Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
4. nóvember 2022
Útgáfudagur
21. nóvember 2022
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1256/2022
4. nóvember 2022
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 995/2017 um doktorsnám við verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands.
1. gr.
2. mgr. 9. gr. reglnanna fellur brott.
2. gr.
Á undan 1. mgr. 10. gr. reglnanna bætist við ný málsgrein, svohljóðandi:
Doktorsnefndin getur sett fram námskeiðskröfur sem hún telur nauðsynlegar fyrir rannsóknarverkefnið. Doktorsnefndin gerir tillögu að umfangi og innihaldi námskeiðanna, sem þurfa samþykki framhaldsnámsnefndar.
3. gr.
Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, eru settar samkvæmt heimild í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. 68. og 69. gr. reglna nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands. Reglurnar öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 4. nóvember 2022.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 21. nóvember 2022