Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Árnessýsla
Undirritunardagur
17. júlí 2025
Útgáfudagur
31. júlí 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 856/2025
17. júlí 2025
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps vegna breyttrar landnotkunar Þinggerði 1.
Skipulagsstofnun staðfesti 17. júlí 2025 óverulega breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032, sem samþykkt var í sveitarstjórn 7. maí 2025.
Í breytingunni felst að breyta verslunar- og þjónustusvæði VÞ16 að Þinggerði 1 í Grímsnesi í svæði fyrir samfélagsþjónustu S5 vegna áforma um uppbyggingu þjónustubygginga m.a. slökkvistöð og björgunarmiðstöð.
Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsstofnun, 17. júlí 2025.
F.h. forstjóra,
Guðrún Lára Sveinsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 31. júlí 2025