Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

C deild

Stofnun

Matvælaráðuneytið

Málaflokkur

Fjölþjóðasamningar

Undirritunardagur

2. janúar 2025

Útgáfudagur

17. janúar 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1/2025

2. janúar 2025

AUGLÝSING

um innleiðingu á breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerðir öðlast gildi hér á landi með reglugerð nr. 29/2025 um (43.) breytingu á reglugerð nr. 580/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429, sem birt er í B-deild Stjórnartíðinda:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3145 frá 18. desember 2024 um breytingu á I., IX., X. og XV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar skrárnar yfir þriðju lönd eða yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af tilteknum afurðum úr dýraríkinu til Sambandsins og um leiðréttingu á XXI. viðauka við hana að því er varðar færslurnar fyrir Bandaríkin. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali með auglýsingu þessari.

2. gr.

Auglýsing þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995, 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994, og 29. gr. b laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

Matvælaráðuneytinu, 2. janúar 2025.

Hanna Katrín Friðriksson
atvinnuvegaráðherra.

Svava Pétursdóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

C deild - Útgáfud.: 17. janúar 2025

Tengd mál