Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki
Málaflokkur
Sjóðir og stofnanir, Skipulagsskrár
Undirritunardagur
21. maí 2012
Útgáfudagur
13. júní 2012
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 500/2012
21. maí 2012
SKIPULAGSSKRÁ
fyrir Heimskautaréttarstofnun.
1. gr.
Heimskautaréttarstofnun er sjálfseignarstofnun, sem starfar skv. lögum nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir.
Stofnunin er sjálfstæð rannsóknar- og fræðslustofnun, sem er starfrækt við Háskólann á Akureyri. Stofnunin stundar ekki atvinnurekstur.
2. gr.
Heimilisfang stofnunarinnar er við hug- og félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri, Norðurslóð, Akureyri.
3. gr.
Markmið og hlutverk Heimskautaréttarstofnunar er:
- að afla fjár til og vinna að rannsóknaverkefnum í samstarfi við innlenda og erlenda aðila,
- að veita stuðning til framhaldsnáms í heimskautarétti við Háskólann á Akureyri,
- að halda uppi kennslu á sérstökum námskeiðum á eigin vegum eða í samvinnu við Háskólann á Akureyri og aðrar stofnanir,
- að auka samstarf milli fræðimanna, opinberra aðila og atvinnulífs á sviði heimskautaréttar,
- að treysta samvinnu milli samstarfsaðila í þágu þverfaglegs náms og efla skilning á þeim hagsmunum sem tengjast þverfaglegu námi,
- að gangast fyrir ráðstefnum, umræðufundum og fyrirlestrum um efni sem varða verkefnasvið stofnunarinnar, þ. á m. árlegum ráðstefnum á Akureyri, og
- að vinna að útgáfu rita um heimskautarétt, þ. á m. The Yearbook of Polar Law.
4. gr.
Stofnendur stofnunar eru Arngrímur B. Jóhannsson, kt. 070440-2969, Ágúst Þór Árnason, kt. 260554-4179 og Guðmundur Alfreðsson, kt. 211249-3829. Arngrímur hefur lagt fram stofnfé stofnunarinnar: kr. 1.000.000 og mun gegna hlutverki heiðursformanns stjórnar.
5. gr.
Stofnunin ber ábyrgð á skuldbindingum sínum með öllum eignum sínum og öðrum þeim eignum, er hún kann að eignast síðar. Engin sérréttindi í stofnuninni tilheyra stofnendum hennar eða gefanda stofnfjár.
6. gr.
Stjórn stofnunarinnar er skipuð fimm einstaklingum til þriggja ára í senn. Við kjör á aðalmönnum í stjórn skulu kosnir tveir menn í varastjórn til sama tíma. Stofnendur tilnefna fyrstu stjórn, en eftirleiðis mun fráfarandi stjórn við lok kjörtímabils kjósa nýja stjórn. Við val stjórnarmanna skal einfaldur meirihluti ráða. Stjórnin kýs sér formann og varaformann úr sínum hópi og skiptir að öðru leyti með sér verkum. Stjórnin getur ákveðið að setja á laggir alþjóðlega ráðgjafanefnd og skipa fulltrúa í hana. Formaður stjórnar boðar stjórnarfundi bréflega, eða í tölvupósti, með einnar viku fyrirvara. Fundarboð skal greina dagskrá fundar. Stjórnin skal setja sér starfsreglur, þar sem nánar er kveðið á um framkvæmd starfa hennar. Skylt er að boða stjórnarfund óski einn eða fleiri stjórnarmenn þess.
Stjórnarfundir eru lögmætir, ef meirihluti stjórnar sækir fund. Mikilvæga ákvörðun má þó ekki taka, nema allir stjórnarmenn hafi haft tök á að fjalla um málið, sé þess nokkur kostur. Falli atkvæði jöfn á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns eða þess, sem gegnir formannsstörfum. Halda skal gerðabók stjórnar um það, sem gerist á stjórnarfundum, og skulu staðfestar fundargerðir færðar í hana.
Engin laun eða þóknun kemur fyrir setu í stjórn og alþjóðlegri ráðgjafanefnd.
7. gr.
Stjórnin stýrir öllum málefnum stofnunarinnar og kemur fram út á við fyrir hönd hennar. Stjórnin tekur allar stefnumarkandi ákvarðanir fyrir stofnunina, setur henni rannsóknarstefnu, aflar fjár og veitir fé til einstakra rannsókna og annarra verkefna.
Stjórnin skal sjá til þess, að skipulag og starfsemi stjórnar og stofnunar séu jafnan í réttu og góðu horfi.
Stjórnin getur skipað starfshópa til að vinna að framgangi tiltekinna mála til lengri eða skemmri tíma. Sérstaka áherslu skal leggja á að fá einstaklinga utan stjórnar í starfshópana, þ.m.t. innlenda og erlenda fræðimenn.
Undirskriftir meirihluta stjórnar skuldbinda stofnunina. Stjórn stofnunarinnar getur veitt prókúruumboð fyrir stofnunina. Stjórn skal árlega leggja fram ársskýrslu, fjárhagsáætlun ársins og fjárhagsyfirlit síðasta árs.
8. gr.
Stjórn stofnunarinnar auglýsir eftir og ræður stofnuninni framkvæmdastjóra. Um heimildir til ráðningar annars starfsfólks fer eftir ákvörðun stjórnar. Stofnendur tilnefna framkvæmdastjóra, þar til fjáröflun skapar þann rekstrargrundvöll, sem myndi leyfa auglýsingu og ráðningu í launað starf.
Framkvæmdastjóri ber ábyrgð gagnvart stjórn stofnunarinnar á daglegum rekstri hennar og fjármálum og sér um framkvæmd á þeim málum, sem stjórnin felur honum í umboði hennar.
Framkvæmdastjóri auglýsir og ræður til starfa starfsmenn stofnunarinnar og hefur eftirlit með þeim, auk þess að stýra rannsóknaverkefnum nema öðrum sé falið verkefnið.
Framkvæmdastjóri situr stjórnarfundi með málfrelsi og tillögurétt, en án atkvæðisréttar.
Framkvæmdastjóra ber að veita stjórnarmönnum og endurskoðendum allar upplýsingar um rekstur stofnunarinnar, sem þeir kunna að óska.
Gera má skv. ákvörðun stjórnar samning við aðra stofnun um framkvæmd á ákvörðunum stjórnar, að hluta eða öllu leyti, varðandi daglegan rekstur, sjóðavörslu og reikningshald, enda lúti viðkomandi stofnun sambærilegum reglum og eftirliti löggilts endurskoðanda.
9. gr.
Tekjur Heimskautaréttarstofnunar eru eftirfarandi:
- styrkir til einstakra verkefna;
- tekjur af ráðstefnu- og útgáfustarfsemi, og
- aðrar tekjur, t.d. gjafir og önnur frjáls framlög.
Tekjur af sölu á vörum og þjónustu og því um líku eða starfsemi, sem er í meginatriðum hliðstæð starfsemi annarra félaga eða einstaklinga í atvinnurekstri, munu verða takmarkaðar miðað við önnur umsvif stofnunarinnar eða varða aðeins lítinn hluta af eigin fé hennar.
10. gr.
Reikningsárið er almanaksárið, og er fyrsta reikningstímabili frá stofnun sjálfseignarstofnunarinnar og til næstu áramóta.
11. gr.
Stjórn stofnunarinnar skal velja einn eða fleiri löggilta endurskoðendur til að endurskoða og staðfesta reikninga stofnunarinnar fyrir hvert starfsár.
Endurskoðendur má ekki kjósa úr hópi stjórnarmanna félagsins.
Útgjöld mega aldrei fara fram úr tekjum.
Allar tekjur skulu nýttar til að vinna að markmiðum stofnunarinnar.
12. gr.
Leita skal staðfestingar sýslumannsins á Sauðárkróki á þessari skipulagsskrá, og reikningar hennar skulu sendar árlega til Ríkisendurskoðunar skv. lögum nr. 19/1988.
13. gr.
Til þess að breyta skipulagsskrá þessari, sameina stofnunina annarri sjálfseignarstofnun eða leggja hana niður, þarf samþykki allra stjórnarmanna stofnunarinnar. Slíkt skal svo borið skriflega undir embætti sýslumannsins á Sauðárkróki. Komi til niðurlagningar stofnunarinnar, skal hreinni eign hennar varið til markmiðanna, sem greint er frá í 3. gr. þessarar stofnskrár eða skyldra markmiða.
Skipulagsskrá þessi staðfestist hér með samkvæmt lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988.
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki, 21. maí 2012.
Ríkarður Másson.
Björn Ingi Óskarsson.