Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Umhverfisráðuneytið (2001-2012)
Málaflokkur
Skipulagsmál, Þingeyjarsýslur
Undirritunardagur
22. ágúst 2007
Útgáfudagur
23. ágúst 2007
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 759/2007
22. ágúst 2007
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps 1994-2014, Heiðarholt, Sólberg, Veigastaðir, Hallland og Vaðlabyggð.
Samkvæmt 19. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 hefur ráðherra þann 22. ágúst 2007 staðfest breytingu á aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps 1994-2014, frá 27. ágúst 1995.
Breytingarnar eru eftirfarandi:
- Í landi Heiðarholts verður nýtt 2,5 ha íbúðarsvæði þar sem gert er ráð fyrir allt að 3 íbúðarhúsalóðum tengt heimreið að býlinu.
- Í landi Sólbergs stækkar íbúðarsvæði neðan þjóðvegar úr 2,8 ha í 3,8 ha og verður heimilt að byggja allt að 12 hús í stað 9 húsa. Lágmarksstærð lóða verður 2.000 m² í stað 2.500 m². Þar verður einnig reist nýtt fráveitumannvirki vegna útrásar til sjávar með grófhreinsun.
- Í landi Veigastaða II og Halllands verður nýtt 2,8 ha íbúðarsvæði, þar sem gert er ráð fyrir allt að 7 íbúðarhúsalóðum og verður lágmarksstærð lóða 2.000 m².
- Í landi Veigastaða II verður nýtt 3,9 ha íbúðarsvæði þar sem gert er ráð fyrir 4 íbúðarhúsalóðum með tengingu við Vaðlaheiðarveg.
- Í landi Veigastaða II stækkar íbúðarsvæðið um 1,1 ha þar sem gert verður ráð fyrir allt að 3 íbúðarhúsalóðum.
- Í landi Veigastaða I breytist 1,4 ha af frístundabyggðinni Kotabyggð í íbúðarsvæði þar sem gert verður ráð fyrir 2 íbúðarhúsalóðum í framhaldi af íbúðarbyggðinni Vaðlabyggð. Þar er 1 frístundahús sem breytist í íbúðarhús.
- Íbúðarsvæðið Vaðlabyggð stækkar til norðurs úr 10,7 ha í 11,4 ha þar sem gert verður ráð fyrir allt að 22 húsum í stað 15 húsa.
- Í landi Veigastaða I verður nýtt 26,8 ha frístundabyggðarsvæði þar sem þéttleiki verður 1-3 hús á hektara og lágmarksstærð lóða 3.000 m².
- Mörk frístundabyggðar í landi Halllands og Veigastaða leiðréttast og við það minnkar frístundabyggðarsvæði í landi Halllands lítillega.
- Íbúðarhúsalóðum í Vaðlabrekku fjölgar úr 12 lóðum í 14 lóðir syðst á svæðinu og jarðamörk að norðan lagfærð og við það stækkar svæðið úr 5,7 ha í 6,0 ha.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hefur málsmeðferð verið í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 og Skipulagsstofnun yfirfarið erindið og sent ráðherra til staðfestingar.
Breytingin öðlast þegar gildi.
Umhverfisráðuneytinu, 22. ágúst 2007.
F. h. r.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Ingibjörg Halldórsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 23. ágúst 2007