mann í stjórn og einn varamann. Láti maður af starfi hjá Arion banka hf. skal tilnefna annan í hans stað. Þá tekur varamaður sæti aðalmanns til bráðabirgða.

Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum.

Sú breyting er gerð á ákvæðum 5. gr. að í stað nafns Kaupþings hf. kemur nafn Arion banka hf.

Sú breyting er gerð á ákvæðum 7. gr. að í stað nafns Kaupþings hf. kemur nafn Arion banka hf.

8. gr. orðist svo:

Verðtryggt stofnfé má ekki skerða. Grunnur stofnfjár miðast við kr. 60.000.000, sextíu milljónir. Við útreikning skal miða við vísitölu neysluverðs frá og með 31. mars 2010.

Heimilt er að nýta ávöxtun sjóðsins á hverju ári eftir greiðslu kostnaðar við rekstur hans og eftir að stofnfé hefur verið verðbætt til að verðlauna efnilega nemendur í eðlisfræði og efnafræði við Háskóla Íslands.

Ekki má veita verðlaun ef það leiðir til skerðingar á verðtryggðu stofnfé eins og lýst er hér að ofan.

Ofangreindar breytingar á skipulagsskrá fyrir verðlaunasjóð Guðmundar P. Bjarnasonar, Akranesi, staðfestast hér með samkvæmt lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá nr. 19/1988.

Sýslumaðurinn á Sauðárkróki, 23. nóvember 2010.

Ríkarður Másson.

Björn Ingi Óskarsson.

B deild - Útgáfud.: 10. desember 2010

Tengd mál