Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Rangárþing ytra
Málaflokkur
Skipulagsmál, Rangárvallasýsla
Undirritunardagur
29. janúar 2026
Útgáfudagur
12. febrúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 138/2026
29. janúar 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Rangárþingi ytra.
Þjóðólfshagi 27 og 28, breyting á deiliskipulagi.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti 14. janúar 2026 tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Þjóðólfshaga 27 og 28, dags. 2. apríl 2024. Breytingin felur í sér að uppfærðir verða byggingarskilmálar beggja lóða í tengslum við breytingar á afmörkun þeirra. Breyting er gerð á innri afmörkun lóðanna og byggingarreitum innan þeirra. Tillagan hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Hellu, 29. janúar 2026.
F.h. Rangárþings ytra,
Birgir Haraldsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 12. febrúar 2026